blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 29
blaðiö
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 29
Frægasta hlutverk Gable Með Vivien Leigh ÍÁ hverfanda hveli. Myndin festi hann ísessi sem mesta kyntákn heims.
til Hollywood eftir nokkra mánuði
með stúlkubarn sem hún sagðist
hafa séð á munaðarleysingjahæli og
ákveðið að ættleiða. Þegar stúlkan
óx upp þótti hún sláandi lík Young
og var með áberandi stór útstæð
eyru. Eyrun þóttu svo mikið lýti að
stúlkan fór í aðgerð níu ára gömul
þar sem þau voru minnkuð. Hún
komst ekki að því hver faðir hennar
var fýrr en Gable var látinn.
Stóra ástin í lífi Clarks Gable var
leikkonan Carole Lombard. Hún
var undurfögur, opinská, greind
og full af lífskrafti og frábær gam-
anleikkona. Hún þótti ein best
Harmleikur
ljanúarmánuðii942léstLombard
þegar flugvél sem hún var farþegi í
rakst á fjallshlíð nálægt Las Vegas.
Lombard var 33 ára gömul. Gable
var niðurbrotinn eftir lát hennar.
Hann svaf ekki og eyddi kvöld-
unum í að horfa á gamlar myndir
með henni eða skoða myndaalbúm.
Hann missti tíu kíló á skömmum
tíma. Eftir dauða Carole fór hann
að drekka og drakk á hverjum
degi það sem hann átti eftir ólifað.
Hann sagði eitt sinn við leikstjóra
að hann vildi frekar deyja en hætta
að drekka. Hann jafnaði sig aldrei
fyllilega á dauða Carole og margar
þeirra kvenna sem hann átti í ástar-
sambandi við líktust henni á einn
eða annan hátt.
Gable gekk í flugherinn og sagði
við vinkonu sína að hann ætti ekki
von á að koma lifandi úr stríðinu
og sér stæði alveg á sama. Nasistar
settu Gable á lista sinn yfir stríðs-
glæpamenn, en Adolf Hitler hafði
eitt sinn sagt að Clark Gable væri
uppáhaldskvikmyndaleikari sinn
Eftir stríð sneri Gable aftur til
Hollywood. Átta árum eftir lát
konu sinnar kvæntist hann í fjórða
sinn, aðalskonunni Sylviu Ashley.
1 útliti þótti hún minna á Carole
Lombard. Hjónabandið stóð í
eitt ár og fimm mánuði. „Ég hlýt
að hafa verið fullur þegar ég bað
hennar," sagði Gable við vin sinn
eftir skilnaðinn. Gable átti síðan í
fjölda ástarævintýra þar á meðal
við Grace Kelly sem var 28 árum
yngri en hann. Einnig hún þótti
minna á Carole Lombard og hafði
til að bera sömu lífsgleði og kímni-
gáfu. Gable sleit ástarsambandi við
Grace, ekki síst vegna aldursmunar
þeirra, og þegar hann kvaddi hana
á flugvelli með því að kyssa hana
á kinnina brast hún í grát fyrir
framan fjölmiðlamenn.
Fimmta eiginkona hans og sú
síðasta, Kay Spreckels, var fimm-
tán árum yngri en hann og tveggja
barna móðir. Hún var enn ein
konan sem þótti minna á Carole
Lombard og margir höfðu á orði
að hún legði sig fram um að líkjast
henni.
Síðasta myndin sem Gable lék í
var The Misfits sem var einnig síð-
asta fullgerða myndin sem Marilyn
Monroe lék í. Leikur Gable i mynd-
inni er venjulega talinn sá besti
á ferli hans. Hann lést af völdum
hjartaáfalls skömmu eftir að kvik-
myndatökum var lokið. Hann var
grafinn við hlið Carole Lombard. Á
legstein hans stendur ritað: Aftur
til þagnarinnar. Þremur mánuðum
eftir dauða hans fæddi ekkja hans
son þeirra.
Helgin 19 - 22 okt.
kolbrun@bladid.net
Nasistar settu Gable
á lista sinn yfir stríðs-
glæpamenn, en Adolf
Hitler hafði eitt sinn
sagt að Clark Gable
væri uppáhaldskvik-
myndaleikari sinn
klædda kona í Hollywood og var
annáluð fyrir smekkvísi. Hún var
stórborgarbarn en Gable var úti-
vistarmaður og lítið gefinn fyrir
glaum og glys. Þrátt fyrir að vera
gjörólík urðu þau yfir sig ástfangin
og Gable skildi við konu sína til að
kvænast Carole. Þau drógu sig úr
skarkala Hollywood og settust að
uppi í sveit og stunduðu búskap.
Árin með Carole voru hamingju-
ríkasti tíminn í lífi Gable. Það var
hún sem aðlagaði sig að lífi hans og
vinir hennar voru furðu lostnir að
sjá fágaða samkvæmisdömu breyt-
ast í hamingjusama sveitakonu.
Á þessum tíma lék Gable í Á hverf-
anda hveli og festi sig í sessi sem
mesta kyntákn heims. Seinna sagði
hann að í hvert sinn sem frægðar-
sól hans virtjst vera að ganga til
viðar væri Á hverfanda hveli end-
ursýnd og kvikmyndahlutverkin
streymdu þá til hans á ný.
Kjúklíngaveisla
. fráisfugli
1/1 ferskur kjúklingur 30% afsláttur
kr. 468f-
Úrbeinaöar bringur án skinns 30% afsláttur
kr. 1.686f-
Kjúklingalæri/leggir magnbakki 30% afsláttur
og2j^lítra Coca^!ola^ranSkar 484,-
Ætá W