blaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
ÍRAK
Bechtel lætur sig hverfa
Bandaríska verkfræðifyrirtækið Bechtel hefur ákveðið
að ástandið í (rak sé of hættulegt til þess að réttlætan-
legt sé að það taki að sér uppbyggingarverkefni í land-
inu. Starfsmenn Bechtel hafa verið að störfum í landinu
í 3 ár og á þeim tíma hafa 52 þeirra verið drepnir.
ÍSRAEL
Sharon í gjörgæslu
Ariel Sharon, fyrrum forsætisráðherra fsraels,
hefur verið lagður inn á gjörgæsludeild sjúkrahúss-
ins sem hann dvelur á í kjölfar þess að sýking
greindist í hjarta hans. Sharon hefur verið í dái
síðan í janúar en þá fékk hann hjartaáfall.
rfflíMillÍI#
Rumsfeld verður áfram
George Bush, forseti Bandaríkjanna, vill að Donald Rumsfeld varnar-
málaráðherra sitji áfram í ríkisstjórn hans til loka kjörtímabilsins. Varn-
armálaráðherrann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir framkvæmd
(raksstríðsins og getuleysi bandaríska herliðsins til þess að ná tökum
áástandinu ílandinu.
Kosningar og Eurovision sama kvöld:
Útsending tímasett upp á hár
„Okkur er orðin ljós þessi staða
málsins og er enn verið að athuga
með tímasetningar og verið að
baksa við að stilla saman þessa
strengi,“ segir Páll Magnússon
útvarpsstjóri.
Kosið verður til Alþingis þann 12.
maí á vori komanda. Kjörstöðum
verður lokað klukkan 10 að kvöldi
Við munum tima-
setja þetta sekúndu
fyrir sekúndu og
við munum flnna
einhverja góða leið
Páll Magnússon
útvarpsstjóri
og munu fyrstu tölur koma í kjöl-
farið. Eurovision-söngvakeppnin fer
einnig fram þetta sama kvöld. Páll
segir að enn sé ekki komið endan-
lega á hreint klukkan hvað úrslitin
í Eurovision verði ljós.
„Eins og okkar er von og vísa þá
leysum við þetta með einhverjum
viðunandi hætti. Þetta er ögrandi
verkefni og ætlum við að leysa þetta
þannig að fólk geti notið úrslitanna
í Eurovision, án þess að við göngum
inn á kosningasjónvarpið sjálft. Við
munum tímasetja þetta sekúndu
fyrir sekúndu. Endanleg tilhögun
útsendingarinnar er sem sagt ekki
ljós en við verðum búin að ákveða
hvernig við ætlum yfir brúna þegar
við komum að henni.“
Spilling
íslendingar í
góðum málum
Finnar, íslendingar og Ný-Sjá-
lendingar búa við minnsta spill-
ingu allra þjóða að mati Transpar-
ency International sem leggur
mat á spillingu í ríkjum heims.
Öll ríkin fimm á Norðurlönd-
um eru meðal þeirra átta ríkja
sem búa við minnsta spillingu.
Singapúr og Sviss eru einu ríkin
auk Nýja-Sjálands sem komast
upp á milli norrænu ríkjanna.
Mest er spillingin á Haítí
þar sem stjórnkerfið hefur
verið í molum og spilling
mikil síðustu ár. Næst á lista
eru Mjanmar, Irak og Gínea.
ísafjörður:
Táningar
á fylliríi
Mbl.is Lögreglumenn á Isafirði
höfðu afskipti af fjórtán og fimm-
tán ára ungmennum sem voru
ofurölvi á föstudagskvöld. Voru
fimm ungmenni saman komin
fyrir aftan fiskvinnslufyrirtæki
og tvö ungmennanna, drengur
og stúlka, voru í slæmu ásigkomu-
lagi. Þegar lögregla kom á staðinn
var búið að setja teppi utan um
þau en þeim var orðið mjög kalt
þar sem blautt og kalt var úti. Þau
voru mjög drukkin, höfðu drukk-
ið heila flösku af sterku áfengi.
Forráðamenn barnanna komu
á staðinn og fór drengurinn til
síns heima í fylgd móður sinnar,
en stúlkan var flutt með sjúkra-
bifreið á sjúkrahúsið á ísafirði,
þar sem hún var yfir nóttina.
Hreint ehf. var stofnað árið 1983 og er eitt elsta
og stærsta ræstingarfyrirtæki landsins.
Er HREINT hjá þínu fyrirtæki
Hreint býður upþ á ókeypis ráðgjöf
Hreint
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is