blaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 24
3 6 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006
blaðið
menntun c Wám og starf leikskólabarna Laugardaginn 23. september verður haldin ráðstefna i Brekkuskóla á vegum kennaradeildar Háskólans á Akureyri um nám og starf leik-
menntun@bladid.net skólabarna.
Agavandamálin
mjög sveiflukennd
Agavandamál rædd
Skólastjórar ígrunnskólum í Reykjavík munu
hittast mánaöarlega í vetur og ræöa hegöun-
arvandamál.
verið bullandi agavandamál í ein-
um skóla eitt árið og svo allt með
kyrrum kjörum það næsta,“ seg-
ir Sigurgeir og bætir við að skýr-
ingarnar geti verið ýmsar. „Þetta
fylgir oft skólum í nýjum hverf-
um þar sem er mikið rót á
öllu og nemendur eru að
kynnast og starfsmenn
líka. Á unglingastigi
getur verið sterkur
hópur eða klíka á ung-
lingastigi sem hleypir
öllu upp í ákveðinn
tíma.“
Skólastjórar grunnskólanna
í Reykjavík ætla að hittast einu
sinni í mánuði á þessu skóla-
ári og ræða hegðun, samskipti
og agastjórnun. Hugmyndin
með þessum samráðsvettvangi
er að byggja upp samfélag þar
sem skólastjórar geta miðlað af
reynslu sinni á þessu sviði. Jafn-
framt verður leitað leiða til að
þróa samstarf skóla og byggja
upp þjónustuvef um málaflokk-
inn.
Verkefnið er sprottið upp af
rannsókn sem Ingvar Sigur-
geirsson, prófessor við Kennara-
háskóla Islands, og Ingibjörg
Kaldalóns, verkefnisstjóri hjá
Rannsóknarstofnun skólans,
gerðu um agavandamál í reyk-
vískum skólum á síðasta ári fyrir
menntasvið Reykjavíkur. Niður-
stöður rannsóknarinnar verða
kynntar á næstu vikum.
Ekki viðvarandi vandi
„Meginniðurstaða okkar er sú
að það er afskaplega mikil hreyf-
ing á þessum málum. Það geta
Skortir úrræði í erfiðum málum
Sigurgeir segir að menn kunni
að taka á helstu agavandamálum
nema þegar komi að allra erf-
iðustu málunum sem tengjast
meðal annars börnum með gerð-
raskanir. í þeim tilfellum skorti
úrræði, kunnáttu og fagfólk.
„Samráðsvettvangurinn er
sprottinn upp vegna þess að
menn vilja náttúrlega taka á
þessum málum og fá einhverja
heildarsýn á þau. Nú er ljóst að í
sumum skólum eru menn búnir
að ná góðum tökum á agavanda-
málum og það er spurning hvort
starfsfólk þeirra getur verið inn-
an handar þegar þau blossa upp í
öðrum skólum,“ segir Sigurgeir.
„Eitt sem við erum mjög hugsi
yfir er að meirihluti viðmælenda
okkar telur að aga fari eitthvað
aftur en við erum ekki alveg viss
um að það sé rétt mat. Menn hafa
talið það á öllum tímum að unga
kynslóðin sé erfiðari en sú sem
vaxin er úr grasi,“ segir Sigurgeir
að lokum.
MYNDLISTASKOLINN
www.myndlistaskolinn.is
í REYKJAVÍK sími 551 1990
Skráning á myndlistanámskeiö fyrir börn
og fulioröna stendur yfir ! ÖRFÁ LAUS PLÁSS !
'méi
Þjálfar rökhæfni Barnaheimspeki þjálfar rökhæfni barna um leið og hún þroskar og mótar gagnrýna og skapandi
hugsun að mati Hrannars Baldurssonar sem kennt hefur barnaheimspeki um árabil.
Heimspeki fyrir börn og unglinga
Þjálfar rökhugsun
og bætir námshæfni
Barnaheimspeki er leið til að
þroska og móta gagnrýna og skap-
andi hugsun barna og þjálfa rök-
hæfni þeirra með samræðu. Hún
eykur jafnframt námshæfni þeirra
að sögn Hrannars Baldurssonar sem
hefur í mörg ár haldið námskeið í
barnaheimspeki bæði hér heima og
erlendis.
„Það er ljóst að einkunnir barna
sem taka þátt í barnaheimspeki fara
upp á við. Hreinn Pálsson gerði sam-
anburðarkönnun á Akureyri fyrir
nokkrum árum og þar kom í ljós
að börnin sem voru í heimspekinni
voru fljótari að ná samhengi í öðr-
um viðfangsefnum,” segir Hrannar
og bætir við að hans eigin náms-
hæfni hafi aukist eftir að hann fór
að stunda heimspeki á þennan hátt.
