blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 blaðiö
8IFRÉT
Akstur á
stofnleið fjög-
ur tryggður
í sumar
Búið er að tryggja akstur á stofn-
leið fjögur í sumar að sögn Ás-
geirs Eiríkssonar, framkvæmda-
stjóra Strætó. „Uppi voru áform
um að leggja niður akstur á
tveimur leiðum vegna erfiðleika
við að fá bílstjóra í störfin. Um
var að ræða stofnleiðir fjögur og
fimm, en nú er búið að tryggja
akstur á annarri leiðinni. Við
erum að vinna í því að tryggja
akstur á hinni leiðinni. Eg er
hæfilega bjartsýnn á að það tak-
ist,“ segir Ásgeir.
Kofar eyði-
lagðir í Vest-
mannaeyjum
Kofar sem börn smíðuðu í
Bjarnaborg í Vestmannaeyjum
voru skemmdir á föstudags-
kvöld. Talið er að ungmenni
beri ábyrgð á skemmdunum
en kofarnir voru brotnir og
bramlaðir. Lögreglan segir
þetta miður enda börnin búin
að leggja mikið á sig til þess að
reisa kofana og því kvikindislegt
að sögn lögreglu að eyðileggja
þá. Lögreglan segir að hingað
til hafi kofaborgin fengið að
standa í friði og almennt sé lítið
um skemmdaverk í bænum.
Bush fer hamförum gegn
bandarískum dagblöðum
Hart deilt um frelsi fjölmiðla vestra í kjölfar þess að birtar voru upplýsingar um eftirlit stjórnvalda
með peningasendingum. Dagblöð sökuð um að vinna gegn framgangi „hryðjuverkastríðsins”.
George Bush, forseti Bandaríkjanna, fær gítarinn Lucille að gjöf frá blúsgoðinu B.B King.
Blúsarinn lék í Hvíta húsinu á mánudag í tilefni hátíðarhalda vegna framlags svartra
tónlistarmanna til bandarískrar menningar. Forsetinn hefur sakað dagblöð í Bandaríkj-
unum um að vinna gegn framgangi„stríðsins gegn hryðjuverkaógninni".
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, hefur sakað dagblöð
vestra um að vinna gegn fram-
gangi „stríðsins gegn hryðju-
verkaógninni”. Þetta gerði for-
setinn í kjölfar þess að dagblöð
birtu upplýsingar um leynilega
áætlun sem miðar að því að fylgj-
ast með peningasendingum.
George W. Bush segir áætlun-
ina yfir alla gagnrýni hafna
og „skammarlegt" af hálfu
dagblaða að segja frá henni.
Bandaríska dagblaðið The New York
Times skýrði í liðinni viku frá því
að Bandaríkjastjórn fylgdist með
peningasendingum um heim allan
og nyti við það aðstoðar alþjóðlegs
fjármálafyrirtækis sem sérhæfir
sig í slíkum tilflutningum. Blaðið
segist hafa birt þessar upplýsingar
í nafni almannahagsmuna. Vegna
þessa hefur nú blossað upp gífur-
lega hörð umræða í Bandaríkjunum
um frelsi fjölmiðla. Nokkrir hægri-
sinnaðir stjórnmálamenn vilja að
ritstjórar The New York Times verði
ákærðir fyrir landráð en ólíklegt er
talið að af því verði.
The New York Times hefur lengi
verið talið andstætt stjórn Bush for-
seta. Blaðið fékk m.a. hin virtu Pu-
litzer-verðlaun fyrir að skýra frá því
að ríkisstjórnin léti fylgjast með sím-
tölum í nafni „hnattræna stríðsins
gegn hryðjuverkaógninni”.
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, tók undir ummæli Bush
og sagði að The New York Times
hefði tvívegis skýrt frá leynilegum
aðgerðum stjórnvalda þrátt fyrir
að embættismenn hefðu ráðlagt rit-
stjórum blaðsins að gera það ekki.
í frétt The New York Times í lið-
inni viku sagði m.a. að bandaríska
leyniþjónustan, CIA, hefði fengið að-
gang að upplýsingum varðandi pen-
ingasendingar. Stjórnin hefði nýtt
sér heimild í lögum til að þvinga
fjármálafyrirtækið Swift (Society
for Worldwide Interbank Financial
Telecommunication) sem er leiðandi
á þessu sviði í heiminum til að láta
af hendi gögn. í frétt blaðsins kom
fram að þetta hefði leitt til þess að
meintir liðsmenn al-Qaeda-hryðju-
verkanetsins hefðu verið handteknir.
