blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 19

blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 19
blaöió MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 MENNING I 27 Mikil gróska i islensku listalífi Við opnun á sumarsýningu í Listasafni Reykjavíkur - Kjar- valsstöðum á laugardag fór fram afhending úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur. Að þessu sinni hlaut Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistarkona viður- kenninguna fyrir framlag sitt til íslenskrar myndlistar. Listasjóður Guðmundu S. Kristins- dóttur frá Miðengi var stofnaður í tilefni af gjöf Errós á andvirði íbúðar að Freyjugötu 34 sem Guð- munda hafði arfleitt hann að. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun í vörslu borgarsjóðs Reykjavíkur og hafa margar mikilsmetnar lista- konur hlotið viðurkenninguna á síðustu árum, m.a. þær Ólöf Nor- dal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurðardóttir, Gabriela Friðriks- dóttir, Sara Björnsdóttir og Þóra Þórsdóttir. „Mikill heiður" Hekla Dögg lauk prófi úr fjöltækni- deild Myndlista- og handíðaskól- ans árið 1994. Hún hélt svo til náms til Frankfurt í Þýskalandi og einnig nam hún við California Institute of the Arts í LA 1996-1999. Hún hefur sett upp fjölmargar sýn- ingar á verkum sínum hér heima og erlendis aukþess sem hún hefur mikið starfað við sýningahald. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá þessa viðurkenningu og gaman að Erró skyldi stofna þennan sjóð í minningu frænku sinnar sem studdi hann með ráðum og dáð þegar hann var að stiga sín fyrstu skref í myndlistinni," segir Hekla Dögg. „Með sjóðnum lætur Erró þennan stuðning ganga áfram til ungra listamanna og sá stuðningur er alls ekki bara fjárhagslegur heldur er sá hugur sem fylgir máli sérlega dýrmætur - sú hugmynd að ein- hver styðji við bakið á þér og hafi trú á því sem þú ert að gera. Ég er mjög stolt af því að slást í þennan friða hóp kvenna sem áður hefur fengið viðurkenningu úr sjóðnum.“ Skúlptúrar, Ijósmyndir og vídeó Hekla Dögg hefur unnið með fjöl- breytt efni síðustu ár og verið iðin við sýningahald. „Ég vinn aðallega með skúlptúra, ljósmyndir og vídeó og tengi þessa þætti mjög gjarnan saman. Ég sýndi mikið hér á landi í fyrra og á þessu ári hef ég verið að sýna í Kan- ada, á Spáni og í Þýskaiandi. Ég kom heim frá námi sumarið 2000, en hef verið með annan fótinn í LA og New York og hef fylgst vel með listalífinu þar. Ég stefni að því að halda sýningu á eigin verkum i LA í haust og er að undirbúa hana þessa dagana.“ Listakonan unga er ekki í vafa um að íslenskt listalíf standi sterkum fótum um þessar mundir. „Það eru breytingar að eiga sér stað í íslensku listalífi og ég upp- lifi mikla grósku. Það hafa verið opnuð mörg ný gallerí og einnig hafa orðið þó nokkrar mannabreyt- ingar í listheiminum hér. Þetta hristir upp í svo litlu samfélagi og ný kynslóð er að ryðja sér til rúms á öllum sviðum. Ég held að þessar breytingar séu að mörgu leyti já- kvæðar og að þær opni nýja mögu- leika fyrir yngri listamenn,“ segir Hekla Dögg. „Stundum basl" Þó svo að líf listamannsins sé ekki dans á rósum alla daga þá hefur Hekla Dögg aldrei verið í vafa um að hún valdi rétt. „Það er auðvitað erfitt að hefja störf sem ungur lista- maður á tslandi. Þú þarft að leggja mikið á þig og jafnvel vinna fulla vinnu með til þess að sjá fyrir þér. En viðurkenningar og styrkir sem maður fær gefa manni heilmikinn kraft til þess að halda áfram, auk þess sem munar mikið um peninga- verðlaun. Þó upphæðirnar séu ekki endilega háar þá eru listamenn oft- ast mjög úrræðagott fólk og litlar upphæðir koma manni oft langt. Ég hef aldrei efast um að ég væri á réttri hillu i lífinu þó líf listamanns- ins sé stundum eilítið basl,“ segir Hekla Dögg, kát með viðurkenn- inguna út Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur. hilma@bladid. net Hekla Dögg Jónsdóttir hlaut viðurkenningu úr sjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur sl. laugardag Æfingar hafnar á ný á Penetrator Það væri synd að segja að leikhús landsins loguðu af lífi yfir sumar- mánuðina þó sá tími sé síst verri en annar til þess að njóta góðra leikverka. Leikhúsunnendur þurfa þó ekki að örvænta því hinn kraftmikli leikhópur Vér morðingjar mun á ný hefja sýn- ingar á verkinu Penetrator eftir Skotann Anthony Neilson. Anthony Neilson hefur getið sér gott orð undanfarin ár fyrir áleitin leik- verk sem kljást við samtímann á frumlegan hátt. Hann fæddist árið 1967 í Edinborg og komst ungur að árum í kynni við leikhúsið. Faðir hans, Sandy Neilson, er mikilsmet- inn leikstjóri og leikari á Bretlandi og móðir hans, Beth Robbens, er einnig nokkuð þekkt leikkona. Anthony Neilson varði því drjúgum hluta barn- æsku sinnar í leikhúsinu og fylgdist með starfi foreldra sinna. Neilson átti fremur erfitt uppdráttar í skóla og var rekinn úr leiklistarskóla í Ed- inborg eftir eitt ár. Hann lét þó ekki deigan síga, fór að skrifa útvarps- leikrit af miklum móð og náði þeim árangri að sigra í ungskáldakeppni sem BBC stóð fyrir. Anthony Neilson Hraði og spenna Fyrsta verkið sem vakti fyrir alvöru athygli á Anthony Neilson sem leik- ritaskáldi var leikritið Normal sem fjallar um fjöldamorðingjann Peter Kurten sem oft er nefndur Vamp- íran frá Dússeldorf. Hann var uppi í Þýskalandi á millistríðsárunum og myrti fjölda manns á hræðilegan hátt. Leikritið Normal var sett upp á Edin- borgarhátíðinni árið 1991 og frægð- arsól Neilson hefur skinið skært síðan. Árið 1993 sló hann tóninn fyrir bresku nýbylgjuna með verkinu Penetrator og skipaði sér þar með í flokk með leikskáldunum Söru Kane og Mark Ravenhill sem enfant terri- ble bresks leikhúss. Leikrit Neilsons eiga það flest sameiginlegt að vera hrá, gróf og hröð og ná oftar en ekki að koma áhorfendum í opna skjöldu. Hann hefur nú skrifað á þriðja tug leikrita fyrir svið og útvarp og vekja þau hvarvetna mikla athygli. Verkið The Censor sló í gegn á West End 1993 og vann til fjölmargra verðlauna og viðurkenninga, þ.á.m. Writer's Guild verðlaunanna víðfrægu. Krefjandi spurningar samtímans The Censor eða Ritskoðarinn var sett upp af leikhópnum Vér morðingjar á dögunum í Sjóminjasafninu í Reykja- vík en sami hópur kveður sér hljóðs á ný með The Penetrator. Penetrator var fyrst sett upp í Klink og Bank sumarið 2005 við góðan orðstír og fengu þá færri að sjá en vildu. Vegna mikillar eftispurnar var ákveðið að setja sýninguna upp aftur nú í sumar. Hugmyndin með sam- starfinu árið 2005 var sú að ungir leik- listarnemar fengju tækifæri til þess að vinna náið með ungu fólki sem hefði beint eða óbeint kynnst geðsjúk- dómum af eigin raun. Þátttakendur fræddust og deildu reynslu sinni sem virkir meðlimir í skapandi leikrænu ferli. Penetrator tekur á mörgum áleitnum spurningum samtíma okkar og .fjallar m.a. um geðhvarfa- svki. meðvirkni. einelti. stiórnun os stjórnleysi og kúgun. Allur ágóði af sýningunni rennur í nýstofnaðan styrktarsjóð leikhópsins Vér morð- ingja og Hugarafls fyrir ungt fólk á aldrinum 18-20 ára en sjóðurinn hefur það að markmiði að styrkja ungt fólk með geðræn vandamál til skapandi verkefna. Leikarar eru þeir Jörundur Ragnarsson, Stefán Hallur Stefánsson og Vignir Rafn Valþórs- son. Leikstjórn er í höndum Krist- ínar Eysteinsdóttur. Sýningar verða í Sjóminjasafni Reykjavíkur og er frumsýning áætluð 11. júlí kl. 21:00. _ , t P77iT W iT T^iT <? ÍCTÍHH www.bilamarkadurinn.is SmiBjuvegur 46-e s: 567-1800 (Kyj[L@£im PORSCHECAYMANS 02/06 Innflt. NÝR Leður, Navi, 19" 0.FL VOLVOS70 2,5 03/97 Ek.117 V.890,-Lán 600,kr 21 pr.mán T0Y. LANDCR 90 GX 33" 1/99 Ek.137 Sjálfsk. 1 Eigandi FIAT DUCAT0 HÚSBÍLL DfSEL 04/95 ek.105 þ.k Snyrtilegur FORDF250 Dlsei M/CAMPER Árg.02 Ek.91þ.km BMW M5 SHAWD0WLINE 05/99 Ek.119 TILB.3790,stgr. LÍN 6ET. FYLGT BMW M5 Shadowline 400+ HÖ Árg. 00 Ek.99þ.km Einn með öilu

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.