blaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006
blaöiA
5st til atlögu við þinghúsið
Vopnaður maður ók bifreið sinni á öryggisgirð-
ingu við þinghúsið í Washington D.C. i gær.
Maðurinn lagði svo á flótta eftir áreksturinn en
var handsamaður af lögreglumönnum. Þinghús-
inu var lokað í klukkustund vegna atburðarins.
SÓMALÍA ★ ]
Tilræði við forsetann
Bílsprengja sprakk fyrir utan þinghús bráðabirgða-
stjórnar í Sómalíu í bænum Baidoa. Að minnsta kosti
ellefu létu lífið í tilræðinu. Að sögn Ismails Hurre, ut-
anríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, var sprengj-
unni ætlað að fella Abdullahi Yusuf, forseta landsins.
Blair stofnar framtíðarhópa
Blair hyggst setja á laggirnar framtíðarhópa sem eiga að móta stefnu
Verkamannaflokksins til næsta áratugar. Hóparnir munu vinna að
stefnumótun i utanríkismálum, opinberri stjórnsýslu, öryggis- og inn-
flytjendamálum og fleiri málaflokkum. Gagnrýnisraddir segja að Blair,
sé með þessu að reyna að tryggja áhrif sín til framtíðar.
Sádi-Arabía:
Trúarlögregla herjar
á hunda og ketti
Trúarlögreglan í Sádi-Arabíu
hefur skorið upp herör gegn hunda-
og kattahaldi og framfylgir nú
banni á sölu á ferfætlingunum.
Trúarlögreglan hefur til þessa lagt
áherslu á að halda uppi almennu sið-
gæði í landinu en hefur í auknum
mæli snúið sér að sölu hunda og
katta þar sem að hún telur að gælu-
dýrahald megi rekja til spillandi
vestrænna áhrifa. Nýlega gaf trúar-
lögreglan út tilskipun sem bannar
slík viðskipti.
Gæludýrahald er ekki algengt
í Sádi-Arabíu. Eitthvað er um að
fólk noti hunda til veiða og þó að
kettir séu í hávegum hafðir og njóti
almenns velvilja er ekki algengt að
fólk leyfi þeim að dvelja í híbýlum
sínum til lengri tíma. Hins vegar
hefur borið á þvi siðustu ár að
auðmenn séu farnir að kaupa sér
fágæta hunda og ketti og sýni þá á
almannafæri. Trúarlögreglan telur
að slík eftiröpun á siðum Vestur-
landabúa ógni samfélagsgerð Sádi-
Arabíu. Fleiri taka undir áhyggjur
trúarlögreglunnar. AP-fréttastofan
segir frá lesendabréfi sem birtist
í dagblaðinu Al-Madina og þar
spyr bréfahöfundur: „Hver er eigin-
lega tilgangurinn með því að hafa
hund í eftirdragi? Þetta er ekkert
annað en blind eftiröpun á siðum
trúleysingja!” Þrátt fyrir að margir
deili áhyggjunum eru ekki allir á
sama máli. Sumir telja stjórnvöld
hafi brýnni vandamál til þess að
glíma við eins og atvinnuleysi og
hryðjuverkaógn.
En þrátt fyrir tilskipun trúarlög-
reglunnar og áhyggjur af því að
hunda- og kattahald grafi undan
islömskum gildum í landinu hafa
stjórnvöld ekki enn framfylgt til-
skipuninni. Ekki er enn vitað hvort
trúarlögreglan hyggist gera gælu-
dýr upptæk og hvort hún muni hafa
afskipti af fólki sem sést með hunda
og ketti á almannafæri.
Ég nota Sterimar, það hjálpar
Fæst í apótekum
Hraðakstur:
Umferðarátak skil-
aði litlu um helgina
■ Lögreglan merkti lítinn mun á umferðinni þrátt fyrir
mikla umræðu ■ Nær ekki til sökudólganna
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Umferðarátakið „Nú segjum við
stopp!" sem ýtt var úr vör í síðustu
viku með borgarafundum víða um
land og undirskriftasöfnun á Net-
inu virðist ekki hafa orðið til þess að
draga úr umferðarlagabrotum um
helgina. Aðalvarðstjóri umferðar-
deildar segir að svo virðist sem boð-
skapurinn nái ekki eyrum þeirra
sem helsta sök eigi í málinu. 33 voru
teknir fyrir of hraðan akstur í um-
dæmi lögreglunnar í Reykjavík.
