blaðið - 19.08.2006, Síða 10
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 blaöiö
10 I áLIT
Veltingur Sigurjóns M. Egilssonar
Halldór Ásgrímsson
Fyst þegar ég sá Halldór Ásgrímsson
eigin augum var hann sjávarútvegsráð-
herra og ég sjómaður. Hann kom til
Ólafsvíkur til að kynna kvótakerfið á
opnum fundi. Þetta var í árdaga kerf-
isins og flestir, og jafnvel Halldór sjálfur, álitu
að ströng stýring fiskveiða væri tímabundinn.
Jæja, fundurinn var í gamla félagsheimilinu í
Ólafsvík, troðfullt hús og mönnum var mikið
niðri fyrir. Halldór var aðalmaður fundarins og
með honum voru einhverjir sem eru mér löngu
gleymdir.
Fyrirfram hafði ég ekki mikið álit á Hall-
dóri, frekar en ég hafði almennt á stjórnmála-
mönnum, og einkum og sér í lagi á Framsókn-
armönnum. En viti menn, ég hafði bara aldrei
séð neitt þessu líkt. Halldór var vægast sagt
stórkostlegur á fundinum. Hafði svör við öllum
spurningum, vissi allt og mátaði alla. Þvílík
framganga. Frá þeim degi hef ég verið nokkuð
viss um Halldór, meðal annars að hann hefur
ekki alltaf notið sannmælis, honum hefur ekki
tekist að sýna sína réttu mynd. Hann er klár og
mælskur. Það er bara eitthvað annað í fari hans
sem hefur skyggt á hans bestu hliðar.
Ég man að á fundinum forðum spurði Halli
í Nýja-Bæ ráðherrann um sína stöðu. Halldór
sagði Hringinn hans Halla hafa svo og svo mörg
tonn, hafa fiskað svo og svo mikið síðustu ár og
róið svo og svo marga daga. Maðurinn hafði
hreinlega svör við öllu. Frábær frammistaða.
Nokkrum árum síðar sá ég annan mann jafn-
glæsilegan á fundi, það var Vilmundur heitinn
Gylfason. Það var af öðru tilefni, en aðra við-
miðun finn ég bara ekki.
Halldór hélt áfram að vera ráðherra og ég varð
blaðamaður. Þá kom fyrir að við vorum nærri
hvor öðrum í lífinu, ég og Halldór. Ég hef alltaf
kunnað vel við Halldór, getur verið skemmti-
legur og er sanngjarn. Hann getur orðið fjand-
anum reiðari, en það er ekki til að skemma neitt,
sérstaklega þegar menn eru sæmilega fljótir að
jafna sig, sem ég held að Halldór geri alla jafna.
Kann eina litla sögu af Halldóri. Þegar skip-
stjórafélagið Aldan var íoo ára var ég veislustjóri
og hann heiðursgestur. Ræðan hans var fín. Þar
sagði hann sögur og ég man eina, ekki rétt, en
nóg til að fara með hana. Tveir karlar, einhvers
staðar á Austurlandi, voru næstu nágrannar en
einlægir óvinir. Annar var að verða sextugur
Hvernig má það vera að
maður sem kann svör við öllu,
vinnur heimavinnuna afkost-
gæfni, slær um sig með góðum
sögum, er hnittinn í tilsvörum
kveður stjórnmálin með eins
litlum sóma og Halldór neyð-
ist til að gera? Það verður
rannsakað afhæfufólki.
og það vissu allir heimamenn. Svo fór að hinn
kom í kaupfélagið og pantaði flaggstöng. Sagði
áríðandi að hún yrði komin ákveðinn dag, sem
var afmælisdagur nágrannans. Þetta vakti eftir-
tekt og heimafólkið taldi víst að friður væri með
þeim nágrönnum, fyrst svo mikið lá að flagga
á afmælisdaginn. En þær vonir urðu að engu,
stöngin kom og fór upp, en ástæðan var sú eina
að hafa fína stöng og flagga ekki á stórafmæli ná-
grannans. Halldór átti salinn.
Hvernig má það vera að maður sem kann svör
við öllu, vinnur heimavinnuna af kostgæfni,
slær um sig með góðum sögum, er hnittinn í
tilsvörum kveður stjórnmálin með eins litlum
sóma og Halldór neyðist til að gera? Það verður
rannsakað af hæfu fólki.
Mér er næst að halda að náin kynni Hall-
dórs og Davíðs Oddssonar hafi farið illa með
Halldór. Davíð komst upp með allt og var bara
einu númeri, ef ekki fleirum, of stór fyrir Hall-
dór. Þega öll spjót stóðu á Davíð átti hann til að
þegja í fáa daga og kom svo og sló allt og alla til
baka. Einstakur hæfileiki, sem fáum er gefinn,
og ekki Halldóri. Hann var kominn í félagsskap
sem var honum of erfiður. Halldór var ekki
þannig. Lengst af virðist sem hann hafi talið
sjálfum sér trú um að hann væri ekkert minni
en Davíð og kjarklitlir meðreiðarsveinar sögðu
já, þegar þeir héldu að Halldór vildi heyra já og
boltinn fór af stað og varð þyngri en Halldór
gat borið.
Þegar fór að halla undan fæti hjá Halldóri gerð-
ist það sem hjá honum og svo mörgum öðrum.
Hann fór í fár og sá sem er í fári gerir mistök og
aftur mistök. Allt þetta varð til þess að staða Hall-
dórs versnaði og hann gerði hver mistökin á eftir
öðrum.
Allt þetta hefur orðið til þess að sá sjarmi
sem Halldór sýndi á fundinum í Ólafsvík fyrir
meira en tuttugu árum er farinn, eða allavega
hafa hlaðist á hann býsn mistaka og annars sem
má kannski segja að hafa skemmt fyrir Halldóri,
hann átti kannski aldrei erindi í leikinn með
stóra stráknum Davíð. Var kannski ekki nógu
klókur og nógu lipur, en þegar upp er staðið eiga
þeir þó eitt sameiginlegt Halldór og Davíð, báðir
spiluðu sig út í horn í pólitíkinni og enduðu ekki
ferilinn eins flott og þeir hugsanlega gátu.
afsláttur af öllum
tjarnarfiskum til 31. ágúst
-Ókeypis ráðgjöf til að gera tjömina þina
að lirandi nattúruperlu.
-Hönnun og uppsetning tjama sem henta
tjarnarfiskum.
-Hvergi meiri reynsla af lífríki vatnafiska
-Tjamadúkar; 0,5-0,8 og 1 mm mjúkir og
meðfærilegir PVC dúkar.
-Umhverfisvænn hreinsibúnaður
-Gosbrunnar 24v og 220v
-Fóður; vetrar, vor, sumar, haust og
litafóður. Allt eftir þörfum.
DÝRARÍKIÐ
Grensásvegi s:5686668 - Skútuvogl 16 s:5680020
Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is