blaðið

Ulloq

blaðið - 19.08.2006, Qupperneq 10

blaðið - 19.08.2006, Qupperneq 10
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 blaöiö 10 I áLIT Veltingur Sigurjóns M. Egilssonar Halldór Ásgrímsson Fyst þegar ég sá Halldór Ásgrímsson eigin augum var hann sjávarútvegsráð- herra og ég sjómaður. Hann kom til Ólafsvíkur til að kynna kvótakerfið á opnum fundi. Þetta var í árdaga kerf- isins og flestir, og jafnvel Halldór sjálfur, álitu að ströng stýring fiskveiða væri tímabundinn. Jæja, fundurinn var í gamla félagsheimilinu í Ólafsvík, troðfullt hús og mönnum var mikið niðri fyrir. Halldór var aðalmaður fundarins og með honum voru einhverjir sem eru mér löngu gleymdir. Fyrirfram hafði ég ekki mikið álit á Hall- dóri, frekar en ég hafði almennt á stjórnmála- mönnum, og einkum og sér í lagi á Framsókn- armönnum. En viti menn, ég hafði bara aldrei séð neitt þessu líkt. Halldór var vægast sagt stórkostlegur á fundinum. Hafði svör við öllum spurningum, vissi allt og mátaði alla. Þvílík framganga. Frá þeim degi hef ég verið nokkuð viss um Halldór, meðal annars að hann hefur ekki alltaf notið sannmælis, honum hefur ekki tekist að sýna sína réttu mynd. Hann er klár og mælskur. Það er bara eitthvað annað í fari hans sem hefur skyggt á hans bestu hliðar. Ég man að á fundinum forðum spurði Halli í Nýja-Bæ ráðherrann um sína stöðu. Halldór sagði Hringinn hans Halla hafa svo og svo mörg tonn, hafa fiskað svo og svo mikið síðustu ár og róið svo og svo marga daga. Maðurinn hafði hreinlega svör við öllu. Frábær frammistaða. Nokkrum árum síðar sá ég annan mann jafn- glæsilegan á fundi, það var Vilmundur heitinn Gylfason. Það var af öðru tilefni, en aðra við- miðun finn ég bara ekki. Halldór hélt áfram að vera ráðherra og ég varð blaðamaður. Þá kom fyrir að við vorum nærri hvor öðrum í lífinu, ég og Halldór. Ég hef alltaf kunnað vel við Halldór, getur verið skemmti- legur og er sanngjarn. Hann getur orðið fjand- anum reiðari, en það er ekki til að skemma neitt, sérstaklega þegar menn eru sæmilega fljótir að jafna sig, sem ég held að Halldór geri alla jafna. Kann eina litla sögu af Halldóri. Þegar skip- stjórafélagið Aldan var íoo ára var ég veislustjóri og hann heiðursgestur. Ræðan hans var fín. Þar sagði hann sögur og ég man eina, ekki rétt, en nóg til að fara með hana. Tveir karlar, einhvers staðar á Austurlandi, voru næstu nágrannar en einlægir óvinir. Annar var að verða sextugur Hvernig má það vera að maður sem kann svör við öllu, vinnur heimavinnuna afkost- gæfni, slær um sig með góðum sögum, er hnittinn í tilsvörum kveður stjórnmálin með eins litlum sóma og Halldór neyð- ist til að gera? Það verður rannsakað afhæfufólki. og það vissu allir heimamenn. Svo fór að hinn kom í kaupfélagið og pantaði flaggstöng. Sagði áríðandi að hún yrði komin ákveðinn dag, sem var afmælisdagur nágrannans. Þetta vakti eftir- tekt og heimafólkið taldi víst að friður væri með þeim nágrönnum, fyrst svo mikið lá að flagga á afmælisdaginn. En þær vonir urðu að engu, stöngin kom og fór upp, en ástæðan var sú eina að hafa fína stöng og flagga ekki á stórafmæli ná- grannans. Halldór átti salinn. Hvernig má það vera að maður sem kann svör við öllu, vinnur heimavinnuna af kostgæfni, slær um sig með góðum sögum, er hnittinn í tilsvörum kveður stjórnmálin með eins litlum sóma og Halldór neyðist til að gera? Það verður rannsakað af hæfu fólki. Mér er næst að halda að náin kynni Hall- dórs og Davíðs Oddssonar hafi farið illa með Halldór. Davíð komst upp með allt og var bara einu númeri, ef ekki fleirum, of stór fyrir Hall- dór. Þega öll spjót stóðu á Davíð átti hann til að þegja í fáa daga og kom svo og sló allt og alla til baka. Einstakur hæfileiki, sem fáum er gefinn, og ekki Halldóri. Hann var kominn í félagsskap sem var honum of erfiður. Halldór var ekki þannig. Lengst af virðist sem hann hafi talið sjálfum sér trú um að hann væri ekkert minni en Davíð og kjarklitlir meðreiðarsveinar sögðu já, þegar þeir héldu að Halldór vildi heyra já og boltinn fór af stað og varð þyngri en Halldór gat borið. Þegar fór að halla undan fæti hjá Halldóri gerð- ist það sem hjá honum og svo mörgum öðrum. Hann fór í fár og sá sem er í fári gerir mistök og aftur mistök. Allt þetta varð til þess að staða Hall- dórs versnaði og hann gerði hver mistökin á eftir öðrum. Allt þetta hefur orðið til þess að sá sjarmi sem Halldór sýndi á fundinum í Ólafsvík fyrir meira en tuttugu árum er farinn, eða allavega hafa hlaðist á hann býsn mistaka og annars sem má kannski segja að hafa skemmt fyrir Halldóri, hann átti kannski aldrei erindi í leikinn með stóra stráknum Davíð. Var kannski ekki nógu klókur og nógu lipur, en þegar upp er staðið eiga þeir þó eitt sameiginlegt Halldór og Davíð, báðir spiluðu sig út í horn í pólitíkinni og enduðu ekki ferilinn eins flott og þeir hugsanlega gátu. afsláttur af öllum tjarnarfiskum til 31. ágúst -Ókeypis ráðgjöf til að gera tjömina þina að lirandi nattúruperlu. -Hönnun og uppsetning tjama sem henta tjarnarfiskum. -Hvergi meiri reynsla af lífríki vatnafiska -Tjamadúkar; 0,5-0,8 og 1 mm mjúkir og meðfærilegir PVC dúkar. -Umhverfisvænn hreinsibúnaður -Gosbrunnar 24v og 220v -Fóður; vetrar, vor, sumar, haust og litafóður. Allt eftir þörfum. DÝRARÍKIÐ Grensásvegi s:5686668 - Skútuvogl 16 s:5680020 Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.