blaðið - 01.08.2006, Qupperneq 39
blaöið ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006
FÓLKi 39
Nýtt lag með Bríeti Sunnu komið í spilun:
Ung og upprenn-
andi kántrískvís
Platan er að verða tilbúin,
ég er búin að syngja inn
öll lögin og nú er bara
verið að fínpússa hana
en hún kemur ekki fyrr
en í haust,“ segir Bríet Sunna Valdi-
marsdóttir sem fangaði hug og
hjörtu Islendinga í Idol stjörnuleit
og náði alla leið í 3. sætið. Eftir Idol
stjörnuleit hefur Bríet Sunna haft í
nógu að snúast. Með því að vinna
við gerð sinnar fyrstu plötu hefur
hún skemmt vítt og breitt um landið
og notið mikilla vinsælda hvar sem
hún kemur. Lagið sem nú er að
koma í spilun með Bríeti Sunnu
heitir Bara ef þú kemur með. Lagið
er erlent og var upprunalega flutt af
söngkonunni Lee Ann Womack en
íslenskur texti er eftir Stefán Hilm-
arsson sem syngur lagið með Bríeti
Sunnu. Þeim tekst vel upp með lagið
enda tveir frábærir tónlistamenn
hér á ferð.
„Lagið sem komið er í spilun er
svona kántrípopp. Þetta var eigin-
lega meira kántrí áður en íslenski
textinn kom. Svo þegar Stebbi var
búinn að semja textann og syngja
þetta með mér varð þetta eitthvað
örlítið poppaðra en við bjuggumst
við í fyrstu. Útkoman er hins veg-
ar mjög góð og ég er mjög ánægð
með þetta,“ segir Bríet sem er mjög
ánægð í tónlistargeiranum.
Óskar Páll stýrir upptökum
Einn af færustu upptökustjór-
um landsins, Óskar Páll Sveinsson,
stýrir upptökum á plötunni. Óskar
Páll hefur starfað um árabil við upp-
tökur í Bretlandi en flutti nýlega
aftur heim. Hljóðfæraleikarnir á
plötunni eru Jóhann Hjörleifsson
trommari, Guðmundur Péturson
gítarleikari, Þórir Úlfarsson pianó-
leikari og Valdimar Kolbeinn Krist-
insson bassaleikari. Það má því
með sanni segja að einvala lið komi
að plötunni og eru hljóðfæraleikar-
arnir meðal þeirra bestu á landinu.
Verður í Galtalæk
Aðdáendur Bríetar geta tekið
gleði sína því sunnudaginn 6. ágúst
mun hún skemmta gestum á Fjöl-
SMÁAUGLÝ SINGAR
3103733
blaðiöa
SMAAUGLYSINGARSBLADID.NET
skylduhátíðinni í Galtalæk. Bríet
Sunna er ein af fjölmörgum tónlista-
mönnum sem mun skemmta í Galta-
læk um verslunarmannahelgina, en
aðrir sem munu koma fram þar eru
t.d. Stuðmenn og Birgitta, Sumar-
gleðin, Papar, Snorri og Nylon svo
einhverjir séu nefndir. „Það verður
brjálað stuð í Galtalæk og ég mun
taka einhver lög af nýju plötunni í
bland við eitthvað úr idolinu," segir
Bríet Sunna.
kristin@bladid.net
Myndarleg Bríet Surma söng sig inn í
hug og hjörtu Islendinga i Idolinu og hefur
nú lokið við aö syngja inn á nýja plötu.
▲
fjÉífc UTSALA
ERUM ENN AÐ BÆTA VID VÖRUM
Fatnaður á alla fjölskylduna í tugþúsundatali fýrir spott-prís
Jakkaföt - Stakir jakkar - Frakkar - Buxur - Skyrtur - Bindi
Bolir Peysur - Kápur - Blússur - Pils - Kjólar - Toppar - Sokkar
Hanskar - Treflar - Vettlingar - Húfur - Nærfatnaður á alla
ÍÍÓÉ fjölskylduna - Sængurföt - Lök og handklæði
.......................
Fyllið
fataskápinn
fyrir
smápening!
Næg
Opið: Virka daga 11-19
Laugardaga og sunnudaga 12-18
bílastæði
/T ítítii fmm
m m
ABAKKI 9