blaðið - 19.09.2006, Side 26
3 8 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006
blaðið
ferðalög
ferdalog@bladid.net
Allt getur gerst
- Þaö er varhugavert að ferðast án þess að vera meö ferðatryggingu.
Það er aldrei að vita hvað getur gerst og þvi er best að fara varlega.
rauða
húsið
Rafmagnslaust
í Rauða húsinu Eyrarbakka
Á laugardagskvöldum i vetur verða rafmagnslausir
tónleikar i Norðursal Rauða hússins ó Eyrarbakka, með
nokkrum af fremstu tónlistarmönnum landsins
Matreiöslumeistarar okkar hafa sett saman sérstak-
lega girnilegan matse&il, sem stendur tónleikagestum
til boða. Þú einfaldlega hringir núna í 483 3330 og
pantar þér rafmagnslaust borð í Rauða húsinu - og nýtur
kvöldsins með fróbærum tónlistarmönnum í einstakri og
rafmagnslausri nólægð.
23. september:
■ Valgeir Guöjónsson, Stuðmaður, Spilverksmaður og
húmoristi af guðs nóð leikur og syngur af fingrum fram.
7. október:
■ Ellen Kristjónsdóttir og Eyþór Gunnarsson flytja
fegurstu og eftirminnilegustu perlur Ellenar.
14. október:
■ Guölaug Dröfn syngur meðal annars lög hinnar dáðu
Evu Cassidy.
21. október:
■ KK flytur sín þekktustu lög sem þú vaknar yfirleitt með á
heilanum á hverjum morgni, og nokkur fleiri í viðbót.
28. október:
■ Kristjana Stefáns, hin dáða jazzsöngkona okkar
sunnlendinga, flytur okkur i hæstu hæðir og leyfir okkur
að vera þar.
4. nóvember:
■ Hinar einu og sönnu Borgardætur, Andrea Gylfa,
Ellen Kristjáns og Berglind Björk mála Eyrarbakka
rauðan, ásamt Eyþóri Gunnarssyni, og hvorki
Bakkinn né gestir munu verða samir á eftir.
Matseöill: frá kl. 20.00 stundvíslega.
■ sjávarréttasúpa rauða hússins
■ langeldaður lambaskanki og islenskur humar
eöa:
■ stórlúöusteik og humarhali
■ heimalagaöur konfektbiti með jarðaberjum og rjóma
■ kaffí
Kr. 5.900,- pr.mann
Mikið framboð haustferða
Dublin og Barce-
lona vinsælust
Barcelona er vinsæll áfangastaður á haustin enda falleg borg.
Falleg
Þrátt fyrir að sumrinu sé lokið er
ekki þar með sagt að fólk hætti að
ferðast. Svokallaðar haustferðir hafa
löngum verið vinsælar og ljóst er að
framboð ferðaskrifstofa er mjög
mikið. Flestar ferðirnar eru farnir
upp úr október og allt fram í byrj-
un desember. Laufey Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri Plúsferða, segir
að það sé ekki lengur svo að fólk
fari sérstakJega í verslunarferðir og
fylli margar ferðatöskur af jólagjöf-
um. Hins vegar er meira um að far-
ið sé til að upplifa borgina og njóta
lífsins. „Dublin er alltaf rosalega
vinsæl á haustin og hefur verið það
mjög lengi. Ég skil það fullkomlega
enda er það flottur staður og þar er
heilmikið af góðum veitingastöðum
og öðru.“
Prag er vinsæl borg
Bjarni Hrafn Ingólfsson, markaðs-
stjóri Heimsferða, segir að vinsældir
haustferða séu stöðugar enda eru
alltaf einhverjir hópar ásamt ein-
staklingum sem-vilja ferðast á haust-
in. „Með okkur fer fólk til Barcelona,
Prag, Búdapest, Kraká, Ljúblíana og
Rómar og það er mjög vel bókað í
flestar ferðir. Það er einna vinsælast
að fara til Barcelona og hún er vin-
sæl allan ársins hring. Við bjóðum
upp á flug þangað alla mánuði ársins
nema desember, janúar og febrúar.
