blaðið - 01.08.2006, Page 24

blaðið - 01.08.2006, Page 24
24 I BÖRN ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaöið Stjúpfjölskyldur Fjölskyldufyrirkomulagið getur verið afar flókið og því þarfað taka sér tíma í að rækta sambandið við alla aðila. Fjölskyldur á fslandi eru margar hverjar samsettar enda ekki að furða þegar stór hluti hjónabanda endar með skilnaði. Það er ekki óalgengt að fólk sem tekur saman eigi bæði börn úr fyrri samböndum og getur verið erfitt að sameina fjölskyldur svo að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Hlut- verk stjúpforeldra getur verið bæði erfitt og flókið og þá sérstaklega sam- skipti við þau stjúpbörn sem eru kom- in á ákveðinn aldur og eiga erfitt með að sætta sig við breytinguna. Innan nýju fjölskyldunnar þurfa því allir að- ilar að vera meðvitaðir um tilfinning- ar sínar og ætti að reyna að hafa sam- skiptin opinn og gefa öllum færi á að tjá sig varðandi nýja fyrirkomulagið. Reglurnar á heimilinu breytast gjarnan með tilkomu nýs maka og þurfa stjúpforeldrar og börn að læra inn á hvert annað og taka tillit til mis- munandi óska. Eins getur verið erfitt fyrir börn að eignast stjúpsystkini og þarf að gefa þeim góðan tíma f að kynnast hvert öðru. Samskipti innan samsettrar fjölskyldu fara að mestu leyti eftir því hvernig fyrirkomulagi á heimilinu er háttað. Stundum er það þannig að börn beggja aðila búa að staðaldri hjá þeim og þvf þarf jafnvel að sameina stór heimili. Ef börn annars makans búa á heimilinu þarf að gæta þess að þau börn sem búa hjá hinu foreldrinu fái engu að síður næga athygli og finni að þau séu alltaf velkominn inn á heimil- ið og að það sé líka þeirra heimili. Tilfinningar Verið meðvituð um tilfinningar ykkar. Stjúpforeldrar setja sig gjarn- an undir þá pressu að elska börn nýja makans sem sín eigin frá byrjun og fá mikið samviskubit ef tilfinningarn- ar eru ekki eins og ætla mætti. Stað- reyndin er hins vegar sú að það getur reynst erfitt að bera sömu tilfinning- ar til stjúpbarna sinna og eigin barna. Þá er aðallega verið að tala þau stjúp- börn sem nýi makinn hefur ekki tek- ið þátt í að ala upp frá því barnið var ungt. Sömu sögu má segja um barnið sem ber ekki sömu tfifinningar til stjúpforeldra sinna og foreldra. Að sætta sig við þessar tilfinningar getur létt ákveðinni pressu af öllum og er þá jafnvel auðveldara að þróa með sér tilfinningar í garð barnsins. Þeir sem eiga bæði börn og stjúp- börn geta átt í mikilli togstreitu á milli þess að sinna þörfum barnanna sinna og stjúpbarna og flestir reyna að gera sitt besta svo að enginn verði útundan eða upplifi sig afskiptan. Stjúpmömmur Rannsóknir hafa sýnt fram á að hlutverk stjúpmæðra getur verið erf- iðara að taka að sér en hlutverk stjúp- feðra. Ástæðan fyrir þessu er að oftar en ekki eyða mæður meiri tíma með börnunum en feður þó að þetta sé að breytast. Samfélagið gerir jafnvel þær kröfur að til kvenna að þær eigi að finna sig í foreldrahlutverkinu án þess að það vefjist fyrir þeim. Konum getur reynst erfitt að finna sig í stjúp- mæðrahlutverkinu og sérstaklega þeim sem eiga ekki börn sjálfar. Fyrir barnlausar stjúpmæður getur hin nýtilkomna ábyrgð orðið gífur- leg. Þær þurfa að gæta þess að fá eins mikla aðstoð og þær geta frá maka sín- um og þurfa að fá sinn tíma í kynnast barninu og venjum þess. Stjúppabbar Algengara er að stjúpfaðirinn flytji inn til nýja makans