blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 35

blaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 35
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 Sigur Rós 12 ára Sigur Rós stofnuð í ágúst 1994 af þeim Jóní Þór Birgissyni (Jónsa), Georgi Hólm, Ágústi Ævari Gunnarssyni. Sama dag og sveitin var stofnuð fæddist systir Jónsa sem hlaut nafnið Sigur- rós og þaðan er nafn hljómsveitarinnar komið. 15.000 manns Gríðarlegur fjöldi fólks lagði leið sírta á tónleika Sigur Rósar á sunnudagskvöld. Kátar stúlkur Gestir tón■ leikana voru á öllum aldri. Hljómsveitin Sigur Rós hefur undanfarna daga heillað lands- menn með sinni seiðandi tónlist og hafa þeir nú þegar tyllt niður tá á Isafirði og í Öxnadal. Á sunnudags- kvöldið bauð hljómsveitin íbúum höfuðborgarsvæðisins á stórtón- leika. Tónleikarnir þóttu takast með eindæmum vel. Gestir voru prúðir og þrátt fyrir mannfjöld- ann gekk umferð vel. Það var mik- il spenna og eftirvænting í loftinu þegar hljómsveitin Sigur Rós steig á svið á Klambratúni á en þá hafði stúlknahljómsveitin ljúfa Amiina leikið fyrir gesti góða stund. Veðrið iék við borgarbúa og talið er að um 15.000 manns hafi hlýtt á töfrandi tóna hljómsveitarinnar. Víða mátti sjá tár blika á hvarmi og gæsahúð- in hríslaðist upp eftir ótal bökum meðan seiðandi tónlistin ómaði um svæðið og hauströkkrið lagðist yfir borgina. Sigurður Guðmundsson hljómborðsleikari og söngvari í hljómsveitinni Hjálmum: „Égsá seinni hluta tónleikanna ogvar nokkuð hrifinn. Þetta var skemmtilegt upplifun, veðrið frábært og allt eins og best verður á kosið. Mérþótti fyrsta plata Sigur Rósar, Ágætis byrjun, undur og stórmerki þegar hún kom út og ég hlustaði töluvert á þá plötu. 1 seinni tíð hefur áhugi minn á tónlist Sigur Rósar dalað talsvert. Mérþætti gaman efráðamenn borgarinnar hefðu í huga að halda tónleika á túninu oftar. Éggæti sjálfur alveg hugsað mér að stíga á svið á Klambratúni við slíkar kringumstœður. Það var tnjög vel staðið að öllu og ótrúlega gaman að sjá svona margt fólk saman komið. “ Hulda Vilhjálmsdóttir listamaður: „Mér fannst þetta yndislegir tónleikar og það var einhver sér- stökfriðsæld sem lagðistyfir borgina þetta kvöld. Viðfjölskyldan skemmtum okkur prýðilega og það var gaman hversu vel þetta tókst allt saman. Það var eitthvað ótrúlega heillandi við það að vera stödd á Sigur Rósar-tónleikum á þessu fagra sumarkvöldi. Strákarnir mínir, átta og ellefu ára, voru líka mjög kátir með þetta allt saman. Sigur Rós leikur sérstaka tónlist sem hugnast mér að mörgu leyti vel. Amiina var á kvenlegri nótunum og þær voru ákafleva hugljúfar.“ Chili Peppers og Shakira í aðalhlut- verki á MTV í ár. Rokkbandið fjöruga Red Hot Chili Peppers og poppdívan Shakira hafa hlotið sjö tilnefningar hvor fyrir glæsileg myndbönd sín en þetta Hommi í líkama konu l Ana Matronic, söngkona hljóm- sveitarinnar Scissor Sisters, er sannfærð um að hún sé samkynhneigður karlmaður sem sé fangi í líkama konu. Hún var alin upp af samkyn- hneigðum föður og telur það hafa gert sér gott. „Ég komst í kynni við hina viðkvæmu hlið mína strax í barnæsku. Ég fell alls ekki inn í hið hefðbundna kvenhlutverk og ég hef alltaf verið innan um samkynhneigt fólk.“ Matronic segir New York frábæran stað fyrir samkynhneigða og hlakkar hún til að taka þátt í því lifandi samfélagi sem þar þrífst. var tilkynnt á sjónvarpsstöðinni MTV um helgina. Þau munu etja kappi við Christinu Aguilera, Mad- onnu og Panici. Madonna, Shakira og Aguilera eru einnig tilnefndar fyr- ir besta myndbandið í flokki kvenna ásamt þeim Kelly Clarkson og Nelly Furtado. Kappinn Nick Lachey hlaut tilnefn- ingu fyrir besta myndbandið H í flokki karla en það mynd- bandið við lagið What's - ~ ■ Left of Me fjallar um átak- anlegan skilnað hans Ife. og Jessicu Simpson. n ( þeim flokki eru ■ einnig James Blunt ■ og Kanye West, Tl H og Busta Rhymes útvaldir. Stórtónleikar Sigur Rósar á Klambratúni Seiðandi tónlist í snemmbúnu hau Tilfinningaflóð Tónleikar Sigur Rósar voru griðarlega vel JL heppnaðir jjfl m ' \ VK;. , m . ' JB ^ . .r., v 1*1 \ ; ' \ <* • ~?*r • •• " ■_ » /- ’ . *• .* , S; #' ' ' . 4. m.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.