Venjuleg helgi þrátt fyrir umræðu
Helgin var í engu frábrugðin
öðrum helgum í umferðinni í Reykja-
vík þrátt fyrir mikla umræðu um
ofsaakstur síðustu daga. Guðbrandur
Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðar-
deildar, segir að svo virðist sem ákall
um að fara sér hægar hafi ekki haft í
för með sér hægari akstur.
„Því miður, þrátt fyrir þessa góðu
fjölmiðlaumræðu um umferðarmál
og það sem betur má fara, þá virðist
það ekki ná til þeirra sem það þarf
að ná til.“ Guðbrandur segir fyrst
og fremst brýnt að umræðan nái til
þeirra sem stundi vítaverðan akstur.
„Þetta virðist ná til hins almenna borg-
ara sem reynir að vanda sig betur en
áður, en þeir sem helst ættu að taka
þetta til sín hafa ekki látið segjast."
Að sögn Guðbrands var helgin í litlu
frábrugðin undanförnum helgum.
„Ef við tökum helgina frá föstudags-
kvöldi og fram á mánudagsmorgun
kemur í ljós að umferðartengd mál
voru 166 af þeim 203 bókunum sem
gerðar voru um helgina,“ segir hann.
„Tölurnar eru fyrir utan umferðaró-
höpp eða árekstra. Umferðaróhöppin
voru svo 48, þar af átta skráð sem
umferðarslys. Sem betur fór voru
þau ekki stóralvarleg en þó þurfti
sjúkraflutning í fimm af þessum átta
slysum.“
Tekinn á 141 í Mosfellsdalnum
Alls voru 33 teknir fyrir of hraðan
akstur um helgina og þar af voru 22
yfir hundrað. „Grófasta brotið var
framið þegar ökumaður var mældur
á 141 kílómetra hraða þar sem leyfi-
legur hámarkshraði er 70. Þetta
brot var sérstaklega gróft þar sem
þetta gerðist í Mosfellsdalnum þar
sem íbúðabyggð er tiltölulega mikil
beggja vegna og vegurinn frekar
mjór.“ Aðspurður hvað sé til ráða til
þess að ná til þeirra sem ekki láta sér
segjast nefnir Guðbrandur aukna
og kröftuga löggæslu. Hann telur að
skoða þyrfti tekjutengdar sektir.
„Til dæmis þyrfti að minu mati
að hækka fésektir þannig að þær
komi raunverulega við pyngjuna
hjá þessum mönnum. Víða í ná-
grannalöndum okkar eru sektir
tekjutengdar og það er eitthvað sem
ég tel að þyrfti að skoða hér á landi.
Það skiptir mann með milljón á
mánuði engu ef hann þarf að borga
fimmtíu þúsund krónur í sekt,“ segir
Guðbrandur. Hann bætir því við að
eftirlit lögreglunnar hafi verið venju-
bundið. „Við höfum frá áramótum
lagt eins mikinn kraft í umferðareft-
irlitið og okkur er unnt og eftirlitið
um helgina var í samræmi við það.“
15,4“ WSXGA 1680x1050 skjár
Gerðu verð- og gæðasamanburð
áður en þú fjárfestir í fartölvu.
ORMSSON
Vaxtalaust: Kvnninaanerð
Kynningarverð:
Kr. 199.900,-
I SMÁRALIND • Slmi 530 2900 |
I AKUREYRI • Slmi 461 5000 |
| SlÐUMÚLA 9 • Slmi 530 2800
www.ormsson.is
IM Tölvukaupalán til 36 mánaða (*)(*> 9 mánaða vaxtalaus raðgreiðslusamningur
ZEPTO 4015SE
Fjölhæf og þolgóð
15" XGA skjár
1,5Ghz Intel Celeron 1MB örgjörvi
512MB DDR2 vinnsluminni
80GB harður diskur
Innb. DVD skrifari, þráðl. netkort o.fl.
Allt að 5 klst. rafhlöðuending
ZEPTO 2425W
Öflug og skemmtileg
15,4" Crystal Clear breiðtjaldsskjár
Intel Core Duo l,83Ghz örgjörvi
Geforce Go 7600 256MB skjákort
100GB harður diskur
1024MB DDR2 vinnsluminni
Innb. DVD skrifari, þráðl. netkort,
vefmyndavél, fingrafaralesari o.fl.
Allt að 4 klst rafhlöðuending
Vaxtalaust:
Kr. 11.598,-
Kynningarverð:
Kr. 99.900,- )
ZEPTO 6615WD
Sú öflugasta
Geforce Go 7600 512MB sk|
1024MB DDR2 vinnsluminn
100GB 7200rpm harður disl
Innb. DVD skrifari, þráðl
vefmyndavél o.fl