blaðið - 01.08.2006, Qupperneq 6
6IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaðiö
Vestmannaeyjar:
Sveppir
í eyjum
Rúmlega tuttugu grömm af
hassi, amfetamíni og sveppum
fundust i heimahúsi í Vest-
mannaeyjum á föstudagskvöld.
Tveir menn voru handteknir í
kjölfarið og játuðu þeir að eiga
efnið. Mest var af hassinu og
segja mennirnir að efnin hafi
verið ætluð til eigin neyslu.
Mönnunum var sleppt eftir yfir-
heyrslur og málið telst upplýst.
Bólivía:
Forsetinn
nefbrotnaði
Evo Morales, forseti Bólivíu,
nefbrotnaði um helgina eftir
að hann lenti í samstuði við
markmann í knattspyrnuleik.
Morales verður á hliðarlínunni
næstu tvo daga og mun ekki
sinna embættisverkum forseta
á meðan.
Morales er mikill knattspyrnu-
áhugamaður og leikur gjarnan
með félögum sínum um helgar.
Meiðslin koma á slæmum tíma
fyrir Morales því að hann hugð-
ist taka þátt í knattspyrnuleik
næstkomandi sunnudag en í
þeim leik munu Lula da Silva,
forseti Brasilíu, og Hugo Chavez,
forseti Venesúela, meðal annarra
leika listir sínar. Efnt er til leiks-
ins í tilefni þess að stjórnarskrár-
þing Bólivíu er í þann mund að
hefja störf við endurskoðun á
stjórnarskrá landsins.
Deila hart um greiðslurnar
Deila hart um greiðslurnar
■ Miklu munar á greiðslum úr ríkissjóði til Hrafnistu og Sóltúns ■ Stofnunum mismunað
segir stjórnarformaður Hrafnistu ■ Krafist meiri þjónustu segir hjúkrunarforstjóri Sóltúns
Guðmundur Hallvarðsson:
Allir sitji við sama borð
„Á meðan Sóltún er að fá sautján
þúsund krónur á dag á hvern
einstakling og mjög há gjöld til
að mæta byggingarkostnaði þá
eru önnur hjúkrunarheimili að
fá þrettán þúsund. Mismununin
er algerlega óviðunandi í ljósi
þess frelsis sem Anna Birna vill
að viðhaft sé,“ segir Guðmundur
Hallvarðsson, stjórnarformaður
Hrafnistuheimilanna, í samtali
við Blaðið.
Guðmundur segir að verið sé
að mismuna öldrunarstofnunum
með ýmsum hætti. „Mismun-
unin lýsir sér í mismun á dag-
gjöldum og á greiðslum húsnæð-
iskostnaðar á hvern
fermeter. Aukþess
greiðir ríkið
til Sóltúns
allan lyfja-
kostnað
við þann
einstak-
ling ef
ígildi þess
kostnaðar
nemur
hærri upphæð en tuttugu og
einu daggjaldi. Slík greiðsla
þekkist ekki til annarra
hjúkrunarheimila.“
Að sögn Guðmundar er lítill
sem enginn munur á þessum
sjálfseignarstofnunum. „Það
er sama þjónusta á Sóltúni og
Hrafnistu. Eini munurinn er að
herbergin á Sóltúni eru aðeins
stærri en á Hrafnistu. Ef eitthvað
er þá er þjónustan betri á Hrafn-
istu, þar sem er leikfimisalur,
sundlaug og góð aðstaða fyrir
sjúkraþjálfun."
Guðmundur tekur ekki undir
að reynslan af Sóltúni hafi skipt
sköpum í viðhorfsbreytingu fyrir
bættum aðbúnaði eldri borgara
eins og Anna Birna heldur fram.
Nú vill ráðuneytið fara aðrar
leiðir en þessar hefðbundnu.
Stefnt er að því að fara sömu
leið og í Danmörku, það er að
einstaklingurinn njóti þess áfram
að vera einstaklingur, þó að hann
sé kominn inn á „hjúkrunarheim-
ili“, sem er þó með öðrum hætti
en nú er,“ segir Guðmundur og
segir að allir eigi að sitja við sama
borð. „Fyrir hönd Hrafnistuheim-
ilanna vil ég fá að setjast við borð
heilbrigðisráðherra og gera samn-
inga á sama grunni og Sóltún."
