blaðið - 19.10.2006, Síða 6

blaðið - 19.10.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaðið INNLENT FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA Lögheimili í frístundabyggð bönnuð Dvöl í húsnæði sem byggt er á svæði sem skipulagt er sem frístundabyggð getur ekki talist ígildi fastrar búsetu. Skráning lögheimilis í slíku húsnæði verður því óheimil samkvæmt nýju frum- varpi félagsmálaráðherra um frístundabyggð. REYKJAVÍK Keyrt á tvo vegfarendur Keyrt var á tvo gangandi vegfarendur í gær. Þann fyrri á mótum Kringlumýrar og Miklu- brautar og hinn seinni á mótum Reykjahlíðar og Miklubrautar. Vegfarendurnir slösuðust ekki alvarlega en umferð tafðist eitthvað. REYKJAVÍK Efling þjónustu við aldraða Ritað var undir viljayfirlýsingu um byggingu þjónustuíbúða fyrir eldri borgara í Reykjavík í gær. Byggja á 3.800 fer- metra þjónustu- og menningarmiðstöðvar í Spönginni og 80 til 10 öryggis- og þjónustuíbúða og um 100 þjónustu- íbúða ásamt 1.100 fermetra þjónustukjarna við Sléttuveg. Lögmaöur Mjólku ósáttur við ráðherra: Guðni úr takti við raunveruleikann Hróbjartur Jónatansson, lög- maður Mjólku, gerir athugasemdir við málflutning Guðna Ágústs- sonar landbúnaðarráðherra í Kast- ljósi Sjónvarpsins þann 16. obtóber. Þar hélt Guðni því fram að Mjólka byggi við jafnræði gagnvart öðrum mjólkurvinnslustöðvum. Hróbjartur segir málflutning ráð- herrans sýna að hann sé úr takti við raunveruleikann. „ítarleg álitsgerð Samkeppnis- eftirlits um samkeppnishömlur í mjólkuriðnaði og ályktun eftir- litsins um brot Osta- og smjörsöl- unnar gegn Mjólku sýna svo ekki verður um villst að það er ekki jafn- ræði með fyrirtækjum í íslenskum mjólkuriðnaði,“ segir Hróbjartur. Umdeild ráðning Umhverfisstofnunar: Ráðherra ætlar ekki að beita sér ■ Skylda að auglýsa ■ Hugsanlega brot á jafnréttislögum Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net .Umhverfisráðherra sér ekki ástæðu til að skoða þetta mál sérstaklega á þessu stigi máls. Við vonumst til þess að málið verði leyst farsællega innan stofnunarinnar," segir Einar Svein- björnsson, aðstoðarmaður umhverf- isráðherra, um umdeilda ráðningu Umhverfisstofnunar í embætti fag- stjóra nýverið. Staðan var eingöngu auglýst innanhúss og tveir sem sóttu um. Sá sem ráðinn var hafði aðeins unnið í mánuð hjá stofnuninni og hafði ekki þá menntun sem tilskilin var í hæfniskröfum. „Það er ekki rétt stjórnsýsla að ráðu- neytið skipti sér af málinu að svo stöddu. Hins vegar fellur stofnunin undir stjórnsýslulögin hvað varðar auglýsingar í emb- ætti,“ segir Einar. Kynjasjónarmið ráða ferðinni Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmda- stjóri Jafnrétt- isstofu, segist ekki hafa kynnt sér málið sérstak- lega. „Við alla ráðningu eiga kynjasjónar- mið að ráða ferð. Þá skiptir einnig mál hvernig kynja- hlutfall fagstjóra er fyrir hjá stofnuninni,” segir Margrét María. „í þessu sambandi þarf að skoða hvort jafnréttislögin hafi verið brotin.” 21.okt Eiga að auglýsa Helgi Hjálmtýsson, um- sjónarmaður Starfatorgs fjármálaráðuneytisins, segir enga formlega eftirlitsskyldu vera til staðar. „Starfa- torgið er stofnað til að auðvelda auglýsingar í op- inberum geira og öll störf eiga að vera auglýst inni á torginu. Þetta er stofnað til að framfylgja reglugerð um aug- lýsingar á störfum á vegum ríkisins,” segir Helgi. „Reglu- gerðir gera ráð fyrir því að allar stofnanir eigi að auglýsa og viðkomandi stofnun verður að bera ábyrgð á því ef það er ekki gert.” Smurþjónusta Alþríf Rafgeymar jW v Dekkjaþjónusta www.hassQ.is Mundu eftir oð finno besta verðið dður en N haupir dehk! Car-rental / Bílaleiga Vetrardekk - Heilsarsdekk -nagladekk - loftboludekk Betri Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.