blaðið

Ulloq

blaðið - 19.08.2006, Qupperneq 26

blaðið - 19.08.2006, Qupperneq 26
26 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST2006 blaðiö Með þolinmæði {brjóstí Sif Gunnars- dóttir: „Hver einasti gestur sem kemur niðuríbæ á Menningarnótt tekurþátt íað búa til stemninguna. Það skiptir rosalegu máli hvort þú kemur kátur nið- ur í bæ, tilbúinn til að upplifa eitthvaö óvænt, með þolinmæði í brjósti og virð- ingu að leiðarljósi Menningarnótt Menningarnótt Reykjavíkurborg- ar verður sett í ellefta sinn í dag. Hátíðin hefur stækkað og dafnað undanfarin ár. Atburðunum fjölg- ar ár hvert, flugeldasýningin verð- ur glæsilegri með hverju árinu og mannfjöldinn er kominn upp í 75 til 90 þúsund. Sif Gunnarsdóttir er verkefna- stjóri viðburða hjá Höfuðborgar- stofu og hún viðurkennir fúslega að Menningarnótt sé síbreytileg. .Menningarnótt er þannig ólík flestum öðrum hátíðum að hún er í rauninni sköpuð af mörg hundr- uð manns. Menningarnóttin er því ekki skrifuð í stein vegna þess að hún er búin til af okkur öllum. Ég Steypumót & síló Gáma- & stálgrindarhús Iðnadar- og bílskúrshurðir Verkfæri Véla- og tækjaleiga Kantsteinar hakrennur Allt til bygginga VERÐMÆTAR HEILDARLAUSNIR MEST er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á byggingamarkaði. Nafnið endurspeglar styrk þess og djarfa framtíðarsýn. MEST er framsækið framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem býður viðskiptavinum sínum verðmaetar heildarlausnir. Malarhöfða 10, Reykjavík Bæjarflöt 4, Reykjavík Hrínghellu 2, Hafnarfirði Hrísmýri 8, Selfossi Leiruvogi 8, Reyðarfirði held að Menningarnóttin komi okk- ur það mikið við, og það má sjá á fjölda gesta og fjölda þátttakenda, að mér þykir ósennilegt að hún hætti nokkurn tímann, en hún get- ur breyst á alla vegu. Það er ómögu- legt að sjá fyrir í hvaða átt hún fer af því hún er nánast lifandi,“ segir Sif og bætir við að síðan hátíðin hófst árið 1996 hafi hún vaxið með slík- um ofsahraða. Hún hafi bæði bólgn- að og tognað. Mikiivægt að vera þolinmóður Þeir sem hafa upplifað stemning- una á Menningarnóttu vita hve ein- stök hún er. Samkvæmt Sif skapa gestirnir sem taka þátt stemning- una. „Hver einasti gestur sem kem- ur niður í bæ á Menningarnótt tekur þátt í að búa til stemninguna. Það skiptir rosalegu máli hvort þú kemur kátur niður í bæ, tilbúinn til að upplifa eitthvað óvænt, með þol- inmæði í brjósti og virðingu að leið- arljósi. Það er gríðarlega mikilvægt að vera þolinmóður því á þessum dásamlega degi, þegar tugþúsund- ir leggja leið sína í miðborgina sem er ekkert rosalega stór, þá tekur allt lengri tíma en áður. Það getur verið erfitt að hlaupa niður Laugaveginn klukkan átt og ef þú ætlar að drífa þig heim þá er það ekkert rosalega einfalt heldur. Það tekur tíma að ferðast á milli atburða og kannski er það ferðalag einmitt atburður í sjálfu sér.“ Stærri en áður Sif segist bæði taka þátt í hátíða- höldunum og vera í vinnunni á Menningarnóttu. „Ég er alltaf við setningu Menningarnætur og síð- an hef ég yfirleitt lagt áherslu á það að mæta á setninguna í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar gestasveitafélag Menningarnætur er boðið velkom- ið. Svo reyni ég að taka einn ansi góðan rúnt og fer alveg austur eftir Laugaveginum, upp á Skólavörðu- stíg og Skólavörðuholt. Núna ætla ég að komast alla leið upp á Kjar- valsstaði en undir kvöldmat er ég yf- irleitt komin aftur í vinnuna. Ég er þvi í vinnunni en ég reyni vissulega að sjá eins mikið af Menningarnótt og ég get. Það verður spennandi að sjá nýjungarnir á Menningarhátíð í ár. Við erum til dæmis að nota bæði Miklatúnið og Kjarvalsstaði í fyrsta skipti. Hátíðin hefur aldrei verið teygð svona langt austur áður og vestasti punkturinn er sjóminja- safnið. Önnur nýjung í ár er menn- ingarstrætó sem keyrir um jaðar- svæði hátíðarinnar frá klukkan 15 til 22. Flugeldasýningin verður líka færð út á sjó til að stækka það svæði sem áhorfendur geta staðið á til að njóta sýningarinnar." svanhvit@bladid.net „Menningarnótt er þannig ólík flestum öðrum hátíðum að hún er í rauninni sköpuð af mörg hundruð manns. Menningarnóttin er því ekki skrifuð í stein vegna þess að hún er búin til af okkur öllum."

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.