Anna Birna Jensdóttir:
Auknar kröfur gerðar til þjónustu
„í útboðinu á sínum tíma var
gert ráð fyrir að þetta hjúkrunar-
heimili okkar yrði með veikara
fólk heldur en almennt gerist á
íslenskum hjúkrunarheimilum.
Raunin varð sú að við tókum við
fólki sem átti ekki innangengt
inn á önnur hjúkrunarheimili,"
segir Anna Birna Jensdóttir,
framkvæmdastjóri Öldungs og
hjúkrunarforstjóri á Sóltúni.
„Daggjöld eru greidd í sam-
ræmi við hjúkrunarþyngd og
daggjöldin okkar miðast við þessi
verkefni. Að þessu leyti er því
ekki verið að mismuna hjúkrun-
arheimilum. Sömu lögmál gilda
inni á sjúkrahúsum, þar sem legu-
dagurinn á gjörgæslu er til dæmis
mun dýrari en á akút lyfjadeild,“
segir Anna Birna.
Anna Birna segist spyrja hví
Hrafnista hafi á sínum tíma hætt
við að bjóða í verkefnið „Hjúkr-
unarheimili- einkaframkvæmd“.
„Mér finnst það liggja í augum
uppi að þeim líkaði ekki þau skil-
yrði sem voru sett. Eitt atriði sem
má ekki gleyma í þessari umræðu
er að mikill mismunur er á okkur
og hjúkrunarheimili Hkt og Hrafn-
istu. Við ráðum nánast engu
hverjir koma inn til okkar, öfugt
við Hrafnistu sem getur valið og
hafnað.“
Að sögn Önnu Birnu hafa
kröfur aukist í þessum mála-
flokki eftir að Sóltún tók til starfa,
hvað varðar aðbúnað og þjónustu.
„Búið er að breyta viðhorfinu. Þar
ber að hrósa ríkisstjórninni sem
stóð fyrir Sóltúns-útboðinu. Við
buðum í verkefnið og svo er verið
að skamma okkur fyrir það eitt
að vanda okkur að framfylgja
gerðum samningi. Ég botna
ekkert í slíkri röksemdafærslu,
en Guðmundur virðist ekki geta
fjallað um sitt eigið heimili, án
þess að fjalla um okkar líka.“
Anna Birna fagnar því að Hrafn-
ista hafi með nýrri álmu sinni,
verið að færast nær þeim megin-
hugmyndum sem Sóltún byggir
á. „Þar eru ein-
staklingsher-
bergi, betri
þjónusta og
aðbúnaður
en áður. Þeir
hafaverið
að færa sig
nær nútíma-
kröfum og
mannskiln-
ingi.“
n
Þar sem gæðagleraugu...
....kosta minna
Sólgleraugu
fyrir konur
og karla
Líklega hlýlegasta
gleraugnaverslun
norðan Alpafjalla
Reykavíkurvegi 22
220 Hafnarfírði
565-5970
www.sjonarholl. is
íranar hefja málverndarátak:
Banna málslettur
Mahmoud Ahmadinejad, for-
seti Irans, hefur gefið út tilskipun
sem bannar landsmönnum að
nota erlendar málslettur. For-
setinn skipaði á dögunum þeim
ríkisstofnunum sem sinna menn-
ingarmálum að gefa út lista yfir
persnesk orð sem landsmenn eiga
í nota stað erlendra orða. Til að
mynda er bannað að nota ítalska
orðið „pizza“ en í stað þess eru ír-
anar hvattir til þess að nota pers-
neskt orð sem merkir „teygjanlegt
brauð.”
í samtarfi við ríkisstjórn lands-
ins hafa menningarmálastofn-
anir gefið út lista yfir tvö þúsund
orð sem hægt er að nota í stað er-
lendra slettna. Flest orðin sem rík-
isstjórnin hefur horn í síðu koma
fransforseti Margir telja til séu orð á persnesku um allt sem er hugsað á jörðu.
úr evrópskum tungumálum, en ískum slettum þar sem að Kóran-
hún hefur minni áhyggjur af arab- inn er skrifaður á þeirri tungu.