blaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 42

blaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 42
Iplj _ LLI *ta__ (ÖJ ÓBYGC ..TH Syncf með lilcr ÍLFABAKKA .1_ „jííM NACHO LIBRE kl. 6-8-10:20 NACHO LIBREVIP kl. 2-4:50-8-10:20 OBYGGÐIRNAR kl. 1:45-4-6 THE WILD M/- kl. 4-6:15-8:10 THE ALIBI kl. 8:10-10:20 Bi.16 BORN kl. 6 -8-10:10 B11 STEP UP o oo p o MAURAHRELLIRINN M/ í,i kl. 1:45-3:50 LADY IN THE WATER kl. 10:20 B1 12 OVERTHE HEDGE kl. 1:45-3:50 Le#) BILAR M/- slM. kl. 1:45 - 4 Kringlunni wm NACHO LIBRE kl. 5:45-8-10:15 Eiq ÓBYGGÐIRNAR kl. 2 - 4 - 6 MSTEPUP kl.3:40-5:50-8-10:15 Bi.7 | UNITED 93 kl. 8-10:15 MAURAHRELLIRINN Isl kl. 2 - 3:50 OVER THE HEDGE kl.2 SAMWiÆíl Keflavík ÖBYGGÐIRNAR t/is! tali kl.2-4-6 STEP UP kl.6-8-10 TAKK FYRIR AÐ REYKJA M.8 UNITED 93 kJ. 10 MAURAHRELLIRINN Id. 2-4 Akureyri NACHO LIBRE kl.8-10 ÚBYGGÐIRNAR 7 .Jm kl.2-4-6 BÖRN áðens svnd um hdaina kl.6-8-10 MAURAHRELLIRINN kl.2-4 RENAISSANCE kl. 3:30 ísíöastasinn DOWNIN THE VALLEY kl. 5:50 í síöasta sinn Bjj&ára. . BÖRN kl.3:30-5:50-8-10.15 Bil2 THE PROPOSITION kl. 5:50-8-10.15 Bi 12- ÓBYGGÐIRNAR kl. 3:30 - 6 - 8 tCýiö- AN INCONVENIENTTRUTH kl. 8 -10:15 BJOLFSKVIÐA kl. 10:15 PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl.6-9 3t 12 • MAURAHRELLIRINNvmli kl. 3:30 JOHN TUCKER MUSTDIE kl. 2,4,6,8og 10 CLERKS2 kl. 5.45,8 og 10.15 B.I.12ÁRA ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.45,8 og 10.15 ÞETTA ER EKKERT MÁLILLDQJS kl. 330,5.45,8 og 10.15 MYSUPER EX-6IRLFRIEND kl. 5.50,8, og 10.10 LíTTLE MAN kl. 1.50 og 3.50 B.1.12 ÁRA GRETTIR 2 M. ÍSIENSKU TAU kl. 2 og 3.50 6RETT1R 2 M. ENSKU TAU kl. 1.50 og 3.50 nEcnfoGinn CRANK kl. 6,8og10B.1.16ÁRA JOHN TUCKER MUSTDIE kl. 3,6,8og 10 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 10.15 TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 og 10.10 B.l. 7 ÁRA VOLVER kl. 3, 5.50og8B.L12ÁRA LEONARD COHEN: l'M YOUR MAN kl.6 FACTOTUM kl.3 GRETTIR 2 M. ISLENSKU TAU kl.3 CRANK kl.4,6,8og 10B116ÁRA SCOOP kl. 6,8 og 10 YOU, MEANDDUPREE kl.4,6,8og10 MY SUPER EX-GIRLFRIEND kl.2 GRETTIR 2 kl. 2 og 4 ÍSLENSKT TAL ÁSTRlKUR OG VÍKINGARNIR kl. 2ÍSLENSKTTAL íjtii i/líJ] JOHN TUCKER MUST DIE kl.8og10 CLERKS2 kJ8og 10 MYSUPER EX-GIRLFRIEND kJ.6 ÞtrrrA er ekkert mál kl.6 GREmR 2 w.4!si£NSKnAt. AstrIkur OG VlKINGARNIR kJ. 4 ISLBASKT TAL i 42 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 blaöiö lifid@bladid.net Marcia Cross ólétt Marcia Cross, sem leikur Bree Van de Kamp {Aðþrengdum eiginkonum, á von á tviburum. Cross, sem er 44 ára, gekkst undir frjósemisaðgerð og mun fæða í apríl. Eiginmaður hennar er verðbréfamiðiarinn Tom Mahoney en þau eíga engin börn fyrir. ívar Bjarklind vinnur að fyrstu sólóplötu sinni, Blóm eru smá Búinn að finna tóninn Eftir Björn Braga Arnarsson bjorn@bladid.net Ivar Bjarklind vinnur um þessar mundir hörðum höndum að útgáfu fyrstu sólóplötu sinnar. ívar, sem gerði garðinn frægan með knatt- spyrnuliði ÍBV á árum áður, hefur verið að semja tónlist um árabil og var forsprakki hljómsveitarinnar Mír sem gaf út plötu fyrir fjórum ár- um. Hann segist þó ekki hafa fund- ið sinn rétta tón fyrr en nú og bíður þess með eftirvæntingu að ýta frum- burðinum úr vör. „Ég hef ekkert verið að spila síð- an Mír lagði upp laupana enda hef ég ekkert haft að spila sem ég vil setja fram. En ég hef verið að semja mikið og þegar upptökuferlið hófst höfðum við úr 25-30 lögum að velja,“ segir ívar, en hann vinnur plötuna í samstarfi við Orra Harðarson, tón- listarmann og upptökustjóra. „Við tókum okkur tíma til að velja úr lagabunkanum og ákveða heildar- svip plötunnar áður en við fórum að vinna á fullu. Við skárum svo hraustlega niður fjöldann og hófum að taka upp fyrir um tveimur vik- « um. Sáttari í poppinu Platan ber heitið Blóm eru smá og stendur til að hún komi út í byrjun nóvember. ívar segir að lögin flokk- ist undir melódíska popptónlist, enda sé það sú tónlist sem honum láti best að semja. „Um leið og