blaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 2
blaóið
2 ÞRIÐJUDAGUR-19; SEPTEMBER 2006
VEÐRIÐ í DAG
Rigning:
Austlæg átt, yfirleitt fimm til tíu metrar á
sekúndu og skýjaö með köflum. Rigning
á Norður- og Austurlandi, en styttir upp
vestanlands síðdegis. Hiti 4 til 15 stig,
svalast á annesjum norðvestantil.
ÁMORGUN
Hvessir
Norðaustanátt, víðast fimm til tíu
metrar á sekúndu. Léttskýjað á Suð-
vestur- og Vesturlandi en annars skýjað
og súld eða rigning. Hvessir suðaustan-
lands síðdegis með rigningu. Hiti 6 til 12
stig, hlýjast suðvestanlands.
VÍÐA UM HEIM 1
Algarve 26
Amsterdam 17
Barcelona 25
Berlín 20
Chicago 11
Oublin 17
Frankfurt 18
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
14 New York
18 Orlando
17 Osló
17 Palma
19 París
28 Stokkhólmur
19 Þórshöfn
21
24
16
26
18
17
11
Hugar að framtíðinni:
Vífilfell skoðar
risalóðir
Vífilfell hf. hefur óskað eftir
tíu þúsund fermetra lóðum bæði
í Hafnarfirði og Garðabæ. Árni
Stefánsson, forstjóri Vífilfells,
segir það lið í lengri tíma áætlun
og engar ákvarðanir hafa verið
teknar um flutning eða stækkun
fyrirtækisins. Aðeins sé verið að
skoða þær lóðir sem í boði eru.
„Það eru ekki margar svo
stórar lóðir á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir Árni en lóðin sem Víf-
ilfell stendur á núna er tíu þús-
und fermetrar. Að sögn Árna er
þetta liður í innri stækkun sem
þó gæti verið talsvert í. „Þetta er
bara framtíðarmúsíkin."
Það er Skipulags- arkitekta-
og verkfræðistofan ehf. (SAV)
sem sækir um lóðirnar fyrir
hönd Vífilfells. Umsóknirnar
eru í skoðun í bæjarfélögunum.
Kína:
Þúsund sendir
til Líbanon
Kínversk stjórnvöld hafa
ákveðið að fjölga friðargæslu-
liðum sínum í Líbanon úr 180 í
eitt þúsund. Þetta þýðir að Kín-
verjar verða með eitt fjölmenn-
asta liðið í fjölþjóðahernum á
vegum Sameinuðu þjóðanna
sem gætir vopnahléssamkomu-
lagsins á milli ísraels og Líban-
ons. Fram til þessa hafa stjórn-
völd í Peking verið frekar treg í
taumi að taka þátt í friðargæslu
og þykir ákvörðunin vera til
marks um aukið vægi Kínverja á
vettvangi alþjóðamála.
Helmingur meðlagsgreiðenda á vanskilaskrá Innheimtustofnunar sveitarfélaga:
Meðlagsgreiðendur
skulda 11,5 milljarða
■ Þriöjungur í aivarlegum greiðsluerfiðleikum ■ Mismunurinn sóttur í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Eftír Trausta Hafstelnsson
trausti@bladid.net
„Margir einstaklingar borga ekki
neitt og er erfitt að ná til þeirra.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga þarf að
standa í skilum fyrir þá,” segir Árni
Haraldsson, lögfræðingur hjá Inn-
heimtustofnun sveitarfélaga.
Um síðustu áramót voru 12.178
meðlagsgreiðendur skráðir hjá
stofnuninni og af þeim var um það
bil helmingur á vanskilaskrá. Þriðj-
ungur allra greiðenda, 4.023 einstak-
lingar, var í alvarlegum greiðsluerf-
iðleikum og þarf Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga að leggja fram umtals-
verðar fjárhæðir árlega til þess að
greiða fyrir þennan hóp.
„Stór hluti meðlagsgreiðenda sem
eru í greiðsluerfiðleikum hjá okkur
eiga í vandamálum víðar og standa
eldci skil á fleiri gjöldum,” segir
Árni. „Ein skýring gæti verið sú að
meðlagsgreiðslurnar koma upp á
erfiðum tímum, þegar fólk stendur
í skilnaði. Sá tímapunktur er hvað
erfiðastur til þess að lenda í aukinni
greiðslubyrði.”
Góðærið hjálpar
Árni segir innheimtuhlutfallið
hafa hækkað á undanförnum árum
sem er jákvæð þróun og þegar at-
vinnuástandið í þjóðfélaginu er gott
þá hækkar innheimtuhlutfallið.
„Að einhverju leyti eru þetta gjöld
sem einstaklingar geyma að greiða
þegar niðursveifla er í þjóðfélaginu.
Árferðið hefur því mikil áhrif á inn-
heimtuhlutfallið,” segir Árni. „Hins
vegar er algengt að þeir sem skulda
hjá okkur skuldi líka annars staðar.
Yfirleitt eru þetta aðilar í miklum erf-
iðleikum, til dæmis vegna veikinda,
neyslu og andlegra vandamála.”
Þörf á viðhorfsbreytingu
Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, þekkir
málaflokkinn vel og er hissa á því
hversu hátt hlutfall meðlagsgreið-
enda er í vanskilum.