og barnanna. Börn hans úr fyrra hjónabandi búa oftar hjá móður sinni og er þá hætta á því að stjúpfaðirinn upplifi sig sem svikahrapp þar sem hann sér jafnvel mun meira af stjúpbörnunum en sín- um eigin. Því geta fylgt flóknar tilfinn- ingar eins og samviskubit og eftirsjá og þarf að gæta þess að ræða þessar tilfinningar sem og að vera duglegur að rækta sambandið við eigin börn. Þau þurfa að finna fyrir því að hið nýja heimili föðurins sé líka þeirra. Að láta fyrirkomulagið ganga upp Til þess að láta hið nýja fyrirkomu- lag ganga upp er um að gera að hafa raunhæfar væntingar til sambands- ins og nýja fjölskyldulífsins og hafa eftirfarandi í huga: « Best er að setja skýrar reglur ásamt makanum hvað varðar heimil- ið og uppeldið svo að ekki komi upp ágreiningur. • Reyndu að eyða tíma með stjúp- börnum þínum án þess að makinn sé með og hafðu það í huga að það tekur tíma að byggja upp samband. • Þróaðu sambandið við stjúpbörn- in áður en þú ferð að aga þau og taka að þér foreldrahlutverkið af fullum krafti. • Reyndu að taka neikvæðar til- finningar stjúpbarna þinna ekki of persónulega. Það eru meiri líkur á því að bamið eigi erfitt með að sætta sig breytinguna heldur en að því sé í nöp við þig persónulega. • Hvettu börnin til að rækta sam bandið við báða foreldra sína. Þetta sýnir þeim að þú virðir það samband og sért ekki að reyna að koma I stað- inn fyrir einn eða neinn. • Hugsaðu vel um sjálfan þig og reyndu að uppfylla þarfir þínar og makans. ... e/ns og náttúran ætlaði! Mikið í húfi! Rannsóknir hafa leitt í Ijós að upphafsaldur áfengisneyslu hefur mikil áhrif á notkun og misnotkun áfengis síðar á ævinni. Því yngri sem börnin eru þegar þau byrja að neyta áfengis þeim mun meira drekka þau síðar á ævinni og líkur á misnotkun aukast. Dæmi 1 19 ára ungmenni sem byrja að drekka 13 ára drekka næstum tvöfalt meira en þau sem byrja að neyta áfengis 17 ára gömul. <1> Dæmi 2 Líkur á misnotkun áfengis á fullorðinsaldri eru 40% hjá unglingum sem byrja að neyta áfengis 15 ára, 25% hjá þeim sem byrja 17 ára og 10% hjá þeim sem byrja eftir tvítugt. <2> Lægri byrjunaraldur - meiri heildarneysla 13 ára 14 ára 15 ára 16 ára 17 ára 18 ára 19 ára Byrjunaraldur < 13 ára 13 ára 14 ára 15-16 ára 17-19 ára Byrjunaraldurin Dæmi 3 Viðhorf foreldra til upphafsaldurs áfengisneyslu hafa mikil áhrif á neyslu barna. Börn og ungmenni foreldra sem veita börnum sínum oft áfengi drekka um það bil þrefalt meira en börn sem fá aldrei áfengi hjá foreldrum sínum. ÉG ætla að bíða er landsverkefni í fovörnum sem varð til í samstarfi fjölmargra félagasamtaka sem stóðu að Vímuvarnaviku 2005. Vímuvarnavikan var í umsjá Samstarfs um forvarnir, en þau samtök sem komu að undirbúningi og framkvæmd vikunnar voru: Bandalag ísl. skáta, Brautin - bindindisfél ökumanna, Félag íslenskra æskulýðs- og tómstundafulltrúa, FRÆ, Heimili og skóli, lOGT-bindindssamtökin, íþrótta- og Ólympíusamband íslands, ÍUT-forvarnir, KFUM-K, Krabbameinsfélag Rvíkur, Kvenfélagasamband íslands, Lionshreyfingin (Lions-Quest), SAMFÉS, Samtökskólamana um bindindisfræðslu, Ungmennafélag íslands og Vímulaus æska/Foreldrahús. Eftirtaldir aðilar styrkja birtingu þessarar auglýsingar ó>eGo Ijgife Ódýrt aldaneyti ♦ Ávtnmngur' VISA PÓSTURINN wwwposluris ttmm CASIO VlN^BÚÐ Salka E3JŒSI svait) - knr ITT ^HÚSGAGN AVERSLUN NOROtlRMIÓI K

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.