blaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 15

blaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 15
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 15 Umsvifamikil aðgerð Frelsishreyfingar garðálfa: Lögreglan komin á sporið Umferðaróhöpp: Fimm stungu af frá slysstað Mbl.is Um helgina voru 47 umferðaróhöpp tilkynnt til lög- reglunnar í Reykjavík en nær öll voru þau minniháttar. í fimm tilfellum stungu þeir sem ollu umferðaróhöppunum af. Tæplega þrjátíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur. Þeir sem hraðast óku voru stöðvaðir á Suð- urlandsvegi og Vesturlandsvegi. Þá var einn ökumaður stöðv- aður í Hraunbæ en bíll hans mældist á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. Hryðjuverkaréttarhöld: Vilja 38.000 ára fangelsi Mbl.is Spænskir saksóknarar ætla að krefjast meira en 38.000 ára fangelsisdóms yfir þeim sem ákærðir hafa verið vegna hryðju- verkaárásanna í Madrid árið 2004 við réttarhöldin á næsta ári. Dómskrafan verður hluti af skýrslu sem saksóknarinn Olga Sanchez skilar landsdómstólnum síðar í þessari viku. Búist er við því að Sancez krefj- ist hörðustu refsingarinnar yfir sjö þeirra sem grunaðir eru um að hafa verið í lykilhlutverki. 191 lét lífið í árásunum, en hundruð særðust og örkumluðust varan- lega. Sanchez krefst þrjátíu ára dóms fyrir hvert morð og 18 ára dóms fyrir hverja morðtilraun, sem samtals yrðu 38.490 ár. Valdimar L. Friðriksson: Ég kem aftur „Ég kem aftur.” Þetta sagði Valdimar Leó Friðriksson alþing- ismaður sem hafnaði í 14. sæti í prófkjöri Samfylkingar- innar í Suðvest- urkjördæmi. Valdimar, sem gafkostásér í 3. sæti, vildi að öðru leyti ekki tjá sig um úrslitin. Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, lenti í 1. sæti, alþingismennirnir Katrín Júlíusdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir í 2. og 3. sæti, Árni Páll Árnason lögfræðingur í 4. sæti og Guðmundur Stein- grímsson, blaðamaður og tónlist- Lögreglan í Limousin-héraði í Frakklandi hefur fundið sjötíu og níu garðálfa sem var stolið á miðvikudag. Stuldurinn var liður í herferð Frelsishreyfingar garðálfa í Frakk- landi (fr. Front de Libération des Nains de Jardin) en samtökin berj- ast fyrir því að garðálfar verði frels- aðir úr einkagörðum og leyft að standa frjálsum í skógum landsins. í síðasta mánuði fundust 86 garð- álfar í öðrum skógi í héraðinu. Frelsishreyfing garðálfa er al- þjóðahreyfing og er talið að með- limir hennar séu nokkur hundruð. Frelsishreyfingin er sérstaklega atkvæðamikil í Frakklandi, Kan- ada, Bandaríkjunum og á Ítalíu. Hreyfingin byggir á þeirri grund- vallarforsendu að garðálfar, rétt eins og menn, hafi ófrávíkjanlegan rétt til frelsis og að það sé siðferð- islega rangt að hafa þá til skrauts í görðum. Hreyfingin skiptist í fjölda arma sem beita mismunandi aðferðum í baráttu sinni. Sumir eru gagnrýndir fyrir of mikla hörku í aðgerðum sínum og hafa til að mynda garðálfavinir á Ítalíu verið harðlega gagnrýndir fyrir að brjóta þá garðálfa sem þeir nema á brott í leyfisleysi. Garðálfavinir telja að stórt skref hafi verið stigið í baráttunni fyrir frelsun garðálfa þegar verndarsvæði fyrir þá var opnað í Lucca í Tuscany-héraði á Italíu árið 1999. „ÞAÐ ÆTTIA0 SETJA ÞIG Á HEIMSMINJASKRÁ' Þessi bok er ekki um bleika flamingófugla. Þessi bók er um útvarpsmanninn E sem lendir í óvæntum og allsvakalegum hremmingum enir að hafa gefið út sína fyrstu bók.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.