Barcelona er flott og yndisleg borg.
Prag er líka mjög vinsæll áfangastað-
ur en hann varð vinsæll fyrir um
sex árum. Það má segja að Prag sé
eins og London og Kaupmannahöfn,
það er hægt að fara þangað aftur og
aftur. Það er ennþá styttra síðan við
byrjuðum að bjóða upp á ferðir til
Kraká og þær eru meira og minna
uppseldar en þannig hefur það alltaf
verið. Við byrjuðum með Ljúblíana í
fyrra og það seldist upp en við bjóð-
um upp á fleiri ferðir þangað í ár.“
Jólaferð til Lúxemborg
Plúsferðir buðu líka upp á ferðir
til Ljúblíana í fyrra og samkvæmt
Laufey voru þær ferðir mjög vinsæl-
ar. „Eins buðum við upp á ferðir til
Varsjár í fyrra en þær ferðir vöktu
mikla athygli og fólki fannst mjög
gaman. I ár förum við til Zagreb í
Króatíu í fyrsta skipti en það er mjög
skemmtileg borg. Madrídar-ferðirn-
ar eru líka mjög vinsælar og þær selj-
ast alltaf upp,“ segir Laufey og bætir
við að í nóvember verður farin jóla-
ferð til Lúxemborgar. „í þeirri ferð
er takmarkið ekki endilega að versla
heldur meira að upplifa jólastemn-
inguna, skoða jólamarkaði og fara í
vínsmökkunarferð."
svanhvit@bladid.net
Týndur farangur
Þrátt fyrir að ferðlög eigi að vera
ánægjuleg geta óhöppin oft gerst og
eitt það hvimleiðasta er að týna far-
angri. Það er ekki einungis pirrandi
að týna farangri heldur getur það á
stundum komið sér sérstaklega illa,
ef til að mynda ferðaleiðbeiningar,
heimilisfang og nafn hótels og aðr-
ar upplýsingar eru í ferðatöskunni.
Alltaf er hægt að kaupa ný föt í
stað þeirra sem týnast en það er
heldur flóknara þegar um er að
ræða myndavél, minniskort með
fjölskyldumyndum og aðra per-
sónulega muni. Sem betur fer er
ýmislegt sem ferðalangar geta gert
til að reyna að koma í veg fyrir að
farangur týnist. Aðalatriðið er vit-
anlega að vera með góðan merki-
miða sem er vel festur á. Bestu
merkimiðarnir eru huldir að hluta
til og þannig er hægt að vernda upp-
lýsingarnar.
Merkja töskuna vel
Það er líka mjög gott að hafa sömu
upplýsingar og eru á merkimiðanum
á áberandi stað innan í töskunni, ef
ske kynni að merkimiðinn týndist.
Eins er nauðsynlegt að hafa ferða-
áætlun á góðum stað svo starfsfólk
flugvalla geti auðveldlega fundið eig-
anda töskunnar, ef það reynist nauð-
synlegt. Gott er að merkja töskuna á
áberandi hátt þannig að enginn taki
hana í misgripum af færibandinu,
það má til dæmis setja litaðan borða
á töskuna eða líma upphafsstafina
á töskuna með lituðu límbandi. Að
sama skapi er nauðsynlegt að eiga
mynd af töskunni til að sýna starfs-
fóíki flugvallarins ef hún skyldi
týnast. Skrifaðu niður nákvæmlega
hvað er í töskunni um leið og þú
pakkar niður. Skildu eftir afrit af
listanum heima, ef ske kynni að þú
þyrftir að krefjast bóta.
Áberandi Gott er að merkja farang-
urinn á áberandi hátt svo enginn taki
hana í misgripum af færibandinu.