blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaöiö HANN SAGÐI ÞJÓÐSÖGUR JÓNS BALDVINS Ef satt er, var það sannkallað þjóðþrifaverk að hlera símtöl Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrver- andi utanríkisráðherra, enda ómögulegt að snjöll símtöl þessa merka stjómmálaleiðtoga og sagna meistara geymist aðeins í munnlegri geymd heppinna viðmælenda hinum megin á línunni.” SVEINN ANDRISVEINSSON HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR SÉR NÝJAN FLÖT A HLERUNARMÁLINU IMORGUNBLAÐINU IGÆR. Tékkneski fjársjóðurinn Hinn heimsþekkti Budweiser Budvar er seldur til 52 landa víðs vegar um heiminn Vinsældir hans eru ekki síst að þakka þeirri staðreynd að hann er bruggaður á einum stað og eingöngu úr bestu fáanlegu hráefnum Hann er alltaf, alls staðar jafn góður. UPPAHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐA LÉTTÖL Auglýsingasiminn er 510 3744 Vaxtabætur Eru ekki háðar því hvar tánið er tekið. Húsnæðislán hjá bönkum Hægt að taka lán erlendis ■ Flæði lána milli landa lítið ■ Vandamálin praktísk Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Það er ekkert í ís- lenskum lögum og ekki heldur í lögum á Norðurlöndunum, eftir því sem mér er best kunnugt, sem bannar að íslenskir neytendur taki hús- næðislán í bönkum þar,” segir Guðjón Bragason, skrifstofu- stjóri í félagsmálaráðu- neytinu. Samkvæmt þremur nýjum, viða- miklum skýrslum um banka- og lánamark- aðinn á Norðurlönd- unum hallar mjög á íslenska neytendur í viðskiptum við banka hér. Útreikn- Húsnæöislán 1 Noregi og Islandi: 11 milljónum dýrara hér ■ Neytcndasamtökin kref jast betri kjara ■ Erlendur markaður lokaður ■ Blaðið frá því á þriðjudag ingar norskra og ís- lenskra banka fyrir Blaðið sýna hið sama. Samkvæmt þeim er heildar- kostnaður vegna 15 milljóna króna húsnæðisláns til 25 ára sem tekið er í banka hér um 11 milljónum króna meiri en í Nordea-bankanum. Guðjón segir það reyndar koma fram í skýrslu á vegum Evrópusam- bandsins að flæði fasteignalána milli landa sé mjög lítið. „Ástæð- urnar geta auðvitað verið mismunur í lagaumhverfi og annað í því sam- bandi en ekki að löggjöf standi al- mennt í vegi fyrir því. Flutningur fjármagns yfir landamæri er einn af hornsteinum samstarfsins innan Evrópska efnahagssvæð- isins. En menn gætu svo sem auðvitað rekist á ýmis praktísk vanda- mál í ferlinu, til dæmis varðandi lánshæfi ein- staklinga og innheimtu- ferli. Það er samt komið á alþjóðlegt samstarf um slíktbendir hann á. Þetta sé einnig spurn- ing um trausta vottun á veðhæfi eignar og jafn- vel hvort þinglýsing á veðskuldabréfi þurfi að vera á íslensku. Marta Jónsdóttir, lögfræðingur hjá sýslu- manninum í Reykja- vík, segir embættið ‘ ekki krefjast þess að þinglýsing á veð- skuldabréfi sé þýdd yfir á íslensku. „Við þinglýsum til dæmis trygg- ingabréfum sem eru á ensku. Sam- kvæmt þinglýsingarlögum getum við krafist þess að skjöl séu þýdd. En ef við skiljum erlenda textann förum við ekki fram á að hann sé þýddur,” greinir Marta frá. Samkvæmt upplýsingum frá fjár- málaráðuneytinu eru vaxtabætur eingöngu háðar því hvort lánið teng- ist íbúðarhúsnæði en ekki því hvar lánið er tekið. Pétur H. Blöndal ÞingmaÖur FRFI Sl [/nccnn FYRIRLESTRARÖÐ í AÐDRAGANDA PRÓFKJÖRS VtLrtKtí SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í REYKJAVÍK ÁRIÐ 2006 ísland og Evrópa Eigum við að ganga í Evrópusambandið? Getum við tekið upp evru án aðildar? Er ESB ríki eða lauslegt ríkjasamband? Erum við að afsala okkur fullveldinu og skiptir það máli? Hver yrði staða Islands í ESB? Fjallað um þessar spurningar og rætt um kosti og galla aðildar að ESB og kosti og galla evru. Fimmtudagur 19.okt kl.20:00 Askja, stofa N-132 Fundarstjóri og andmælandi Vilhjálmur Egilsson Frkv.stj. Samtaka atvinnulífsins petur.blondal.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.