blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 14
blaðið 14 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 HVAÐ MANSTU? 1. Hvað er „shabu, shabu”? 2. Hvalveiðar eru í deiglunni. Spurt er: hvað hét skipstjórinn í sögunni Moby Dick og hvað hét fleyið sem hann stýrði? 3. Hvað heitir formaður Frjálshyggjufélagsins? 4. Faðir þýska einræðisherrans Adolfs Hitlers breytti um eftirnafn á sínum tíma. Hvert var upphaflegt eftirnafn hans? 5. Senn líður að jólum. Hvenær er Nikulásarmessa og hvar var Nikulás fæddur? GENGI GJALDMIÐLA Svör: KAUP ■ Bandaríkjadalur 68,21 m Sterlingspund 127,60 Dönskkróna 11,464 stn Norskkróna 10,092 Sænskkróna 9,222 WM Evra 85,51 SALA 68,53 128,22 11,532 10,152 9,276 85,99 www.lyfja.is LYFJA - L'rfiö heíl Bólusetning gegn inflúensu - engin bið Lyfja Lágmúla: alla daga kl. 15-20 Lyfja Smáralind: alla daga kl. 13-15 Lyfja Laugavegi: föstudaga kl. 13-17 og eggjalaus gerir gœfumuninn | VOGABÆR S Sími 424 6525 www.vogabaer.ls Útgjöld til vegamála (milljarðar) Hlutfall af ríkisútgjöldum (%) 3,7 1998 1999 (kosningaár) 2000 2001 2002 2003 (kosningaár) 2004 2005 2006a 20061) 2007 (kosningaár) 'Útgjöld 2006a eru eins og i fjárlagafrumvarpi 2006, en 2006b er eins og áætlanir ríkisstjórnar gera ráð fyrir, þ.e. niðurskurður í fjárfestingum um 1,1 milljarð króna. Mynd/Jim Smart 7,6 milljarðar til vega- mála árið 2006 13,6 milljarðar til vegamála á kosningaárinu 2007. UTGJOLD RIKISINS Sigurjón Þórðarson er ósáttur við stefnu ríkisstjórnarinnar: Stjórnin án stefnu í samgöngumálum ■ Styrkja innviði samfélagsins ti Útgjöld meiri á kosningaárum Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net „Þegar útgjöld ríkisins til vegamála eru skoðuð sést að ríkisstjórnin er ekki með neina stefnu í samgöngu- málum,“ segir Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins. „Þetta er bara ákveðin stefna í kosn- ingum. Ekki er hægt að líða það að menn láti svona mikilvægan mála- flokk, eins og samgöngumál, rokka fram og aftur milli kosninga. Á síð- ustu árum hefur einungis verið tekið á þeim fyrir alvöru á fjögurra ára fresti. Alltaf er verið að blása til sóknar og svo eru framkvæmd- irnar blásnar af og lofað á nýjan leik.“ Tæplega átta milljörðum verður varið í vegamál árið 2006, en á ári komanda er ætlað að verja 13,6 milljörðum króna. Sigurjón segir að nauðsynlegt sé að skipuleggja samgöngumál til lengri tíma, en ekki í rykkjum og blása svo allt af. „Það gefur augaleið og allir hljóta að vera sammála því. Það að gefa fólki falskar vonir er einfaldlega ljótt." Samfylkingin vill auka listvitund í skólum borgarinnar: Verk Erró Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram tillögu í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar um að Listasafni Reykjavíkur verði falið að kanna hagkvæmni og kostnað við að listaverk í eigu borgarinnar verði sett upp í grunn- skólum borgarinnar. Stefán Jón Hafstein nefnir dæmi um að eign borgarinnar á verkum eftir Erró gæti orðið fyrsta sýn- ingin afþessu tagi. „Þessi hugmynd sprettur upp úr umræðum um að hollt og gott geti verið að grunn- innan sinna veggja, og þá verið rætt sem hæglega megi koma fyrir í skól- skólarnir hafi meira af listaverkum um að borgin eigi mikið af verkum unum,“ segir Stefán Jón. í grunnskólana Málverkin í skólana Borgin á verk eftir Erró og vill samfylkingin þau á sýningu ískólunum. Ekki erliægt að líða það að menn láti svona / Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslynda flokksins Sigurjón segir Héðinsfjarðar- göngin vera skýrt dæmi. „Göng- unum var lofað tvisvar og þau slegin af tvisvar. Nú eru þau hins vegar komin á fulla ferð. Þetta er ekkert lag á hlutunum og beinlínis heimskulegt að vera með stærstu samgönguframkvæmdirnar sam- fara kosningum. Ef við skoðum útgjöldin sem hlutfall af ríkisút- gjöldum þá sjáum við að þau eru að dragast verulega saman. Samgöngu- málin eru eitt af því sem styrkir inn- viði samfélagsins og eru forsenda þess að geta tekið á móti og sinnt ferðafólki." Guðmundur Hallvarðsson, for- maður samgöngunefndar Alþingis, segir það vera rangt að væntan- legar kosningar ráði útgjöldum rík- issjóðs til vegamála. „Til marks um Samgöngu- áætlun er 1 stððugrí endurskoðun Guðmundur Hallvarðsson formaður samgöngunefndar það er nú komið að endurskoðun samgönguáætlunar og það verk verður lagt fyrir þing í næsta mán- uði. Það er plagg sem hefur lengi verið uppi á borðinu og er alltaf í endurskoðun." Guðmundur segir að menn megi ekki gleyma því að mikið hefur áunnist í vegamálum á síðustu tveimur áratugum, en þrátt fyrir það sé margt sem þarf að gera. „Það er hins vegar alveg rétt að hlutfall út- gjaldatilvegamálaafríkisútgjöldum hefur lækkað á síðustu árum. Hlut- fall af tekjum ríkisins af umferðinni sömuleiðis. Sprenging hefur orðið í eign almennings á einkabílum og svo lögðust strandflutningar af, þannig að það er ljóst að leggja þarf meira fjármagn í þennan málaflokk á komandi árum.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.