blaðið - 19.08.2006, Síða 2
2IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 19.ÁGÚST2006 blaðið
Ránstilraun:
Reynt að ræna
ferðamenn
Tveir ferðamenn komust naum-
lega undan ránstilraun nærri
flugvelli Reykjavíkur
aðfaranótt
föstudags.
Ferðamenn-
irnir, sem eru
þýskir, mættu
tveimur
mönnum sem voru
vopnaðir hníf. Glöggur vegfar-
andi á bíl sá ferðalangana, kom
þeim til hjálpar og ók þeim á BSl.
Þaðan hélt fólkið út á land i gær-
morgun. Lögreglan telur mildi að
fólkið slapp svona vel.
Þjófnaður:
Ungmenni
stálu veski
Þrjú ungmenni eru grunuð um
þjófnað á veitingastað á Höfða síð-
asta fimmtudagskvöld. Þau talin
hafa tekið veski sem kona átti
inni á veitingastaðnum. f veskinu
voru 20 þúsund krónur í pen-
ingum, kreditkort og ávisanir.
Auk þessa munu ungmennin
hafa stungið af án þess að greiða
fjögur þúsund króna reikning
sem þau höfðu snætt fyrir.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Drukkinn danskur ferðalangur var
handtekinn þegar flugvél Icelandair
lenti á Kastrup-flugvelli við Kaup-
mannahöfn á fimmtudag. Maður-
inn hafði þá áreitt íslenskar stúlkur
sem voru meðal farþega og barið
þær tvívegis.
„Við reyndum að hunsa manninn
til að byrja með,“ segir Sigrún Ás-
geirsdóttir, sautján ára framhalds-
skólanemi, sem lenti ásamt þremur
vinkonum sínum í danska flug-
dólgnum. Hann var draugfullur að
sögn Sigrúnar og áreitti stúlkurnar í
sífellu. Sigrún var ásamt vinkonum
sínum á leið til Kaupmannahafnar
þar sem þær ætluðu að eiga náðuga
helgi og versla.
„Hann lamdi vinkonu mína í mag-
ann þegar við vildum ekki tala við
hann,“ segir Sigrún. Stúlkurnar
höfðu þá reynt að hunsa manninn
en hann lét sér ekki segjast við það.
Sigrún segir að sér og vinkonum
sínum hafi brugðið þegar maðurinn
sló eina þeirra en að höggið hafi þó
Stúlkur áreittar af dönskum
dólgi Sigrún Asgeirsdóttir hægra
megin og Andrea Víglundsdóttir
lentu í dönskum flugdólgi ásamt
tveimur vinkonum sínum.
ekki verið alvarlegt. í stað þess að
segja flugáhöfninni frá manninum
ákváðu þær að sitja af sér áreitið.
„Við sátum aftast og hann var alltaf
að fara fram hjá á klósettið og áreita
okkur í leiðinni," segir Sigrún. Hún
segir að maðurinn hafi verið orðinn
svo ofsafenginn að lokum að hann
sló aðra vinkonu hennar í höfuðið
þannig að hún missti gleraugun sín.
„Þá urðum við svolítið hræddar
við hann,“ segir Sigrún og þær
ákváðu að segja flugáhöfninni frá
manninum.
Áhöfnin brást mjög vel við að
sögn Sigrúnar en maðurinn virðist
hafa látið öllum illum látum engu
að síður rétt áður en flugvélin lenti.
Þá var ákveðið að kalla á lögregluna
til að taka á móti honum þegar vélin
væri lent.
„Hann var brjálaður þegar lög-
reglan kom á staðinn," segir Sigrún
dálítið brugðið eftir slæma flug-
reynslu. Hún segir að þetta hafa
verið mjög óþægilegt fyrir þær en
farþegar þurftu að bíða á meðan
lögreglan færði manninn úr flugvél-
inni. Stúlkurnar þorðu ekki strax
út af ótta við manninn sem varð til
æss að tveir aðrir farþegar fylgdu
æim úr flugvélinni.
„Allir voru æðislegir við okkur,“
segir Sigrún sem er afar ánægð með
viðbrögð flugfélagsins og hjálpsemi
farþeganna.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir félagið taka
svona hegðun afar alvarlega. Ice-
landair mun kæra manninn og segir
Guðjón að svona hegðun eigi ekki að
líðast í flugvélinni. Guðjón áréttar
einnig að svona tilvik séu sem betur
fer afar sjaldgæf.
NfB VAIKOSTUR A
FLUTNINGAMARKADNIJM
transpori^'H^
toll■ og flutningsmiðlun ehf
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is ,
blaöiðm
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettin® bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fréttavikan
Hvað bar hæst?
Friðrik J. Amgrímsson,
formaður LÍÚ
Mér finnst þessi hörmulegu slys hafa
sett mestan svip á þessa viku. Auðvit-
að veltir maður fyrir sér hvað er hægt
að gera til að forðast slys sem þessi.
Það er spurning hvort það þurfi ekki
að fara í stórt átak á vegunum, meðal
annars með því að aðskilja akreinar
svo minni hætta sé að á bílar rekist
saman.
Ólína Þorvarðardóttir,
þjóðfræðingur
Ef ég horfi á bæjarfréttirnar, þær sem
standa mér næst, þær er minnistæð-
ust atburðarásin sem átti sér stað á
fimmtudag þegar meirihluti bæjar-
stjórnar synjaði minnihlutanum um að
taka mál á dagskrá og sleit fundi. Það
er mjög athyglisvert að horfa á hvernig
lýðræðisreglumar í okkar litla samfé-
lagi eru fótum troðnar.
Sigríður Rut Júiíusdóttir, lögmaður
Það sem mér finnst eftirminnilegast
eru sorgartíðindi í umferðinni. Það er
líka hryggilegt að heyra allar þessar
hraðakstursfréttir. Fólk veröur að taka
sig saman og fara að huga að umferð-
aröryggi.
Gæða sængur
og heilsukoddar.
i
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 535 3500
Helðskírt Léttskýjað IbÍA. Skýlað Alskýlað
Rinninn. litilsháttar
.■ Rianinn Súlri ■
iiUXjjlí'
Algarve 23
Amsterdam 22
Barcelona 27
Berlín 25
Chicago 20
Dublin 17
Frankfurt 23
Glasgow 17
Hamborg 19
Helsinki 23
Kaupmannahöfn 22
London 19
Madrid 22
Mallorka 28
Montreal 21
NewYork 22
Orlando 24
Osló 23
París 19
Stokkhólmur 22
Vín 25
Þórshöfn 12
Veðurhorfur I dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
Á morgun