blaðið - 30.08.2006, Side 23
blaðið MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006
35
Dylan sendir frá sér plötu
Þennan dag árið 1965 gaf tónlistarmaðurinn ástsæli Bob Dylan út
sjöttu plötu sina, Highway 61 Revisited. Platan sú hefur notið mikilla
vinsælda æ síðan en þar má meðal annars heyra lagið Like a Rolling
Stone.
Anna Helga Björnsdóttir og Guðbjörg Sandholt Stúlkur-
nar munu flytja tvo Ijóðaflokka eftir Schumann og De Falla
auk þess sem Anna Helga leikur einleiksverk fyrir píanó.
Guðbjörg Sandholt mezzósópran
Að skapa eigin tækifæri
að er ávallt fagnaðarefni
þegar ungt fólk kveð-
ur sér hljóðs og gerir
eitthvað skapandi og
skemmtilegt með það
fyrir augum að gleðja samborgara
sína og öðlast um leið reynslu og
þroska í sínu fagi. Næstu daga munu
þær Guðbjörg Sandholt mezzósópr-
an og Anna Helga Björnsdóttir kæta
tónlistarunnendur með þrennum
glæsilegum tónleikum. „Við feng-
um styrk frá Tónlistarsjóði Mennta-
málaráðuneytisins til þess að halda
þrenna tónleika núna í lok ágúst.
Við höfum verið að æfa í allt sumar
og hlökkum mikið til þess að sýna
afraksturinn.Við stígum á stokk í
Listasafni Sigurjóns, í Selfosskirkju
og Reykholtskirkju og flytjum klass-
íska dagskrá sem við settum saman
í sameiningusegir Guðbjörg.
Schumann og de Falla
„Við höfum verið að æfa tvö ljóða-
flokka fyrir mezzósópran og píanó.
Annar er eftir Schumann og hinn
eftir hinn spænska Manuel de Falla.
Við fluttum ljóðaflokk de Falla sam-
an á burtfarartónleikunum mínum
í maí. Við vorum búnar að leggja
mikla vinnu í verkið og langaði
til þess að fá annað tækifæri til að
flytja hann. Það var meðal annars
þess vegna sem við sóttum um styrk-
inn til Menntamálaráðuneytisins og
okkur fannst tilvalið að bæta öðrum
Ijóðflokki við. Schumann hefur auk
þess verið í uppáhaldi hjá okkur báð-
um lengi og því mjög skemmtilegt
fyrir okkur að fá tækifæri til þess að
vinna að hans verki saman.“
Anna Helga og Guðbjörg eru báð-
ar enn í námi. Anna Helga lýkur
burtfararprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík næsta vor en hún
nýtur þar kennslu Svönu Víkings-
dóttur. Guðbjörg er nýlega útskrifuð
frá sama skóla en hennar aðalkenn-
ari var Alina Dubik. Guðbjörg mun
á næstu vikum halda til Lundúna
þar sem hún mun stunda framhalds-
nám. „Það verður mikil breyting og
áskorun fyrir mig en ég hlakka mik-
ið til að reyna mig á nýjum vígstöð-
um,“ segir Guðbjörg.
Góðar hugmyndir lykillinn
Guðbjörg gæti vel hugsað sér að
gera sönginn að ævistarfi. „Það
væri mjög gaman ef það tækist og ég
held utan til náms með það í huga.
Þetta er auðvitað harður heimur en
ég mun gera mitt besta,“ segir Guð-
björg brosandi. „Það er ágætt að
vera ungur tónlistarmaður á íslandi
í dag. Maður þarf hins vegar að
vera duglegur að skapa sér sín eigin
verkefni og ávallt vera með hugann
við efnið. Við þurfum að skapa eig-
in möguleika og ef hugmyndirnar
liggja á borðinu þá er oft auðvelt að
fá góðan stuðning."
Guðbjörg er þó ekki að syngja
sitt síðasta á Islandi með þessum
tónleikum í bili, því áður en hún
fer til framhaldsnáms mun hún
halda kveðjutónleika í Dómkirkj-
unni 5. september. Þar munu ýmsir
listamenn koma fram með henni og
gefst gestum tækifæri á því að njóta
fagurra lista og sjá þessa ungu söng-
konu áður en hún siglir utan.
