blaðið - 01.08.2006, Page 14

blaðið - 01.08.2006, Page 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson Fréttastjóri: Brynjólfur Þór Guðmundsson Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson Lög og regla Löggæslumál orðið æ fyrirferðarmeiri í opinberri umræðu að undan- förnu. Stjórnskipan lögreglunnar hefur verið til endurskoðunar undan- farin ár en einnig hefur mun meira verið rætt um það hvernig hún sé í stakk búin til þess að bregðast við nýjum aðstæðum og horfa menn þá einkum til skipulagðrar glæpastarfsemi, hugsanlegrar hryðjuverka- hagttu og efnahagsbrota af áður óþekktri stærðargráðu í takt við öran vöxt íslensks viðskiptalífs undanfarin ár. » Síðustu dægrin hafa menn þó einkum rætt hvernig bregðast megi við auknum fantaskap í samfélaginu, hvort heldur ræðir um ökufanta eða fanta, sem fara um miðbæinn með fólsku og ofstopa. Slíkt virðingarleysi gagnvart lögum og reglu er virðingaleysi gagnvart samborgurunum öllum. Ökuníðingurinn auðsýnir refsivert skeytingar- leysi um líf og limi samferðamannanna. Áflogahundurinn er svo annað- hvort fífl eða ómenni, sem gerir sér ekki grein fyrir afleiðingum gerða sinna eða stendur hjartanlega á sama um þær. Fyllilega hlýtur að koma tíl álita að herða á refsingum fyrir slíkt athæfi. En hér er um dýpri meinsemd að ræða en svo, að henni verði haldið í skefjum með strangari viðurlögum. Þessi brot varða nefnilega miklu fleiri en aðeins þá sem eru fórnarlömb fantanna. Þjóðfélagið allt geldur fyrir þegar menn hætta sér ekki niður í bæ af ótta við að þar fari drukknir ribbaldar og amfetamínsberserkir sínu fram. Eða þegar um götur og vegi aka menn á ofsahraða, sem treysta á lukkuna og eigin óskeikulleik um að enginn verði á vegi þeirra. Hér þarf að verða hugarfarsbreyting. Bæði hjá borgurum, stjórn- völdum og löggæslu. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, vék að því í viðtali í gær, að rétt væri að horfa til þeirra aðferða, sem Rudy Gi- uliani og William Bratton notuðu til þess að hreinsa til í New York borg og snarlækka glæpatíðni á nokkrum árum. Vafalaust má nota þær með góðum árangri í höfuðborginni, en þær einar munu ekki duga til þess að koma á þeirri hugarfarsbreytingu, sem nauðsynleg er. Þar þurfa for- eldrar og kennarar að koma að, ekki aðeins sem uppalendur, heldur líka sem fyrirmyndir. Eins þarf samstarf atvinnulífs og hins opinbera, þvi bætt umhverfi er ekki síður vænlegt til árangurs en boð og bönn. Umfram allt þarf þó einhver að taka forystu í þessum efnum. Þar mun augljóslega reyna á talsvert á hina nýju borgarstjórn, en ekki síður munu augu manna í auknum mæli beinast að Stefáni Eiríkissyni, hinum nýja lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Nú er þörf og nú er lag. Það tæki- færi má ekki fara forgörðum. Andrés Magnússonxxx Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: Islandspóstur HÚSBYGGJANDANS 14 I ÁLIT ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaöiö f>’ (T ? I é & Tóirn'i LAbiiiMU TÓK KMHSKi ekkíallt ?ptír Wl ^ 'ÍN 'a mEmn ZÍKiM,ÍS1AWP9 SbLmSiö ŒRVU V<-RJL»tt«N BYLTíHZU oC, Vol v!W ÓCtPSLfGfl Ci?« 06 e**TA ar etEPt Óbyggðirnar „Óbyggðirnar kalla“, sungu þeir KK og Magnús Eiríksson í einu besta og vinsælasta dægurlagi síðustu ára. Það eru orði að sönnu. Um helgina fór ég ríðandi inn á hálendi Islands, upp með Þjórsá, í árlegri hestaferð með bræðrum mínum, frændum og vinum. Útreiðar og ferðlalög um óbyggðir og hálendi Islands eru bókstaflega óviðjafnaleg lífsreynsla. Þögnin og alkyrrðin eru yfirþyrmandi og undraverð. Á baki hestsins í miðjum óbyggðunum reikar hugurinn til þeirrar vaxandi og almennu um- ræðu sem stendur um náttúruvernd og umhverfismál. Valdaskeið Framsóknarflokksins Það var ekki fyrr en eftir að nýtt valdaskeið Framsóknarflokksins hófst árið 1995 að kraftur færðist í umræðuna um verndun umhverfis- ins og virkjun fallvatnanna. Ekki út af áherslum Framsóknar á málefni umhverfisins, heldur þvert á móti vegna fálætis flokksins í garð þeirra mála. Á meðan framsóknarmennirnir komu sér fyrir í ráðuneytunum var ljóst að allt kapp yrði lagt á stór- virkjanir og stórbrotna uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Fljótlega kom á daginn að engin heilstæð áætlun var til staðar um hvað skyldi virkja og hvað vernda og engin á leiðinni. Markmiðið var, samkvæmt Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra á Iðn- þingi, að tífalda framleiðsluna á áli þannig að við næðum milljón