ég fer að rembast eitthvað í aðrar átt- ir finnst mér sjarminn fara úr laga- smíðunum mínum. Ég er búinn að vera að semja heillengi en hef kannski ekki verið nógu ánægður með efnið fyrr en núna. Mér fannst kannski áður að ég þyrfti að vera í einhverjum jaðri en svo bara áttaði ég mig á því að ég á ekkert heima þar og ég er miklu sáttari með að semja popp,“ segir ívar. Aðspurður um fyrirmyndir segir Ivar erfitt að tiltaka ákveðinn tón- listarmann eða hljómsveit. „Ég fell mjög auðveldlega fyrir góðum popp- melódíum, sama hvaðan þær koma, en annars veit ég ekki alveg hvaða sveitir maður á að þylja upp. Ég er ákaflega hrifinn af Paul McCartn- ey sem lagasmið þó að maður fari náttúrlega ekki að Iíkja sér við hann, enda væri það dauðasynd,“ segir ívar. „Við lögðum bara upp með það frá upphafi að vera á þessari popp- línu. Gera „mainstream“ íslenskt popp, án froðutexta.“ Fótbolti og tónlist vafasöm blanda ívar ætti að vera knattspyrnuunn- endum að góðu kunnur en hann átti farsælan feril í íslenska boltanum og varð meðal annars Islandsmeist- ari með Eyjamönnum 1997 og 1998 og KR-ingum 2000. Hann segir það þó vafasaman heiður að vera knatt- spyrnuhetja þegar menn ætla að koma sér áfram í tónlistargeiranum. „Þegar fólk les um knattspyrnu og tónlist í sömu greininni eru kannski margir sem fara að hugsa um ein- hver hress stuðningsmannalög, en það er samlíking sem ég vil slá út af borðinu strax. Kannski er það bara ég sem er svona viðkvæmur fyrir þessu,“ segir ívar í léttum tón. Landsmenn fengu einmitt fyrst að heyra í ívari þegar hann söng stuðningslag ÍBV, Komum fagnandi, sem segja má að hafi orðið ódauð- legt. „Það var mikið fjör í kringum Eyjaliðið á þessum tíma og það var mjög gaman að þessu. En ég myndi aldrei fara að tala eitthvað út frá því, þó að það sé kannski eðlilegt að það komi upp, enda samdi ég hvorki lag- ið né textann.“ Gott samstarf Ivar segir samstarfið við Orra hafa gengið vonum framar og mærir hann mikið fyrir frammistöðu sína. „Ég sem lögin og textana sjálfur en Orri kemur mjög snemma inn í ferl- ið og vinnur náið með mér. Hann er búinn að fara á kostum i þessu ferli og það hefur verið frábært að vinna með honum. Hann sér um mestall- an hljóðfæraleik en Birgir Baldurs- son trommar," segir ívar. Hann segist ætla að fylgja plöt- unni eftir með tónleikahaldi í nóv- ember og desember en þvertekur fyrir að hann muni herja á balla- markaðinn. „Við erum langt komn- ir með að setja saman band og munum svo fylgja þessu eftir, en spilamennskan ræðst náttúrlega bara af eftirspurn. Maður hefur ekki hugmynd um hvernig viðtök- urnar verða. Það verður bara að koma i ljós,“ segir Ivar að lokum. Förðunar- ug naglakeppni Keppt verður í eftirfarandi flokkum Förðun IMemar & farðunarfræðíngar (Make up ArtístJ T ískuförðun Tímabilaförðun !\ieglur IXIemar & naglafræðingar IVaglaásetining Fantasíuneglur IVánari upplýsingar: www.islandsmot.ls/kanan tölvupóstur: keppni@islandsmot.is Sími: 534 7010 Umsóknarfrestur er tíl 6. október BOOG Framkvæmdaraöili: Ht ÍSLANDSMÓT DMX var nauðgaö Tashera Simmons, eiginkona rapparans DMX, segist standa þétt við bak eiginmanns síns þrátt fyrir að hann hafi barnað aðra konu. Simmons segir húsbónda sinn ekki eiga nokkra sök að máii því honum hafi ein- faldlega veriö nauðgað. „Þetta hljómar kannski eins og eitt- hvert kjaftæði, en það er ekki eins og það geti ekki gerst að karlmanni sé nauðgað,” sagði Simmons. Konan, sem á að hafa nauðgað rapparanum, er sögð hafa talið honum trú um að hún ynni fyrir góðgerðasamtök og því mun DMX hafa gefið henni símanúmer sitt. Þau eiga síðan að hafa hist og konan fengið vilja sínum framgengt þegar rapparinn saklausi var sofandi. Simmons segist ekki vilja hugsa meira um þetta mál en segir að eiginmaður sinn hafi lært sína lexíu: „Nú sefur hann alltaf með Ijósin kveikt," sagði Simmons og telur það greinilega geta komið í veg fyrir samfarir og hvað þá nauðgun.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.