Tónleikar Guðbjargar og Önnu
Helgu verða í Lisasafni Sigurjóns í
kvöld kl 20, í Selfosskirkju á fimmtu-
dagskvöld kl 20 og í Reykholtskirkju
kl 17 á laugardag. Aðgangur er ókeyp-
is og allir velkomnir.
Skapari
skrímslis fæðist
Þennan dag árið 1797 fædd-
ist breski rithöfundurinn Mary
Shelly. Hún var borin og barn-
fædd í Lundúnum en móðir henn-
ar var kvenréttindakonan Mary
Wollstonecraft. Faðir hennar
var ekki síður frægur maður
í sinni tíð, en það var heim-
spekingurinn og blaðamaður-
inn William Godwin. Öfugt
við flestar stúlkur á 19. öld
fékk Mary Shelly góða mennt-
un og hafði mikinn áhuga á bók-
menntum og sögu. Hún gekk að
eiga róttæklinginn Percy Bysshe
Shelley og lifðu þau í hamingju-
sömu hjónabandi þar til dauðinn
aðskildi þau. Frægasta skáldsaga
Mary er án efa sagan af þokka-
piltinum Frankenstein
en hún hefur
heillað marg-
an manninn
í gegnum
tíðina. Mary
Shelly lést
árið 1851 úr
krabbameini.
Lenin verður fyrir skotárás
Þennan dag árið 1918 reyndi Fa-
ina Yefimovna Kaplan að ráða bylt-
ingarleiðtogann Vladimir Lenin
af dögum. Hún var af gyðingaætt-
um og virk í sósalistaflokknum.
Lenin hafði nýlokið við að halda
þrumandi ræðu og var á leið til
bifreiðar sinnar þegar Kaplan
kallaði nafn hans. Lenin sneri sér
við til að svara en þá skaut Kaplan
þremur skotun úr byssu sem hún
bar. Tvö skotanna hæfðu Lenin
í öxl og lunga. Hann þverneitaði
að leita sér aðhlynningar á spítala
þar sem hann var sannfærður um
að þar leyndust leyniskyttur sem
myndu ljúka því verki sem Kaplan
hóf. Lenin náði sér að nokkru leyti
en upp frá þessu og til dauðadags
árið 1924 átti hann við ýmis mein
að stríða sem má rekja til árásar
Kaplan.
Tónleikar á
Stokkseyri
I kvöld er tilvalið að gera sér
glaðan dag, bruna úr borg-
inni og halda til Stokkseyrar.
Þar verða haldnir tónleikar í
Lista- og menningarverstöð-
inni Hólmaröst. Stöllurnar Hlín
Pétursdóttir söngkona og
Hrefna Eggertstdóttir píanó-
leikari flytja þar úrval íslenskra
sönglaga auk tveggja erlendra
laga. Tónleikar þessir eru
hluti af hátíðahöldum vegna
100 ára afmælis Ráðherra-
bústaðarinns í Reykjavík en
föstudaginn 1. september
eru nákvæmlega 100 ár frá
reisugilli hússins í Reykjavík.
Efniskrá tónleikana tekur mið
af sönglögum Strandarskálda
og Vestfirðinga sem og Ijóðum
stórskálda þessa tíma svo
sem Hannesi Hafstein og er
tímabilið sem sótt er í nokkrir
áratugir í kringum aldamótin
1900. Um kynningar sjá Björn
Ingi Bjarnason á Eyrarbakka
og Ólafur Helgi Kjartansson
á Selfossi. Allir eru velkomnir
á tónleikana meðan húsrúm
leyfir og er enginn aðgangs-
eyrir. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21.
Solveig með
Sinfóníunni
Ein skærasta stjarna Norð-
manna um þessar mundir,
sópransöngkonan Solveig
Kringelborn, mun syngja
með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands á tvennum tónleikum í
byrjun september. Hún hefur
undanfarin misseri heillað
áheyrendur upp úr skónum
hvar sem hún hefur stigið á
svið. Á stuttum tíma hefur
hún orðið mjög eftirsótt í
óperuhúsum heims og þrátt
fyrir ungan aldur hefur hún
sungið undir stjórn margra
virtustu hljómsveitarstjóra
heims. Solveig hefur þótt
túlka verk skandinavískra
skálda sérstaklega vel og
dæmi þess má heyra á
fjölda útgefinna geisladiska.
Tónleikarnir verða 8. og 9.
september nk. og má nánari
upplýsingar finnaá
www.sinfonia.is