blaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 24
32 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 blaðið Ég er bjartsýnismaöur. Þaö viröist ekki þjona neinum til- ^ gangi að vera eitthvað annaö. :/., Winston Churchill . V./V Afmælxsborn dagsins MARIE CURIE VÍSINDAMAÐUR, 1867 LEON TROTSKY STJÓRNMÁLAMAÐUR, 1897 ALBERT CAMUS RITHÖFUNDUR, 1913 kolbrun@bladid.net Ný skáldsaga frá Arnaldi Hjá Vöku Helgafelli er komin út Konungsbók eftir Arnald Indriðason. Konungsbók gerist að mestu í Kaupmanna- höfn árið 1955 og tengist leyndarmáli sem snertir helsta dýrgrip íslands, Kon- ungsbók Eddu- kvæða. Valdemar, ungur og bláeygur íslenskufræðingur, heldur til náms í Danmörku og finnur þar fyrir landa sinn, gamlan prófessor, sem er heillum horfinn enda býr hann yfir skelfilegu leyndarmáli sem tengist ævafornri höfuðgersemi íslensku þjóðarinnar - Konungs- bók Eddukvæða. Leyndarmálið leiðir prófessorinn og lærisvein hans í mikla háskaför um þvera Evrópu - inn í skjalasöfn og graf- hýsi, fornbókasölur og fátækra- hverfi - þar sem mannslíf eru léttvæg fundin. RRNRLDUR INORIÐRSON ^JkONUNGSBÓK Skálduð ævisaga frá Jóni Gnarr Hjá Máli og menningu er komin út bókin Indjáninn eftir Jón Gnarr. Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vanda- mál að stríða sem valda honum erfið- leikum í upp- W*mtF vextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, mgrn rautt hár- • og nærsym. Hann er hug- myndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættu- leg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu. Jón Gnarr kallar Indjánann skáldaða ævisögu og segir í eftirmála sínum: „Margir spyrja sig eflaust hvort þesssi bók sé ævisaga eða skáldsaga. Hún er bæði. Hún er ekki alveg sönn. Það er þó engin bein lygi í henni. Ég trúi ekki á lygi.“ Metnaðarfull úttekt á bandarískri samtímalist úmlega fjörutíu af fremstu samtímalista- Ímönnum Bandaríkj- anna eiga verk á stór- sýningunni Uncertain States of America - Bandarísk list á þriðja árþúsundinu sem nú stend- ur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Sýningin hefur verið sett upp í Bard-safninu í New York og Serpentine Gallery í Lundúnum. Frá Reykjavík fer hún til Herning í Danmörku, Varsjár, Moskvu og Pek- ing. Sýningin í Listasafni Reykjavík- ur stendur til 21. janúar 2007. Spennandi sýning „Þetta er mjög spennandi sýning. Það eru ekki margar sýningar sem eru úttekt á bandarískri list, hvað þá ungri bandarískri list en allir listamennirnir sem eiga verk á sýn- ingunni eru fæddir eftir 1970,“ segir Hafþór Yngvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. „Sýningin var fyrst opnuð í Astrup Fernley- samtímalistasafninu í Ósló fyrir rúmu ári og þar sá ég hana. Safn- stjórinn Gunnar Kvaran, sem var forstöðumaður Kjarvalsstaða á sínum tíma, bauð okkur þessa sýn- ingu og mér fannst tilvalið að sýna hana hér. íslendingar hafa ekki séð jafn mikið af bandarískri list og Hafþór Yngvason „Efeitthvaö eitt einkennir sýninguna þá erþað hversu mikið virðist vera ígangi í bandarískri samtímalist." Verk eftir Mike Bouchet Top Cruise, 2005 evrópskri og það var ekki síst þess vegna sem ég greip tækifærið. Sýn- ingin er líka rökrétt framhald af nýrri sýningastefnu í Hafnarhúsinu sem byggist á því að hleypa yngri kynslóð listamanna inn í safnið.“ Allt er (gangi Þegar Hafþór er spurður hvað einkenni verkin á sýningunni segir hann: „Þetta eru mjög ólíkir lista- menn. Ef eitthvað eitt einkennir sýninguna þá er það hversu mikið virðist vera í gangi í bandarískri samtímalist. Sýningarstjórarnir Hans Ulrich Obrist og Daniel Birn- baum ferðuðust í tvö ár um Banda- ríkin og söfnuðu upplýsingum um 2000 listamenn og reyndu að átta sig á því hvað væri að gerast í banda- rískumlistaheimi. Þeir hafa sagt að augljóst sé að það eru ekki lengur tvær stórborgir, New York og Los Angeles, sem eru miðstöð þess sem er að gerast í Bandaríkjunum og allt annað séu eftirhermur af því sem gerist þar heldur séu listaheim- ar alls staðar um Bandaríkin. Sýn- ingarstjórarnir segjast hafa komið auga á pólitíska heima í listinni, sem kemur ekki á óvart því lista- menn eru oft gagnrýnir á samtíma sinn. Þetta sýnir sig kannski ekki beint í listaverkunum en skín þó í gegn. Ungir bandarískir listamenn vinna meira með málverkið en fyr- ir áratug og þeir virðast líka hugsa meira um tengslin við áhorfendur en var. Niðurstaðan er sú að allt er í gangi.“ Verk eftir Taft Green Reaction Facets, 2004 Maður, náttúra og mynd Ingálvurav Reyni Sámal Joensen-Mikines Zacharias Heinesen í Landsbankanum, Austurstræti, í afgreiöslusal og á 2. hæö, eru sýnd málverk i eigu Færeyjabanka eftir þrjá af helstu listamönnum færeysku þjóðarinnar. Sýningin er opin á afgreiðslutíma bankans til 30. nóvember. Landsbankinn Banki allra landsmonna i 120 ár menningarmolinn Tell drepur Gessler Á þessum degi árið 1307 skaut svissneska skyttan og þjóðhetjan William Tell Hermann Gessler, aust- urrískan landstjóra í Uri. Gessler hafði látið reisa stöng í miðbæ Uri og á hana var hattur hans hengdur. Hann krafðist þess að bæjarbúar hneigðu sig fyrir fyrir framan stöng- ina. Tell hafði þessa skipun að engu. Gessler reiddist svo að hann skip- aði Tell að skjóta ör gegnum epli sem sett var á höfuð ungum syni Tell. Tell var listaskytta og tókst að hitta eplið en sagði eftir það að ef hann hefði misst marks og skotið son sinn þá hefði fyrsta verk hans verið að drepa Gessler. Gessler lét þá handtaka hann. Tell tókst að flýja úr haldi, sat fyrir Gessler og drap hann. Drápið varð til þess að Svisslendingar risu upp gegn aust- urrískum drottnurum sínum sem leiddi til sjálfstæðis svissnesku þjóðarinnar. Málverki eftir Ford Madox íif syni Williáms Tell.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.