blaðið - 19.08.2006, Síða 9

blaðið - 19.08.2006, Síða 9
blaöið LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 ÁLIT I 9 Síminn okrar íminn vill ekki viðurkenna, að 250 króna seðilgjald sé okur á kostnaði við út- skrift, pappír og póstun reikninga. Það rétta er, að sérstakt umstang við reikninga umfram pappírslaus viðskipti er um 50 krónur. Tæplega eða um það bil 200 krónur af hverjum reikningi er hreint okur. Réttmætt er að kvelja Símann og önnur okurfyrirtæki, sem stunda þetta. Síminn er alls ekki að spara pappír og vernda umhverfið, þegar hann okrar á seðilgjaldinu. Lengi hafa glæpamenn veifað biblí- unni og vafið sig þjóðfánanum. Umhverfismál þjóna sama hlut- verki hjá Símanum. Stríð og stóriðja Mér finnst gott hjá Sjálfstæðisráðherrum að taka boði Ómars Ragnarssonar um að fljúga og ganga með honum um gróið land, sem fer í kaf í miðlunarlóni Kárahnjúka. Þar á meðal eru svæði, sem voru affriðuð til að geta virkjað Háls- lón. Þetta sýnir opnari huga þeirra en hjá ráðherrum Framsóknar. Hinir síðari reka enn róttæka virkjanastefnu í ósnortnum víðernum, þótt verðandi flokksformaður þykist ekki sjá. Með hjálp Ómars verður sýn stjórnarinnar opnari og víðari en hún hefur hingað til verið. Vonandi fer hann varlega í fluginu. Mér þótti nóg um, þegar hann skellti sér í gljúfrið. Lesendur Bjarni skrifaði Auðvitað fer strætó á hausinn! Miðað við umræður um taprekstur Strætó bs, óánægju starfsmanna og fleira þá sat ég hreinlega hljóður um daginn þegar strætisvagn keyrði fram hjá mér þó svo að hann hafi séð mig veifa eins og brjálaður maður. Veifið er tiltölulega alþjóðlegt merki um að einhver eigi að stöðva bifreið sína nema vagnstjórinn hafi haldið að ég væri með undarlega virka spastíska hreyfihömlun. Sem sagt; hann keyrði beint fram hjá mér. Ég spyr mig sjálfan hvort ástæðan fyrir því að fjárhagshalli strætó bs, sem nam alls 360 milljónum á síðasta ári, sé ekki einmitt vegna þess að vagnstjórar eru bara ekkert allt of æstir í að taka farþega upp í vagninn. Með snefil af rökréttri hugsun sjá menn einmitt samansemmerki á milli farþega oggróða. Eg lít svo á að samgöngukerfið sé þjónusta við borgarbúa og því er þetta atvik svívirðilegt. Eg tek það þó fram að ég geri mér grein fyrir að vagnstjórar geta ekki stöðvað bílinn við hvaða aðstæður sem er. Ég stóð ekki við stoppustöð því ég var of seinn vegna vinnu. Aftur á móti í þessu tilviki þá var engin umferð og ég var rétt hjá vagninum. Það hefðu værið hæg heimatökin að stöðva hann og gera manni greiða sem ferðast ávallt með strætóunum. Að þessu sögðu, ég hef akkúrat enga samúð með þessu vagnstjórum sem haga sér eins og þeir séu að stjórna neðanjarðarlest en ekki vagni sem á að þjóna borgarbúum. www.fronkex.is hefur Mjolkurkexid frá Frón verid uppáhaldskex íslendinga. Þad er kexid sem fær okkur öll til ad brosa og kemur vid sögu á hverjum degi! kemur • • vid ^ sogu a nverjumBSö# • isam

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.