blaðið - 28.06.2006, Qupperneq 22
30 IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 blaöiö
SMÁ
borgarinn
SAMTÖK VAN-
TRÚAÐRA
Smáborgarinn er vantrúaður á allar
skýringarsem ganga út á það að ekki sá
vísindalega hægt að sanna tilvist guðs.
I Bandaríkjunum hefur harkalega verið
tekist á um hvort kenna ætti sköpun-
arsöguna samhliða þróunarkenningu
Darwins. Til að réttlæta þá skoðun
vísa sköpunarsinnar í ýmis vísindaleg
rök til að styðja mál sitt. Andstæðing-
ar þessara sjónarmiða grípa þá einnig
til vísindalegra raka til að afsanna þá
kenningu. Þannig eru tvær fylkingar
að keppast við að sanna eða afsanna
tilvist guðs. Smáborgaranum er nokk
sama hvort fólk trúir að Guð sé til eður
ei. Smáborgarinn telur aftur á móti að
trúin gegni mikilvægu hlutverki í nú-
tímanum.
Gikkurinn og byssan
Bæði sjónarmið falla um sjálf sig sök-
um þess að þau ganga þvert á afl trú-
arinnar sem er fyrst og fremst trú. Hug-
myndakerfi sem þróast hefur í gegnum
aldirnar og mótað vestræna heimspeki
og hugsun. Kennisetningar hafa verið
túlkaðar í gegnum aldirnar og ekkert
nema gott um það að segja. Margir
sækja styrk í trúna og hún getur verið
persónulegt leiðarstef án þess að gera
fólk kreddufullt og auðtrúa. Það er ekk-
ert að trúarbrögðum en það er ýmislegt
að fólki sem óhjákvæmilega túlkar þau.
öfug formerki
Samtökin Vantrú halda úti heimasíðu
bar sem rætt er opinskátt um trúmál.
I málflutningi vantrúarfólks kemur
ósjaldan fram að fátt sé heimskulegra
en að trúa á guð og öll vísindaleg rök
og skynsemisrök hnígi að hinu gagn-
stæða. Oft er þessi málflutningur sótt-
ur af svo miklu offorsi að halda mætti
að pennarnir væru innblásnir af vanheil-
ögum anda. Svo mikil er heiftin og það
sem meira er: Sannleikurinn er á bandi
hinna vantrúuðu. Vantrú er nefnilega
ekki samfélag trúlausra, þau eru ná-
kvæmlega samtök vantrúaðra, trúar-
samtök með öfugum formerkjum.
Það er sjálfsagt að takast á um hlutverk
trúarinnar í síbreytilegum heimi en
það er gjörsamlega tilgangslaust að fá
úr því skorið hvort guð sé til eða ekki.
Hvort sem hann er til eða ekki þá hefur
hugmyndin áhrif á fullt affólki, bæði til
góðs og ills.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Mynd Golli
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn.
Má myrkva Reykjavík?
„í stuttan, afmarkaðan tíma væri allt í lagi að prófa það.
Frekar er ég nú mótfallinn svona uppátækjum en lögregl-
an mun ekki setja sig upp á móti pessu svo fremi sem
önnur yfirvöld seu þvi sammála.“
Aðstandendur Alþjóðlegu kvikmyndahátlðarinnar sem haldin verður í Reykjavík í lok september hafa farið fram á að slökkt
verði á öllum götuljósum í borginni við upphaf hátíðarinnar.
Brautskráning Kennaraáskóla íslands
Á laugardaginn síðasta brautskráðust 565 kandídatar frá Kennaraháskóla íslands við
hátíðlega athöfn í Laugardalshöll. Úr grunndeild var brautskráður 481 nemandi og úr
framhaldsdeild 84 nemendur. Aldrei hafafleiri kandídatar verið brautskráðir í einufrá
skólanum. í ávarpi sínu gerði dr. Ólafur Proppé, rektor, lengingu kennaranáms og breyt-
ingar á starfsnámi við Kennaraháskólann að umrceðuefni.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt f reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aöeins nota einu sinni innan hvers n(u
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
6 8 4 7 2 9 1 3 5
2 7 9 5 3 1 6 4 8
1 3 5 6 4 8 2 7 9
7 2 3 8 1 4 9 5 6
4 9 1 2 5 6 7 8 3
5 6 8 9 7 3 4 1 2
8 4 2 1 6 5 3 9 7
9 1 6 3 8 7 5 2 4
3 5 7 4 9 2 8 6 1
6 8 4 7 2 9 1 3 5
2 7 9 5 3 1 6 4 8
1 3 5 6 4 8 2 7 9
7 2 3 8 1 4 9 5 6
4 9 1 2 5 6 7 8 3
5 6 8 9 7 3 4 1 2
8 4 2 1 6 5 3 9 7
9 1 6 3 8 7 5 2 4
3 5 7 4 9 2 8 6 1
eftir Jim Unger
Þau ætla að gista
HEYRST HEFUR...
Slúðrið á götum Reykjavík-
ur segir að Rökkurbarn-
um hafi verið lokað. Barinn
var opnað-
ur í kjölfar
lokunar á
Kaffi Aust-
u r s t r æ t i
en margir
svokallað-
ir ógæfu-
m e n n
vöndu komur sínar þangað.
Lalli Johns og fleiri sátu oft á
Rökkurbarnum á góðum síð-
kvöldum og skeggræddu menn
og málefni. Mikill missir mun
vera að barnum samkvæmt
heimildum og erfitt fyrir fasta-
gesti að finna annað eins at-
hvarf.
Eyjólfur Sæmundsson, bæj-
arfulltrúi Hafnarfjarðar,
rauk í gær af bæjarstjórnar-
fundi Hafn-
arfjarðar
vegna eitur-
efnaslyssins
á Eskifirði
en hann
er forstjóri
Vinnueftir-
lits ríkisins.
Ekki er vitað til þess að maður
hafi áður þurft að yfirgefa bæj-
arstjórnafund í Hafnarfirði
vegna neyðarástands.
Heyrst hefur að eftir að fjár-
svikamálið komst upp
hjá Tryggingastofnun ríkisins
s t r e y m i
m ú g u r
og marg-
m e n n i
þangað en
fréttatil-
kynningin
sem stofn-
unin sendi
frá sér var dálítið ruglandi. 1
fyrstu leit svo út sem einhver
góðhjartaður starfsmaður
Tryggingastofnunnar hefði
ekki haft hjarta í sér til þess
að segja nei við þá sem eru
þurfandi, heldur látið þá fá það
fé sem þeir báðu um. Ýmsir
höfðu orð á því að þarna væri
ekki um fjársvik að ræða held-
ur góðgerðastarfsemi sem ein-
hverskonar Hrói Höttur stæði
fyrir.
Hörkufjör verður í Banda-
ríkjunum á þjóðhátíðar-
deginum 4. júlí og ísland fer
ekki var-
hluta af
partíhald-
inu því
sendiráð
B a n d a -
ríkjanna
á íslandi
mun fagna
með látum. Þeir eru þegar
farnir að senda út boðskort og
má finna það á heimasíðu al-
þingismanns Vinstri grænna,
Ógmundar Jónssonar. Það
vekur þó athygli að á kortinu
má finna þau fyrirtæki sem
styrkja skemmtunina en þar
má meðal annars nefna Dom-
ino’s-Pizza og Seglagerðina
Ægi. Þá er bara spurning hvort
fyrrverandi forseti Bandaríkj-
anna kíki við ásamt Ólafi Ragn-
ari forseta og Dorrit eiginkonu
hans.
valur@bladid.net