blaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 27

blaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 3 5 íslendingur heiöraöur Dr. Einar Stefánsson, augnlæknir og prófessor við Háskóla íslands, tók á sunnudag við verðlaunum frá Synoptik-sjóðnum í Danmörku en sjóð- urinn veitir árlega verðlaun þeim sem skarað hafa fram úr á sviði augn- rannsókna. Af því tilefni var haldin vegleg ráðstefna til heiðurs Einari. menntun Fundur um einelti Efnt verður til sérstaks fjarfundar í mörgum skólum á Islandi í kvöld klukkan 20, þar sem Stefán Karl Stefánsson leikari mun ræða um ein- elti og ofbeldi meðal barna, ábyrgð heimila og skóla og hlutverk uppal- enda. Miðaverð er 1000 krónur og rennur ágóðinn til Regnbogabarna. menntun@bladid.net Vægi skapandi starfs og listgreina hefur minnkað í leikskólum á undanförn- um árum að mati Soffíu Þorsteinsdóttur, leikskólastjóra á leikskólanum Sæborg. „Það er svo margt annað komið í staðinn og við höfum áhyggjur af því að þetta sé hreinlega á undan- haldi. Kennaraháskólinn er að breyt- ast mjög mikið og kennsla í listgrein- um fyrir verðandi leikskólakennara hefur minnkað gífurlega mikið á undanförnum tíu árum,“ segir Soff- ía sem vill snúa þessari þróun við og auka vægi listgreina á ný. Soffía er einn af þátttakendum í málþinginu Skapandi afl í leikskóla - draumur eða veruleiki? sem hald- ið verður í Kennaraháskóla Islands á föstudag. Hún segir að tilgangur málþingsins sé að skapa umræðu um mikilvægi skapandi starfs og hins frjálsa leiks barna í leikskóla. Mikilvægi hins frjálsa leiks „Börn eru sjálf skapandi og það er ekki gert nóg af því að halda því við. Við teljum að þetta sé það besta fyrir þau, að þau fái að vera skapandi á sin- um forsendum og hugmyndir barn- anna fái svolítið að ráða ferðinni," segir Soffía sem telur hinn frjálsa leik gegna mikilvægu hlutverki í þroska barna á leikskólaaldri. „Barnið er að læra svo mikið í gegn- um leikinn, til dæmis í samskiptum og félagsfærni. Það er stöðugt að byggja á einhverju sem það eru búið að prófa áður. Við viljurn stundum fara alltof hratt. Það er eins og það liggi svo mikið á. Með því að vera að flýta sér svona mikið og kannski hraðar en þau ráða við er svo mikil hætta á að sköpunargáfa þeirra fái ekki að njóta sín,“ segir hún. Flughestarnir í Sæborg Á leikskólanum Sæborg þar sem Soffía er leikskólastjóri er mikið lagt upp úr skapandi starfi og hafa starfsmenn í samvinnu við Kvik- myndaskóla Islands meðal annars gert myndbandið „Flughestarnir í Sæborg“ sem lýsir því ferli sem börn- in ganga í gegnum í skapandi starfi. Myndbandið verður frumsýnt á mál- þinginu á föstudag og segir Soffía að það gæti hugsanlega nýst í kennslu leikskólakennaranema. I myndbandinu fá börnin endur- vinnanleg efni i hendurnar og síðan er fylgst með hvað þau gera úr því. „Við vildum sýna þarna hvað þessi elstu börn eru í raun og veru að gera í þessu skapandi starfi hjá okkur og hvað það er merkilegt. Þau fara í gegnum ákveðið ferli. Þau byrja á því að búa til alls konar vélar úr þessu verðlausa efni sem þróast síð- an út í hljóðfæri og svo endar það með miklu tónverki," segir Soffia. Lýðræði í skólastarfi Ársþing Samtaka áhugafólks um skólaþróun fer fram í Ingunnar- skóla föstudaginn 17. og laugardag- inn 18. nóvember og verður þema þingsins lýðræði í skólastarfi. Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, verður aðalfyrirlesari og nefnist erindi hennar Draumurinn um lýð- ræðisskóla. Að loknu erindi Gerðar munu full- trúar fyrstu þriggja skólastiganna skiptast á skoðunum um lýðræði og áhrif í skólastarfi. Nánari upplýsingar um þingið má nálgast á vefsíðunni skolathroun.is. Styrkir til náms á Norðurlöndum íslenskir námsmenn geta sótt um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi og Noregi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknastarfa í löndunum. Umsækjendur skulu hafa lokið BA- eða BS-prófi eða öðru sambæri- legu prófi. Umsóknir um styrkina ásamt staðfestum afritum prófskír- teina og með- mælum skulu sendar mennta- málaráðuneytinu á sérstökum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 15. des- ember næstkomandi. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu menntamálaráðuneytisins menntamalaraduneyti.is. Legó fyrir lengra komna Legó-hönnunarkeppnin verður haldin í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla fslands, næstkomandi laug- ardag frá klukkan 9 til 17. Þetta er í annað skipti sem keppnin er haldin hér á landi en hún fer fram i flestum löndum Evrópu sama dag. Að sögn Ernu Sigurðardóttur, verk- efnisstjóra hjá verkfræðideild Há- skóla Islands, er keppnin þríþætt og glíma nemendur alls staðar í heim- inum við sömu verkefni. „Keppnin samanstendur af þraut þar sem nem- endur smíða og forrita vélmenni úr tölvustýrðu legói. Þeir vinna vísinda- lega rannsókn og semja leikþátt um tiltekið efni,“ segir hún. Sigurvegarar fara á Evrópumót Keppendur eru á aldrinum 10 til 16 ára og eru 6 til 12 í hverju liði. Um 150 nemendur í 15 liðum taka þátt í keppninni að þessu sinni sem er svipað og í fyrra. Þema keppninnar 1 ár er nanótækni og hafa þátttöku- liðin fengið átta vikur til að undir- búa sig. Erna segir að verðlaun verði veitt í sex flokkum, meðal annars fyrir bestu lausn í þrautabraut, fyr- ir kynningu á róbóta og forritun, skemmtilegasta liðið og bestu liðs- heildina. „Það lið sem er stigahæst í öllum liðum fær svo að taka þátt í Evrópumóti First Lego League sem haldið verður í Bodö i Noregi í maí á næsta ári,“ segir Erna. Reynir á marga þætti „Markmiðið með þessu er að efla áhuga barna og unglinga á vísindum og tækni. Það þarf að hvetja þau til að snúa sér að þessum greinum því að eins og við vitum krefst samfélag- Glæsilegur bikar Sigurvegarar fá forláta legóbikar í verölaun. ið þess og ekki síst framtíðin. Mark- miðið er einnig að efla sjálfstraust, leiðtogahæfni og lífsleikni," segir Erna og bætir við að auk þess reyni á samvinnu og liðsheild sem sé mikil- vægt. „Fólk verður að gera sér grein fyrir því að það getur enginn allt en allir geta eitthvað,“ segir hún. Fjölbrautaskóliim í Gaiðabaf ^ *40r f fcjíjfr j? Innrituii nemenda i skólann fyrlr vorönn 2007 er haíin! Umsóknir veróa afgreiddar i þeirri röð sem þær berast! Skoðið heimasfðuim! www.fg.is Kaupið jólafötin tímanlega- munið heimlánsþjónustuna út á land póstsendum við Laugalæk • sími 553 3755

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.