blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 8
8IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaðiö Afkoma fyrirtækja: fjármálafyrirtæki skila mest- um hagnaði hlutfallslega. Bankar högnuðust mest allra fyrirtækja Bankar og önnur fjármálafyrir- enda listans og var tap þeirra 45 tæki högnuðust mest allra af reglu- prósentum meira en sem nam legristarfsemisinniárið2004sam- tekjum þeirra. Tap þeirra er í kvæmt samantekt Hagstofunnar. algjörum sérflokki fyrir heila at- Hagnaður þeirra var 49 prósent vinnugrein eftir skilgreiningum af tekjum. Næst á Hagstofnunnar. Næstmest eftir þeim komu ,., «« .>< tap varð afrekstri hótela tryggingafélögin og veitingahúsa, tvö með hagnað * prósent, en þriðja sem nam 37 pró- og síðasta atvinnu- sentum af tekjum greinin til að vera og veitufyrirtæki : , rekin með tapi var land- með 31 prósents hagnað. búnaður með tæplega eins Fiskeldisfyrirtæki eru á hinum prósents tap. Flugumferð: Flugumferð tafðist vegna manneklu ■ Flugumferðarstjórar neyddir til að vinna áfram eftir að vakt lýkur Vegatollur: Bílum fækkar í miðborginni mbf.is Bílaumferð í miðborg Stokkhólms hefur dregist saman eftir að vegatollur var tekinn upp í miðborg inni fyrir hálfu ári. Að sögn borgaryfir valda hefur þessi tilraun tekist vel og leitt til þess að umferð hafi dreg- ist saman um 20% á helstu álagstímum og allt að 25% á öðrum tímum. ,'>47,,. Berlingske Tidende segir, að íbúar Stokkhólms liti þrengslaskattinn, eins og gjaldið er nefnt, jákvæð- ari augum nú en í upphafi. Sérstök at- kvæðagreiðsla verður í Stokkhólmi í september um hvort halda eigi áfram að inn- heimta gjaldið. Allar gerðir festinga fyrir palla og grindverk ð lager ÁrtnúH 17, 103 Reykjavík síml: 533 1334 fax-. 55B 0439 WWW.ISOl.IS BYGGINGAVINKLAR ..það lem fagmaðurinn nntar! Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net Verulegar truflanir urðu á flugþjón- ustu flugumferðarmiðstöðvarinnar í gær vegna manneklu Draga þurfti úr þjónustu flugvéla á leið yfir út- hafssvæði íslenskrar flugumferðar- stjórnar og þá þurftu vélar til og frá Islandi að fljúga undir hefðbundinni flughæð. Er þetta í annað skiptið á stuttum tíma sem álíka þjónusturask- anir eiga sér stað. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir menn hafa verið neydda til að vinna umfram vaktsamninga. Fámennt á vakt „Ég hef fengið mjög alvarlegar fréttir af mínu fólki sem er á vakt í dag. Það er verið að neyða menn til þess að vinna lengur en þeir áttu að gera samkvæmt vaktsamningi. Maður sem átti að fara heim um há- degi var skipað að vera lengur,“ segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Flugmálastjórn þurfti i gær að aLoftur Jóhanns- son, formaður Félags islenskra flugumferðarstjóra. skerða flugþjónustu á íslenska flug- umferðarsvæðinu vegna manneklu í annað skiptið á stuttum tíma. Sam- kvæmt sérstakri tilkynningu sem flugmálastjórn sendi flugfélögum í gær var varað við því að vélar til og frá íslandi gætu þurft að fljúga undir umbeðinni flughæð. Þá máttu vélar einnig búast við því að flug- leiðum yrði breytt og þjónusta yrði takmörkuð. Um 300 flugvélar fóru í gegnum ís- lenska flugstjórnarsvæðið í gær og er það nokkuð yfir meðaltali. Að sögn Lofts voru níu flugumferðarstjórar á vakt sem er frekar fámennt miðað við umferð. Hann segir Flugmálastjórn bregðast við þessu með því að neyða menn til að vinna lengur. „Þetta hefði ekki þurft að gerast. Flugmála- stjórn hefði getað séð fyrir að það yrði mannekla og brugðist við því. í stað þess eru þeir að neyða menn til aðvera lengur eftir að vöktum lýkur.“ Slæmáhrifáorðspor Loftur segir raskanir af þessu tagi vera nýjar á nálinni og í beinu sam~ hengi við hið nýja vaktakerfi sem Flugmálastjórn tók upp einhliða í síðastliðnum marsmánuði. „Það er mjög óvenjulegt að þurfa setja tak- markanir á þjónustu og umferð á ís- lenska flugumferðarsvæðinu vegna manneklu og hefur ekki gerst hér fyrr en nýja vaktafyrirkomulagið var tekið upp. Þetta hefur mjög slæm áhrif á orðspor þeirrar þjónustu sem við veitum.“ Eins og fram hefur komið urðu miklar tafir á millilandaflugi í síðustu viku vegna manneklu hjá flugumferðarstjórn. Þurftu vélar Ice- landair m.a. að fljúga undir umbeð- inni flughæð sem þýddi aukinn elds- neytiskostnað fyrir félagið. Ihugar það nú skaðabótmál á hendur ríkinu vegna þessa. Ræningi handtekinn í Hafnarfirði og annars leitað: Ræningi náðist eftir flóttatilraun Myndir/frikki Stökk út um glugga Ræninginn brá á það ráð að stökkva af annari hæð þegarhann læstist inni íherbergi. Hann missti tals- vert afgóssinu viö fallið. fífldjarfa Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Vopnað rán var framið á skrifstofu Bónusvídeó í Hafnarfirði rétt eftir hádegi í gær. Ræningi, sem talinn er vera á þrítugsaldri, var vopnaður bar- efli samkvæmtþví sem framkvæmdastjóri Bónusvídeós segir. Tvær stúlkur voru á skrifstofunni þar sem ránið var framið og tókst annarri þeirra að læsa ræningjann inni í herbergi eftir smávægi- leg átök. Skrifstofan er á annarri hæð húss- ins og tókst ræningjanum að brjóta glugga í herberginu og stökk hann niður á Lækjargötu. Fallið er talsvert en maðurinn meiddist lítið eða ekk- ert. Við fallið missti hann nokkuð af ránsfengnum. Tveir vegfarendur sáu hann stökkva niður og eltu hann uppi. Þeir náðu honum í bíl rétt hjá, en sá sem keyrði bílinn og beið ræn- ingjans komst í burtu. Lögreglan kom á staðinn örfáum mínútum síðar og handtók þjófinn. Hann var færður til yfirheyrslu en hann þarf að dúsa í fangageymslum lögreglunnar áfram. Hins mannsins er leitað og ekki er ljóst hverju var stolið. Framkvæmdarstjórinn segir að starfsfólki sé verulega brugðið og að stúlkurnar tvær hafi leitað aðstoðar á slysadeild eftir ránið.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.