tonna markinu innan tíðar. Klippt & skorið Forsíða OV um helgina var undirlögð af frú Dorrit Moussaiev, forsetafrú og nýbökuðum ríkisborgara lýðveld- isins. Var það vendilega merkt „einkaviðtal" svo ekki færi fram hjá neinum að um stórvið- burð væri að ræða. Nú er það raunar svo að einkaviðtöl eru þannig merkt til aðgreiningar frá viðtölum á blaða- mannafundum eða þegar viðtöl eru seld til fleiri en eins fjölmið- ils, sem tæpast eru nokkur dæmi um hér á landi. En þegar viðtallð var skoðað kom á daginn að einkaviðtalið mikla voru aðeins nokkrar setningar, sem hafðar voru eftir henni um að forsetafrúnni myndi hugnast að eldast á íslandi. Heldur þunnur þrettándi. Þetta er kjarninn í byggða- og atvinnustefnu ríkisstjórna þeirra Davfðs Oddssonar og Halldórs Ás- grímssonar. Nú Geirs H. og Guðna. Því verður aldrei neitað að inntak valdatíma þessara flokka var veruleg og óafturkræf uppbygging álverk- smiðja og stórra virkjana. Síðan er hægt að fella sig við það eða harma áherslurnar. Afleiðingarnar af stór- iðjuáratugnum eru margvíslegar, en felast fyrst og fremst í glötuðum Björgvin G. Sigurðsson tækifærum. I stað þess að fjárfesta í hugviti og menntun fórum við hina leiðina undir leiðsögn Framsóknar- flokksins. Stóriðjuleiðina. Grænir guðir - og hægri menn Inntak umhverfismála er ekki bundið við harkalega vinstri stefnu. Þó sú staðreynd liggi fyrir að hægri menn kæra sig yfirleitt lítið um nátt- túrunverndarmál. Það blasir við ef litið er til systurflokkanna Sjálfstæð- isflokksins á Islandi og Repúblíkana- flokksins í Bandaríkjunum. Innan þessara tveggja hægri flokka eiga umhverfisverndarsjónarmið lítinn Tónleikar Sigur Rósar á Klambratúni þóttu takast með eindæmum vel og mátti heyra yfirskilvitlega tóna sveitar- innar um alla Reykjavík. Páll Ásgeir Ásgeirs- son skrifar á blogg sinn (malbein.net/pallasgeir) ágæta tónleikagagnrýni: Þettavarskemmtileg stemningogsennilega hafa ekki áðurkomið samansvomargirá Klambratúni frá þvi að það vargertað útivistarsvæði fyrirum 40 árum en gerð þess er reyndar ekki lokið enn. Ég hef aldrei almennilega náð sambandi við þessa erkitónlistkrúttkynslóðarinnarengetsvosem alveg sett upp lopahúfu ágóðum degi og horft dreymandi og álfslega útí loftið meðan ofur- hægir spiladósartónar líðaumloftið.Égheldað kalla hljómgrunn. Varlega til orða tekið. Á þessu eru þó vissulega heiðar- legar undantekningar og nú gerast guðirnir grænir. Til dæmis um það er grein Illuga Gunnarssonar hag- fræðings og hægrimanns í Lesbók Moggans um helgina. I ágætri grein skrifar Illugi með trúverðugum hætti um náttúru- verndarmál í víðum skilningi út frá sjónarhóli hægrimannsins. Þessi fyr- sta alvarlega tilraun hægrimanns á Islandi til að fjalla um náttúruvernd- armál er fagnaðarefni og færir um- ræðuna um þau á hærra plan og frá jaðrinum. Þó niðurstaðan sé nokkuð skýr; hagvöxturinn ræður för en ekki óspillt náttúra. Þó register Sjálfstæðisfloksins sé afar dapurlegt í umhverfismálum þá þarf það ekki að vísa veginn til framtíðar eða vera hinn endanlegi dómur um skeytingarleysi flokksins í þessum málum. Því boðar grein 111- uga vonandi betri tíð í þeim efnum. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn sér að verða stjórntækur með öðrum en Framsókn á næstu árum á hann hinsvegar mikla vinnu óunna við að koma sér upp boðlegri stefnu í um- hverfismálum þar sem hann er eitt stórt pass. „Hik þú veist er sama og tap“, söng Ellen Kristjánsdóttir í öðru frábæru lagi eftir Magnús Eiríksson. Það á einnig vel við nú. Flokkarnir sem hika eitt augnablik við að svara kalli tímans í náttúruverndarmálum tapa. Svoeinfalt er það. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í þegar verður gerð kvikmynd við tónlist afþessu tagiþá muni hún fjalla um átakanlega sorglegt liflitillar fatiaðrarhafmeyjar sem getur ekki syntnemai hringi. Myndin geristi angurværum draumi neðansjávarog ersýndmjög mjög hægt. Klipparl les í Morgunblaðinu f gær, að bjartsýni borgi sig. Er þar í heilsudálki fjallað um hvernig bjartsýnum er síður hættvið hjartaáföllum samkvæmt einhverjum könnunum og fylgja uppástungur um hvernig hún sé best ræktuð, t.d. með því að fara á nota- leg kaffihús. Með fylgdi mynd, sem tekin var af ungu og nánast parísku pari á stéttinni á Cafá Paris, hann með alpahúfu og gáfusvip, en hún á kápu með rauðan varalit. Og þarna ræktuðu þau heilsuna með kaffi, kóki og sígarettu! andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.