blaðið - 19.08.2006, Síða 4

blaðið - 19.08.2006, Síða 4
4 I FRÉTTIR LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST2006 blaðið Fíkniefnamisferli: Tíu handteknir í gleðskap Lögreglan í Reykjavík hand- tók tíu manns í bryggjuhverfinu aðfaranótt föstudags. Fólkið var að skemmta sér í partíi um nóttina sem nágrannar höfðu ítrekað kvartað yfir vegna óláta. Lögreglan kom á staðinn og handtók fólkið. Við leit fannst lítilræði af amfetamíni og hassi í íbúðinni. Nokkrir þurftu að gista fangageymslur en var sleppt um morguninn. Skemmdarverk: Skemmdu klósett Fjögur ungmenni skemmdu sjálfvirkt klósett við Ingólfstorg um fjögurleytið aðfaranótt föstudags, en lögreglan handtók tvö þeirra sem reyndust undir lögaldri. Þau voru færð á lög- reglustöð og hringt í foreldra þeirra sem sóttu þau. Atvikið var tilkynnt til barnayfirvalda. Klósettið var ekki mikið skemmt en hugsanlega mun það valda einhverjum óþæg- indum fyrir viðþolslausa á Menningarnótt. Síðasta ávarpið Líta veröur til Norðurlanda og Evrópu um samstarf í varnarmálum. Síðasta ræða Halldórs Ásgrímssonar sem fonffanns: Skaut á sjálfstæðismenn Ræða verður ESB-aðild á tíma sem hentar íslendingum É Oftrú á Bandaríkin mistök Mynd/Sa/errir Eftir Brynjólf Þór Guðmundsson brynjolfur@bladid.net Halldór Ásgrímsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokks- ins, skaut föstum skotum á Sjálfstæðisflokkinn, þegar hann ræddi varnarmál og afstöðuna til aðildar að Evrópusambandinu á flokksþingi Framsókn- arflokfesins í gær. 1 síðustu ræðu sinni sem formaður Framsóknarflokksins rifjaði Halldór upp feril sinn og ýmis mál sem hafa brunnið á þjóðinni. Hann ræddi meðal annars stöðuna í varnarmálum og sagði að orðið hefði trúnað- arbrestur milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda vegna einhliða ákvörðunar Bandaríkjamanna um að fara héðan með herþotur sínar. „Nú vitum við að ekki er hægt að treysta Bandaríkjunum í einu og öllu og of- trú á samstarf við þá voru mistök." Halldór ræddi samskiptin við Evr- ópusambandið í beinu framhaldi af þessu og sagði að margir hefðu tjáð sér að þau mál mættu bíða betri tíma. Hann sagði að ekkert lægi á í þeim efnum, var- aði samt við kæruleysi í þessu máli, íslend- ingar yrðu að ræða þessi mál þegar þeim hentaði en ekki þegar þeir gætu ekk- ert annað. „Reynslan af varnar- samstarf- inu við B a n d a - ríkin ætti að vera okkur nægi- leg lexía í þeim efnum,“ sagði Halldór og beindi síðan orðum sínum að Sjálfstæðismönnum sem hafna aðild að Evr- ópusambandinu. „Sjálf- stæðisflokkurinn hefur farið fremst þeirra sem hafa haft oftrú á samstarfinu við Bandaríkin og skynsamir menn á þeim bæ hljóta að sjá að nú þarf að skoða margt í nýju ljósi.“ Það ræðst í dag hver verður arftaki Halldórs sem formaður Framsókn- arflokksins, Jón Sigurðsson, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, eða Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra. Stuðningsmenn Sivjar hafa látið gera tvær skoðanakannanir til að kanna stöðu formannsframbjóð- endanna meðal almennings. I gær sendu þeir frá sér könnun á því hvort fólk væri líklegra til að kjósa Framsóknarflokkinn undir forystu Sivjar eða Jóns. Samkvæmt henni segja 34 prósent svarenda að þeir væru líklegri til að kjósa Framsókn- arflokkinn ef Siv yrði formaður. Tæp 13 prósent sögðust líklegri til að kjósa flokkinn ef Jón yrði formaður. Tæp sjö prósent sögðu það engu breyta um afstöðu sína til þess hvort þeir kysu flokkinn hvort Jón eða Siv yrði formaður. 47 prósent sögðust ekki myndu kjósa flokkinn. Ef aðeins er litið til þeirra sem myndu mögulega kjósa Fram- sókn segjast 64 prósent líklegri til að kjósa flokkinn ef Siv verður for- maður en 24 prósent ef Jón vinnur formannsslaginn. Sú alskemmtilegasta! Algjör skvísubók! Fæst um allt land. Draumaveröld kaupalkans er 1| ótrúlega fynci\n bójcsem hittir beint í mark hjá öllum kaup- glöðum konum! Besta bókin í útileguna og sumarbústaðinn. „Draumaveröld kaupalkans er sú alskemmtilegasta bók sem ég hef lesið í langan tíma.... gjörsamlega ómissandi bók ... Fátt er hollara fyrir sálina en hressi- legt hláturskast." Anno Kristine - Hér og nú. m Salka Ármúla 20 www.salkaforlag.is 108 Reykjavík - sími 552 1122 Utanríkisráðherra hyggst senda tíu friðargæsluliða til Srí Lanka: Fleiri Islendingar verða sendir til Srí Lanka Valgerður Sverrisdóttir utanrík- isráðherra tilkynnti í gær að fjölga ætti íslenskum friðargæsluliðum á Srí Lanka úr fimm mönnum í allt að tíu. Utanríkisráðherrann kunn- gjörði ákvörðunina eftir fund með utanríkismálanefnd Alþingis um málefni norrænna eftirlitssveita á Srí Lanka í gær. Sendir fleiri friðargæslu- liða til Sri Lanka Valgerður Sverrisdóttir utanrikisráðherra Einnig lýsti Valgerður því yfir að hún hyggst endurskoða umgjörð og verkefnaval friðargæslunnar og meðal annars kanna hvort auka megi hlut kvenna í störfum hennar. Nokkur óvissa hefur ríkt um nor- ræna friðargæsluliða eftir að ófriður á milli ríkisstjórnarinnar á Srí Lanka og uppreisnarhersins Tamil- Tígra, blossuðu upp á ný. Fjöldi frið- argæsluliða og hjálparstarfsmanna hafa látist í þeim átökum. Hörð átök Nokkur óvissa hefur ríkt um framtíð norrænna friðargæsluliða á Sri Lanka vegna átakanna á eynni. Ástandið er sérlega slæmt þessa daganna en þúsundir eru án matar og vatns vegna ófriðarins. Uppreisn- arherinn hefur tekið bæinn Kil- inochchi í norðurhluta landsins á sitt vald og hleypa uppreisnarmenn engum úr bænum né leyfa þeir hjálp- arstarfsmönnum að fara inn í hann. Hjálparstarfsmenn hafa beðið um að fá að flytja um fimm þúsund tonn af nauðsynlegum vistum til þurfandi íbúa á svæðinu. Rúmlega 160 þúsund manns hafa flúið heimili sín eftir að ófriðurinn kom upp.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.