blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 2
2 I FRÉTTZR ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaðið blaöiðHHi Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700 •www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Olíutankar í Örfirisey: Fer olían í Hvalfjörð? Borgarráð Reykjavíkur hefur sett á laggirnar starfshóp sem ætlað er að vinna áhættugrein- ingu og áhættumat vegna núverandi staðsetningar olíu- birgðastöðvarinnar í Orfirisey. Ennffemur er hópnum ætlað að vinna samsvarandi mat ásamt kostnaðargreiningu fyrir nýja staðsetningu, en rætt er um að flytja birgðastöðina í Hvalfjörð. Hópurinn verður skipaður Jón Viðari Matthíassyni, slökkviliðs- stjóra, Jóni Þorvaldssyni, frá Faxa- flóahöfnum, Ellý K. Guðmunds- dóttur fyrir Reykjavíkurborg og Gesti Guðjónssyni fýrir hönd olíufélaganna. Miðnesheiði: Aðalhliðinu lokað Aðalhliðinu inn á varnar- svæðið á Miðnesheiði var lokað í gær og mun öll umferð inn á svæðið fara um Grænáshliðið héðan í frá. Aðeins er liðlega ár liðið síðan hlið þetta var opnað eftir kostnaðarsamar fram- kvæmdir við það, sem námu um 132 milljónum króna. Tryggilegar var þá gengið frá girðingum og umbúnaði hliðsins, meðal annars með tilliti til hryðjuverka- ógnar, en eins voru byggð ný varðskýli og vegabréfaskrifstofa. Kærður fyrir frelsissvipt- ingu Ásgeir Þór Davíðsson, ásamt fimm öðrum mönnum, hefur verið kærður fyrir frelsis- sviptingu BlaM/MnarHugi Ásgeir Þór Davíðsson á Goldfinger: Kærðurfyrir frelsissviptingu ■ Innheimti leigu ■ Færðir á lögreglustöð ■ Áður átök á Bóhem Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Ég var bara að drekka með nokkrum strákum og við ákváðum að fara á Bóhem,“ segir Ásgeir Þór Davíðsson, oftast kenndur við Goldfinger, sem slapp úr varð- haldi lögreglunnar um fjögur í gær. Hann og fimm aðrir menn, sem hann hitti fyrr um kvöldið, hafa verið kærðir fyrir frelsissviptingu eftir að hafa skipt um lás á útidyra- hurð strippstaðarins Bóhem. Þeir voru handteknir um hálfþrjúleytið aðfaranótt mánudags en að sögn Ásgeirs mun sérsveitin hafa verið kölluð til við handtökuna. „Ég fór að röfla um vanskil á leigu,“ segir Ásgeir en hann heldur því fram að hann eigi húsnæðið sem Bóhem er í. Ásgeir fullyrði að hann hafi eignast það fyrir hálfum mánuði síðan. f kjölfarið hafi hann ákveðið að innheimta leiguna með þessum sérstæða hætti. Að sögn lögreglunnar fóru gestir að týnast út hægt og rólega þar til staðurinn var orðinn tómur. Um tvöleytið mun Ásgeir hafa skipt um læsingu á staðnum með þeim afleið- ingum að hringt var á lögregluna. Starfsfólk var þá inni á staðnum, bæði þjónar og dansarar. Lögreglan þurfti að brjóta niður hurðina með nýja lásnum og hand- tóku þeir sexmenningana. „Þetta var svolítið eins og í bíó- mynd,“ segir Ásgeir en sérsveitin var kölluð til sem og sex lögreglu- bílar til þess að handtaka þá. Allir voru þeir færðir niður á lögreglustöð þar sem þeir fengu að sofa úr sér og voru í kjölfarið yfir- heyrðir. Þeim var sleppt síðdegis í gær. Samkvæmt lögreglunni hafa þeir verið kærðir fyrir frelsissvipt- ingu en tveggja ára refsivist liggur við því broti. „Við sviptum engan frelsi," segir Ásgeir og neitar þessum ásökunum með öllu. Hann segir að aldrei hafi nokkur maður óskað eftir því að yfir- gefa staðinn og vel virðist hafa farið á með honum og barþjóninum. Ásgeir segist sjá eftir atburðinum og bætir við að hann sé nú ekki stoltur af gjörðum sínum. „Það versta var að sofa úr sér á óþægilegum stað,“ segir Ásgeir og hlær eftir snautlega nótt í hirslum lögreglunnar. Þetta mál mun ekki vera í fyrsta sinn sem Ásgeir er bendlaður við upphlaup á Bóhem en fyrir hálfu ári síðan réðust þrír ofbeldismenn á dyravörð staðarins sem eitt sinn vann hjá Ásgeiri. Sá maður sagði að Ásgeir hefði staðið á bak við árás- ina en aldrei hefur tekist að sanna það. Mennirnir náðust aldrei en dyravörðurinn sat uppi með brotna hönd. Hörður Jóhannesson yfirlögreglu- þjónn segir málið í rannsókn og ít- rekar hann ofbeldi hafi ekki verið beitt við meinta frelsissviptingu. Hann segir ásakanirnar alvarlega enda ekki heimilt að skipta um lás á fyrirtæki fyrirvaralaust og skerða þar með tekjumögleika þess. Á förnum vegi Eru íslendingar of feitir? Bergrún Ósk Jónsdóttir, nemi „Nei, ég held að það sé allt í lagi með holdafar íslendinganna." Inga Dóra Gunnarsdóttir, versunarstjóri „Alls ekki. Það er búin að vera allnokk- ur vitundarvakning og svo reddar íþróttaálfurinn restinni." Ester ísleifsdóttir, Kennari „Fólk þarf að huga meira að mataræð- inu. Maður á að borða hollan mat og hreyfa sig.“ Jóhanna Elíasdóttir, nemi „Já, mér finnst íslendingar vera að fitna. Sérstaklega tekur maður eftir því að yngri kynslóðin er að bæta á sig.“ Vera Knútsdóttir, nemi „Við erum að fara í svipaða átt og Bandaríkjamaðurinn. Gæti orðið mikið vandamál í framtíðinni ef við gætum okkar ekki.“ Varnarsamstarf: Fundur á morgun Næsti fundur samn- upplýsingum frá forsætisráðu- inganefnda íslands og neytinu fer Albert Jónsson, Bandaríkjanna um sendiherra, fyrir fyrir ís- varnarsamstarf ríkjanna lensku samninganefnd- verður haldinn í Washing- ^ jxflM inni en hún er skipuð ton, höfuðborg Bandaríkj- m—1 n 1 f fulltrúum úr forsætis-, anna, dagana 3. og 4. ágúst ■mamœtsmw utanríkis-, fjármála- og næstkomandi. Samkvæmt dómsmálaráðuneyti. MÝR VAU08TDBÁ ) Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600 www.transport.is • transport@transport.is 0 Heiöskírt Léttskýjað ■. A. Skýjaö Alskyjíið 22...:^ Rigning, lítilsháttar'~-“^ Hitining ST/i* Súlcl - Snjokoma . siydda Snjóéi ■' S Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló París Stokkhólmur Vín Þórshöfn JS&Á5L Á morgun Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.