blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 22
22 I BÖRN ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaðið Rafmagnsbílar fyrir börnin I verslunum Leikbæjar fæst gríðarlega gott úrval af margs konar leikföngum. í sumar er upplagt að festa kaup á rafmagnsbíl fyrir börnin en nú fást í fyrsta skipti á íslandi skemmtilegir rafmagnsbílar í fjölda- mörgum útgáfum sem börn frá tveggja ára aldri ráða vel við að keyra. Um er að ræða pandabirni og kanín- ur sem börnin klifra upp í og keyra með einföldum pedala og stýri. Einnig eru til bílar með svokölluðum foreldrafjarstýringum sem gera foreldrum kleift að grípa inn í ef borðstofuborðið er skyndilega í hættu. Bílarnir eru skemmtilega hannaðir og á viðráðanlegu verði. Umbun Mestu verðlaunin sem börnin fá eru athygli foreldranna, hrós ásamt ást og umhyggju. Sælgæti og leikföng eru ekki nauðsynleg þegar verið er að umbuna börnum. Stjörnugjöf getur líka verið sniðug til þess að viðhalda góðri hegðun eins og t.d. þegar barnið er duglegt að fara að sofa á réttum tíma eða tekur til í her- berginu sínu. Samkvæmni Þegar reglur hafa verið settar ætti ekki að víkja frá þeim til þess að lé- tta sér lífið. Ekki gefast upp til þess að létta þér lífið um stund. Barnið þarf að venjast því að reglur séu reglur. Foreldrar þurfa líka að gæta þess að vera samstíga í uppeldinu þannig að barnið fái sömu skilaboð frá báðum aðilum. Rútína Viðhaldið ákveðinni rútínu. Farið á fætur, hafið kvöldmat á sama tíma á hverju kvöldi og komið barninu í rúmið á sama tíma. Þegar búið er að setja ákveðinn ramma utan um daglega lífið þá er hægt að vera sveigjanlegur af og til. Agi Til þess að viðhalda ákveðnum aga þarf að leggja línurnar en foreldrar þurfa að hafa í huga að agi snýst ekki um hörku eða refsingar, hagi barnið sér illa. Því ætti frekar að setja ákveðnar reglur sem barnið skilur og gera því Ijóst að ekki verði vikið frá þessum reglum. Reglur Mörgum foreldrum finnst erfittt að halda uppi aga á heimilinum. Margir fá samviskubit þegar þörf er á að aga barnið en um um leið og barnið finnur að það hefur stjórnina í sínum höndum reynir það að ganga eins langt og það getur. Börnum líður líka mun betur þegar reglurnar á heimil- inu eru skýrar. Sparaðu á morgnanna Taktu til þá hluti sem fjölskyldan þarf að hafa me ferðis kvöldið áður. Settu ofan í leikskólatöskur, láttu börnin ganga frá skólatöskunum sínum og þ.h. Settu töskur og annað slíkt á ákveðinn stað og láttu fjölskyldumeðlimi vita hvar þeir finna dótið sitt og hvar þeir eiga að ganga frá því. Geymið þá hluti sem til þarf á kommóðu eða öðru nálægt útidyrunum eða hengdu upp nokkra snaga fyrir hvern og einn. Taktu frá tíma á hverju kvöldi þar sem þú gengur frá öllu því sem þarf að gera fyrir næsta dag. Eins og t.d ef það þarf að ganga frá því að fylla út eyðublöð og annað; Skipuleggið tíma síðdegis þar sem börnin gers heimaverkefnin sín og látið þau ekki draga j fram eftir kvöldi. Farðu tímanlega á fætur. Settu v hvert svefnherbergi og kenndu Vendu þig á að fara á fætur á same morgni. Fylgstu með veðurfrétt viðeigandi fatnað fyrir •aklukku í um á a á h kvöldin og hafðu til íjundaginn. Taktu til föt á alla fjölskylduna kvöldið áður og venj- ið eldri börnin á að gera slíkt hið sama. | Leggðu á borðið fyrir morgunmatinn kvöldið áöur. Undirbúðu nestið kvöldið áður. Oft þarfoð aðstoða feimin börn við að virkja félagslega hæfileika sína. Börn sem eru feimin eiga oft erf- itt með að blanda geði við önnur börn og verða gjarnan fyrir aðkasti. Þeim líður illa í nýju umhverfi og þurfa góðan tíma tií þess að aðlagast. Feimnu börnin eru oft svo hrædd um að verða fyrir höfnun að oft verð- ur það þeim ógerlegt að eiga eðlileg samskipti við önnur börn. Mörg þessara barna eru einmana þar sem þeim gengur illa að eignast vini og að stofna til kynna felur í sér hættu á höfnun og eru því fæst þeirra tilbúin til þess að taka þá áhættu. Með því að forðast samskipti við aðra viðhalda börnin hegðun sinni og félagshæfni þeirra hlýtur enga æfingu. Hvað geta foreldrarnir gert? Til að byrja með þurfa foreldrar að átta sig á því að barnið er feimið að eðlisfari og á erfitt með að finna sig í ókunnum aðstæðum. Til þess að hjálpa barninu er um að gera að bjóða skólafélögum í heimsókn og þá einhverjum sem líklegt er að barnið eigi samleið með. Það er um að gera að leita til kennara eða leikskólakenn- ara sem fylgjast með barninu á hverj- um degi og sér hvaða börn ná best til þess. Eins er gott að undirbúa barnið vel fyrir samkomur og annað slíkt. Kvíði barnsins minnkar ef það veit hvað er í vændum. Hvetja skal barnið til þess að tala um hvernig því líður og segja því sögur af eigin reynslu í svipuðum aðstæðum. Gerðu því grein fyrir því að allir séu einhvern tímann feimnir og að það sé ekkert óeðlilegt. Eins er hægt að fara í hlutverkal- eiki þar sem barnið getur ímyndað sér ákveðnar aðstæður og æft þannig samskiptahæfnina. Að hjálpa eldri börnum að yfir- stíga feimnina getur verið flókið. Til að byrja með er um að gera að hvetja börnin til þess að heilsa jafnöldrum sem þau umgangast reglulega og hafa þannig örlítið frumkvæði að samskiptum. Því oftar sem þetta er gert fer það að vera auðveldara fyrir barnið að hefja slík samskipti og er það fyrsta skrefið í rétta átt. Feimnin kemur snemma fram Svo virðist vera sem feimni sé að mörgu leiti genabundin og eru þetta eiginleikar sem ber snemma á í fari barnsins. Því er um að gera að vera virkur í að hjálpa barninu að vinna bug á þessu án þess þó að þröngva því til eins eða neins. Um leið og barnið tekur litlu skref- in verða samskipti við aðra smám saman auðveldari og ekki eins flókin og fráhrindandi. Því er um að gera að grípa snemma í taum- ana. Þó svo að erfitt geti verið að ,útrýma“ feimninni í fari barnsins þá er hægt að kenna samskipta- tækni svo að það standi ekki á gati þegar að félagslegum þáttum kemur. Þrátt fyrir þessa eiginleika eiga flest þessara barna ekki erfitt með að eiga eðlileg samskipti við þá sem eru þeim nánastir og inn- an fjölskyldunnar geta þau látið ljós sitt skína því er um að gera að virkja þá eiginleika sem barnið sýnir innan fjölskyldunar og hvet- jaþað áfram.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.