blaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006
blaöiö
Atlantis á heimleið
Geimferjan Atlantis aftengdist Alþjóölegu geimstöð-
inni aðfaranótt mánudags eftir að hafa lokið einni af
flóknustu geimferð siðari ára. Síðustu ellefu daga
hefur áhöfnin unnið að byggingu geimstöðvarinnar
og meðal annars farið í þrjár geimgöngur.
Fjórir féllu í sjálfsmorðsárás
Fjórir kanadískir hermenn féllu og fjöldi fólks særð-
ist í Kandahar í suðurhluta Afganistans í gær þegar
sjálfsmorðssprengjumaður á reiðhjóli réðst á þá.
Hermennirnir voru að gefa börnum sælgæti þegar
maðurinn sprengdi sig upp.
Hvetja Kínverja til að sýna sveigjanleika
Fjármálaráðherrar sjö helstu iðnríkja heims hvetja kínversk
stjórnvöld til þess að endurskoða peningamálastefnu sínu og
hafa gengi gjaldmiðils síns sveigjanlegra. Ráðherrarnir, sem
funduðu í Singapúr, vara einnig við því að alþjóðahagkerfinu
stafi ógn af aukningu á verndartollum i alþjóðaviðskiptum.
V&ruM/ad taha/upp
nýjar vörur frá/
Varúty faír otj Lawma/
Strætó bs.:
Farþegum Strætó
fjölgar um fimmtung
■ í fyrsta sinn frá stofnun byggöasamlagsins ■ Rafræna kerfið gengur vel
Opnunartími
Mán-fös 11-18
Lau 11-14
Frábær verð
og gæði
Persónuleg
þjónusta
LajMjruk*
www.ynja.is
Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088
Útsölustaðir: Esar Húsavík* Dalakjör Búðardal
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Farþegum Strætó fjölgaði um 200
þúsund í síðastliðnum júlí- og ágúst-
mánuði miðað við sama tíma í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá Strætó
bs. nemur aukningin um fimmtung
á milli ára. Þá jókst heildarfjöldi
farþega um 9,2 prósent sé horft á
annan þriðjung þessa árs miðað við
sama tímabil í fyrra.
Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætó, er að vonum ánægður
með þessar tölur og segir hann í
samtali við Blaðið að það sé gott að
fá loksins að heyra jákvæðar fréttir
7,7,
RÁ
Þar sem gœðagleraugu
kosta minna
www.sjonarholl.is
9.900,- 9.900,- 9.900,- 9.900,- 9.900,-
Reykjavíkurvegi 22
220 Hafnarfirði
9.900,- 9.900,- 9.900,-
565-5970
af Strætó en undanfarið hefur
fyrirtækið setið undir nokkurri
gagnrýni.
Margir þættir leiða til aukningar
„Við höfum verið að sjá þessa já-
kvæðu þróun undanfarna tvo til
þrjá mánuði en höfum ekki viljað
spila því út fyrr en við værum vissir
um að þetta væri ekki bara einhver
bóla,“ segir Ásgeir. Hann segir að
fjölgunina megi fyrst og fremst
rekja til betri þekkingar almenn-
ings á nýju leiðakerfi og þeirra end-
urbóta sem gerðar voru á því fyrr
á þessu ári. Aðrir þættir geta þó
spilað inn í að hans mati og nefnir
hann hátt bensinverð, minnkandi
innflutning á nýjum bílum og al-
mennan samdrátt í þjóðfélaginu.
„Það er hugsanlegt að þessir þættir
hafi áhrif, einfaldlega í ljósi þess að
þrátt fyrir allt er miklu ódýrara að
ferðast með Strætó heldur en að gera
út bíl, hvernig sem á það er litið." Ás-
geir segir að þær leiðakerfisbreyt-
ingar sem gerðar voru í mars hafi
fallið í góðan jarðveg hjá viðskipta-
vinum. „Stóra leiðakerfisbreytingin
gekk nú eins og hún gekk á sínum
tíma, en þessar endurbætur virðast
hafa skilað árangri eins og þessar
tölur sýna,“ segir Ásgeir. Að sögn
hans er þetta í fyrsta skipti í mjög
langan tima sem aukning mælist í
farþegafjölda hjá Strætó. „Aukningu
yfir þetta langt tímabil eins og hér
um ræðir höfum við ekki séð síðan
Strætó bs. varð til árið 2001. Þetta er
því allveg nýtt fyrir okkur.“
Rafræna kerfíð í gagnið
Rafræna greiðslukerfið sem hefur
verið í undirbúningi í langan tíma hjá
Strætó er loks komið í gagnið að hluta
til og segir Ásgeir það hafa gengið vel.
„Skólakortin eru rafræn og búnaður-
inn er að mestu farinn að virka. Þegar
um er að ræða svona nýjan vélbúnað
máalltafbúastviðnokkrumhnökrum
en almennt séð er þetta farið að virka
nokkuð vel,“ segir Ásgeir og bætir við
að um 3000 skólakort séu komin í um-
ferð. Á næstu mánuðum er síðan fyrir-
hugað að setja fleiri gjaldflokka inn í
rafræna kerfið.
Lyfjafyrirtækið Actavis:
Kapphlaupinu
um Pliva lokið
Actavis ætlar ekki að hækka til-
boð sitt til hluthafa króatíska lyfja-
fyrirtækisins PLIVA að svo stöddu.
Fyrirtækið tilkynnti um þetta í kjöl-
far þess að bandaríska fyrirtækið
Barr hækkaði sitt tilboð, en fyrir-
tækin hafa barist um yfirráðin yfir
PLIVA undanfarið.
Actavis telur að núverandi tilboð
þess endurspegli vel virði félagsins
og því sé mál að linni. Actavis hafði
boðið 2,5 milljarða bandaríkjadala í
PLIVA.
Róbert Wessman, forstjóri Acta-
vis, segir að samruni Actavis og
Actavis ætlar
ekki að hækka
boðlð
Róbert Wessman,
forstjóri Actavis.
Pliva sé áhugaverður, en bætir við
að „í samræmi við stefnu okkar um
að greiða ekki of hátt verð fyrir þau
félög sem við kaupum, þá teljum
við að erfitt sé að réttlæta hærra
verð fyrir félagið," segir Róbert í
tilkynningu.