blaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 1
ORÐLAUS » síða 42 + 208. tölublað 2. árgangur þriðjudagur 19. september 2006 ■ IPROTTIR Þrettán stig í mínus eru ný reynsla fyrir stuðningsmenn Juventus | SlÐUR 41 FRJALST, OHAÐ & ■ FOLK Allt sem varðar tónlist og hannyrðir geri ég af mikilli ástríðu og gleði,' segir Helga Soffía Konráðsdóttir | SÍÐA32 Menntaskólanemendur í Lækjargötu Spenna, glens og grín einkennir fyrstu menntaskólaárin. Sérstaklega fyrstu skóladagana. Álagið eykst síðan jafnt og þétt þegar líður á önnina. Stressið, leiðinn og áhyggjurnar taka þá gjarnan við. Meölagsgreiðendur skulda 11,5 milljarða: Helmingur á vanskilaskrá ■ Þriðjungur í alvarlegum greiðsluvanda ■ Meðlagsgreiðslur koma upp á erfiðum tíma Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net Ríflega sex þúsund meðlagsgreiðendur, eða helm- ingur þeirra allra, er í vanskilum. Þriðjungur greiðenda, eða rúmlega fjögur þúsund, voru í alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga þarf að leggja fram umtalsverðar fjár- hæðir árlega til þess að greiða fyrir þennan hóp. Árni Haraldsson, lögfræðingur hjá Innheimtu- stofnun sveitarfélaga, segir stóran hluta meðlags- greiðenda ekki standa skil á fleiri gjöldum. „Ein skýring gæti verið sú að meðlagsgreiðslurnar koma upp á erfiðum tímum, þegar fólk stendur í skilnaði. Sá tímapunktur er hvað erfiðastur til þess að lenda í aukinni greiðslubyrði.” Laufey Ólafsdóttir, formaður Félags einstæðra foreldra, segir hagsmuni félagsmanna vera ólíka því innan vébanda þess séu bæði greiðendur og þiggjendur meðlagsgreiðslna. „Hvert mál er einstakt og aðstæður persónu- bundnar. Meðlagið getur verið mikið fyrir greið- andann en á móti lítið fyrir þiggjandann því þetta er aðeins brot af kostnaði við að framfleyta barni.” Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður tekur undir orð Laufeyjar um að meðlagsgreiðslurnar dugi ekki til framfærslu barns. „Einstaklingar verða að átta sig á því að það gengur ekki að trassa þessi gjöld. Bæði kemur það sér illa fyrir viðkomandi á endanum en fyrst og fremst hefur þetta slæm áhrif fyrir framfærsluað- ilann,” segir hann. Sjá einnig síðu 2 LÍFI » sída 44 I VEDUR » síða 2 I i va Mnrrfi nn nwir nl/nr » síður 19-30 Gwyneth Paltrow sló um sig þegar hún keypti 700 þúsund króna Prada-skó í Lundúnum. Hún notaði rautt greiðslukort sem tryggir að hluti kaup- verðs fer til bágstaddra. Rigning eða skúrir sunnan- og suðvestanlands og norðan- og austantil. Austlæg átt 5-10 metrar á sekúndu og hiti 4 til 14 stig. Sérblað um bíla fylgir Blaðinu í dag Hvemig er ég? Ef tónlistarkonan Lay Low fengi tæki- færi til að vera karlmaður í einn dag myndi hún vilja vera einn af vinum sínum svo hún fengi tækifæri til að kynnast því hvernig hún er í raun og veru og hvort hún sé jafn skemmtileg og hún telur sig vera. WWW.SVAR.IS svan) f aknl SIÐUMULA 37 - SÍMI 510 6000 QJ HUQUR, LÍKAMI og SÁL Sjálfsræktarklúbbur Nýjasta bókin í klúbbnum er Teygjur — Teygjum okkur í betri líöan og hraustlegra útlit! Baekur um okkur öll: Sjálfsskoðun - hollt mataræði - hreystl yst sem Innst — Iffsgleði — umburðarlyndl — bein tengsl vlð náttúruna. + Ármúla 20. 108 R. I Stmi: 552-1122 Umhyggjusamt forlag

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.