„Við eigum í stríði"
Bush forseti sagði að upplýsingar
sem birtar hefðu verið gerðu að
verkum að erfiðara yrði „að sigra
í þessu hryðjuverkastríði”. „Við
eigum í stríði við hóp fólks sem
vill skaða Bandaríkin. Og að menn
skuli leka upplýsingum og að dag-
blað skuli birta þær skaðar stórlega
Bandaríki Norður-Ameríku,” sagði
forsetinn og bætti við að áætlun
stjórnvalda varðandi eftirlit með
peningasendingum væri á allan
hátt lögleg.
Repúblikanar í Bandaríkjunum
hafa á undanförnum dögum hvergi
dregið undan í gagnrýni sinni á The
New York Times og önnur dagblöð
sem tóku fréttina upp. Formaður
nefndar fulltrúadeildarinnar um
heimavarnir sagði að kæra ætti rit-
stjóra The New York Times fyrir
birtinguna.
Ritstjórar blaðsins segja að
hlustað hafi verið á rök stjórnvalda
í málinu. Ákveðið hafi verið að
birta upplýsingar þessar þar sem
þær ættu erindi við almenning. f
frétt blaðsins væri engin afstaða
tekin til þess hvort áætlun þessi
væri lögleg eða líkleg til að skila ár-
angri. Hins vegar kæmu þar fram
sterkar röksemdir fyrir því að sú
væri raunin.
t-
Hýdrófíl
Karbamíð rakakrem 3%
Hýdrófíl rakakrem með karbamíð. Kremið eykur
rakadrægni húðarinnar. Hentar vel á þurrar
hendurog á mjög þurra bletti í andliti.
n, m
Milt rakakrem sem hentar vel fyrir andlit og
líkama. Gefur mikinn raka, er ekki feitt og fer
vel inn í húðina. Kremið hentar öllum
húðgerðum og er ágætt undir farða. Kremið
inniheldur hvorki ilmefni né litarefni og hefur
pH gildi 5,5. Fæst einnig án rotvarnarefna.
Joo
laj
>*.«. 351
Karbamíð rakakrem 10%
Hentar vel á þurra fætur og mjög þurrar hendur.
Kremið má ekki nota i andlit.
Reuters
Api og boli gera allt vitlaust
Api ríöur bola I tilefni Santa Ana hátíðarinnar í Níkaragva í gær. Eins og sjá má á myndinni var bolinn allt annað en vingjarnlegur þar
sem hann þeyttist og reyndi að losa sig við þennan óvenjulega knapa.
Kínversk stjórnvöld
herða á ritskoðun
Kínverski kommúnistaflokkurinn
ætlar að setja lög sem heimila stjórn-
völdum að sekta fjölmiðla fyrir að
segja frá óvæntum tíðindum án leyfis
stjórnvalda. Um er að ræða fréttir af
tíðindum eins og verkföllum, upp-
þotum, mótmælum og stórslysum
og öðrum þeim sem embættismenn
telja skaðlega fyrir ímynd ríkisins og
geti hugsanlega ógnað „pólitískum
stöðugleika” í landinu.
Fyrirhuguð lagasetning skil-
greinir ekki hvaða hugsanlegu
óvæntu tíðindi fjölmiðlar þurfa að
fá leyfi frá stjórnvöldum til að fjalla
um. Dagblaðið International Her-
ald Tribune hefur eftir kínverskum
blaðamönnum að lögin verði væntan-
lega túlkuð þannig af yfirvöldum að
þau banni fréttaflutning af málum
sem þau telja vandræðaleg.
Á síðasta ári leyfðu stjórnvöld
fjölmiðlum að fjalla um hugsan-
legar náttúruhamfarir, þar á meðal
hversu margir látast í þeim, en fram
að þeim tima höfðu þær upplýsingar
flokkast undir ríkisleyndarmál. Var
litið á þessa ákvörðun sem mikil-
vægt skref í átt að auknu frelsi fjöl-
miðla í landinu. Hin fyrirhugaða
löggjöf mun hinsvegar takmarka
aftur umfjöllun fjölmiðla þar sem
að yfirvöld þurfa á ný að veita leyfi
fyrir henni.
Umtalsverð ritskoðun er stunduð
af kínverskum stjórnvöldum. Yfir-
völd áróðursmála í landinu senda
daglega frá sér lista til helstu fjöl-
miðla um hvað þeir mega og mega
ekki fjalla um. Sá listi hefur farið
stækkandi síðustu ár. Eitthvað
hefur borið á því undanfarin ár að
nokkur dagblöð og tímarit hafi farið
gegn þeim tilmælum. Með nýju lög-
unum er hægt að sekta þau brjóti
þau lögin. Samkvæmt kínverskum
ríkisfjölmiðlum nema sektirnar á
bilinu 50 til 100 þúsund fyrir hvert
skipti sem fjallað er um atburð án
leyfis stjórnvalda.