Ekki er kveðið á um barnaheim-
speki í námskrá grunnskóla en
Hrannar er þeirrar skoðunar að svo
ætti að vera.
„Það sem kemst næst þessu er lífs-
eikni en hún er bara ekki útfærð á
)ennan hátt. Það er mjög breitt bil
)arna á milli,” segir Hrannar.
Hlustar á hugmyndir barnanna
Heimspekikennslan byggist aðal-
lega á samræðuaðferðinni og notast
Hrannar gjarnan við texta svo sem
smásögur, skáldsögur eða ljóð sem
eru sérstaklega samdir fyrir barna-
heimspeki.
„Börnin lesa þennan texta eða
hlusta á mig lesa hann og út frá því
vakna spurningar hjá þeim. Ég ein-
beiti mér að spurningum nemend-
anna frekar en að fara út í einhverj-
ar fyrirfram ákveðnar spurningar,”
segir Hrannar og bætir við að börn-
in reyni í sameiningu að finna svör
við spurningunum.
„Þá skjóta að sjálfsögðu nýjar
spurningar upp kollinum og mitt
hlutverk er að nýta mína þekkingu
úr heimspekinni og heimspekisög-
unni til að sjá hvernig þessar spurn-
ingar sem þau eru að velta fyrir sér
tengjast spurningunum sem hafa
verið spurðar áður og ræddar með-
al heimspekinga. Ég reyni að koma
þeirri þekkingu inn í samræðuna
með börnunum án þess að segja
þeim nákvæmlega hvaðan hún kem-
ur,” segir Hrannar.
Hvað er réttlæti og sanngirni?
„Á þessum námskeiðum geta kom-
ið upp rökfræðileg hugtök sem tengj-
ast því hvernig við hugsum, hvernig
við tengjumst öðrum, hvernig önn-
ur börn hugsa, hvort við hugsum
öll eins eða á ólíkan hátt. Þetta fer
aðeins út í siðfræðina líka, hvað sé
rétt og hvað sé rangt, gott eða illt.
Hvað er réttlæti og sanngirni? Þetta
eru hugtök sem eru notuð í daglegu
máli en við skiljum ekki endilega án
þess að greina þau vandlega. Maður
heyrir kannski börn segja úti á leik-
velli: „Þetta er ekki sanngjarnt” en
hefur maður einhvern tíma heyrt
barn ræða við annað barn um hvað
sanngirni sé? Það geta komið alveg
ótrúlegustu hugmyndir út úr slíkri
samræðu sem er mjög spennandi að
hlusta á,” segir Hrannar.
Hrannar nam barnaheimspeki
hjá upphafsmanni hennar, heim-
spekingnum Matthew Lipman.
Lipman hefur meðal annars samið
námsefni fyrir kennslu í barnaheim-
speki og hefur Hreinn Pálsson þýtt
sumar bækur hans á íslensku.
Vísanir í heimspekisöguna
„I hverri einustu málsgrein í
sögunum geturðu fundið vísanir
í heimspekiverk héðan og þaðan.
Lipman er með svo gífurlega djúpa
þekkingu á heimspekisögunni að
honum tekst að mynda netmöskva
hugmynda inn í samræður söguper-
sónanna og það sem er að gerast hjá
þeim. Maður fær ekki svo mikið út
úr því að lesa textann einan og sér
en ef maður les hann með hópi af
börnum lifnar hann við í hugmynd-
um þeirra,” segir Hrannar Baldurs-
son að lokum.
Heimasíða Viskulindar, heim-
spekiskóla Hrannars Baldurssonar,
er www.viskulind.com og netfang
Viskulindar er viskulind@gmail.
com, en hann skipuleggur nám-
skeið fyrir hópa sem sýna barna-
heimspeki áhuga, hvort sem það er
fyrir börn, fullorðna, fagmenn eða
sérhópa sem áhuga hafa á barna-
heimspeki.
f /
'
<0;
sjjpý
Að gera gatt sambarid/hjánaband betra
Viltu læra aðferðir sem raunverulega bregta lífi þínu?
IVfámskeið í I\JLP tækni.
‘' A
Efni námskeiðs:
Hvernig tungumál fólks er nlikt ng
veldur þar af leídandi erfiðleikum í
samskiptum.
Hverníg tjáskiptí eru bætt.
Hverníg vírding hefur áhrif á sam-
bund.
Bullnar stundir í sambnndum.
Hlustun ng skilningur ng margt
margt fleira.
*H£i.
Upplýsingar á www.ckari.cam & í síma: 894-E93H