MEÐLAGSGREIÐENDUR í
GREIÐSLUERFIÐLEIKUM:
INNHEIMTUHLUTFALLIÐ
FER HÆKKANDI:
Laufey. „Hvert mál er einstakt og að-
stæður persónubundnar. Meðlagið
getur verið mikið fyrir greiðandann
en á móti lítið fyrir þiggjandann því
þetta er aðeins brot af kostnaði við
að framfleyta barni.”
Sigurður Kári tekur undir orð Lauf-
eyjar um að meðlagsgreiðslurnar
dugi ekki til framfærslu barns.
„Almennt er viðurkennt að einfalt
meðlag sé ekki of hátt. Strangt til
tekið er kostnaður þeirra aðila sem
framfleyta börnunum mun meiri en
meðlagið nær að dekka,” segir hann.
Varhugavert að hækka gjöldin
Árni segir erfitt að hækka meðlags-
gjöldin því slíkt gæti aukið vanskilin.
„Fara þarf varlega í umræðu um
hækkun meðlagsgjalda því spyrja
verður hver muni í raun greiða þá
hækkun á endanum. Eru hinir með-
lagsskyldu aðilar færir um að standa
undir slíkri hælckun?” segir Árni.
Sigurður Kári telur lausnina fólgna
í viðhorfsbreytingum hjá þeim sem
eiga að greiða meðlag.
„Einstaklingar verða að átta sig á
Meðlags-
greiðslur eiga
að ganga fyrir
ððrum greiðslum.
Sigurður Kári
Kristjánsson
Þingmaður
„Þetta er hrikaleg staða. Mín
skoðun er sú að meðlagsgreiðslur
eigi að ganga fyrir öðrum greiðslum
og ekki við aðra að sakast en þá sem
eru greiðsluskyldir,” segir Sigurður
Kári. „Ég á erfitt með að trúa því að
allir þessir einstaldingar sem ekki
standa í skilum hafi ekki efni á því.”
Mikið að greiða en lítið að þiggja
Laufeyðlafsdóttir.formaðurFélags
einstæðra foreldra, segir hagsmuni
félagsmanna vera ólíka því innan vé-
banda þess séu bæði greiðendur og
þiggjendur meðlagsgreiðslna.
„Þessi staða er mjög slæm í olckar
huga. Almennt þarf að efla fjárhags-
aðstoð við einstaklinga sem eiga í
fjárhagserfiðleikum og ekki síst við
þá sem eru að sjá um börn,” segir
■ Fjöldi meðlagsgt.eiðenda 12.178
■ 96 prósent meðlágsgreiðenda eru
feður
■ Helmingur meðlagsgreiðenda er á
vanskilaskrá*
■ Meðlagsgreiðendur í greiösluerfiðleik
um 4.023
‘vanskil að lágmarki 100.000 krónur.
■ Gjaldþrota skuldarar: 121
■ Upphæð: 250 milljónir
■ 848 skuldarar með skiptalok:
2,5 milljarðar
■ 2.016 skuldarar með árangurslaust
fjárnám: 5,6 milljaröar
■ 419 skuldarar óstaðettir í húsi/
heimilislausir: 526 milljónir
■ 560 skuldarar sem eru/hafa verið i
afplánun: 1,5 mllljarðar
■ 59 óuppgerð dánarbú: 158 milljónir
Samtals: 11,5 milljarðar
: 2005 78,1 prósent
2004 74,7 prósent
: 70,8 prósent
2002 67,8 prósent
því að það gengur ekki að trassa þessi
gjöld. Bæði kemur það sér illa fyrir
viðkomandi á endanum en fyrst og
fremst hefur þetta slæm áhrif fyrir
framfærsluaðilann,” segir Sigurður
Kári.
Meðlagsgreiðendur
í vandræðum Helmingur
allra meðlagsgreiðenda
er á vanskilaskrá.
úmsrunoMúsio
Dæmdur í átta mánaða fangelsi:
23 ára misnotaði barn
Járnmádel bílar
í miklu úrvali.
Tómstundahúsið • Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid
Tuttugu og þriggja ára gamall
maður var dæmdur í átta mánaða
fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Hann svaf hjá tólf ára gamalli
stúlku tvisvar og lét hana hafa við
sig munnmök i október 2005. Hann
er einnig dæmdur fyrir að hafa haft
barnaklámsmynd undir höndum.
Maðurinn kynntist stúlkunni í
gegnum afþreyingarvefinn betra.
net og síðar þróuðust samskipti
þeirra yfir í MSN. Hann hitti stúlk-
una fyrir utan apótek og fór með
hana á bíl í Öskjuhlíðina þar sem
glæpurinn átti sér stað.
Maðurinn ber fyrir dómi að hann
hafi ekki vitað hversu ung stúlkan
hafi verið en sjálfur taldi hann hana
fimmtán til sextán ára gamla. I
dómsorði segir hins vegar að hann
hafi gert sér fyllilega grein fyrir
aldri stúlkunnar enda hafi hann
spurt hana um aldur í gegnum MSN-
skilaboð. Hún hafi þá sagt að hún
væri að fara í áttunda bekk. Mað-
urinn sagði við stúlkuna í gegnum
netspjallið að hann vildi vera með
yngri stelpu. Honum er einnig gert
að greiða sfulkunni 600 þúsund
krónur í miskabætur.