blaðið - 07.11.2006, Side 20
-t
Eilífar afsakanir Guðna
Já, alltaf er hann Guðni Ágústsson
að afsaka fjárútlát þessarar skattpíndu
þjóðar til landbúnaðarins. Nú síðast í
Blaðinu í dag, 4. nóvember.
I þessari grein hældist hann yfir
för sinni og fleiri manna til Bandaríkj-
anna (á okkar kostnað), og dásemdum
íslenskra landúnaðarafurða, þar í búð.
Ég hef svo sem ekkert út á gæði þessara
vara að setja, nota sjálf ekki mjólkuraf-
urðir lengur (svona 98%) af ótta við hið
kröftuga vaxtarhormón, sem ég trúi
að auki líka vöxt krabbameinsfruma,
en borða lambakjötið af og til, þó æ
sjaldnar eftir að tók upp nýja stefnu í
matarvali. En það sem ég sé eftir, er að
vera að fórna okkar fátæklega háfjalla-
gróðri í kjötframleiðslu til útflutnings
1 stórum stíl. Hvað með þessa útlend-
inga sem vilja hafa allt upp á borðinu
í sambandi við framleiðsluna; dýra-
vernd, hreinleika og fleira? Hvað með
GRÓÐURVERND? Myndu þeir ekki
missa matarlystina ákjötinuþviarna,
allir þessi réttlætismenn Guðs í henni
Ameríku, ef þeirr vissu hverju við
værum að fórna? Ha? Ég segi, hingað
og ekki lengra. Það er miklu meira
Sölumaður
óskast
Lifandi og skemmtilegt starf í nýrri verslun
sem sérhæfir sig svefn- og hvíldarhúsgögnum.
Verður að hafa góða þjónustulund og jákvætt
viðhorf. Reynsla af sölumennsku er æskileg.
L
LIR
HM\LD
LÚR • HLIÐASMÁRI 1 • 201 KÓPAVOGUR • SÍMI 554 6969
FAX 554 3100 • WWW.LUR.IS • LUR@LUR.IS
Aldrei að víkja
Óhætt er að segja að umræðan um
umhverfismál verður nú kraftmeiri
með hverjum mánuðinum sem líður.
Líklegt má heita að ef vitund fólks
um mikilvægi umhverfisverndar
hefði verið komin á það stig sem
hún er nú, hefði Kárahnjúkavirkjun
aldrei orðið að veruleika.
Eða hvað? Á þeim tíma sem þessi
örlagaríka ákvörðun var tekin var
barist harðar á þingi um hana en
um flest önnur mál; í fjölmiðlum, á
baráttufundum stórum og smáum,
sumum agnarsmáum, sbr. varð-
stöðu listamanna við Alþingishúsið
í öllum veðrum! - alls staðar var bar-
ist en engu að síður var verkefnið
keyrt í gegn.
Álþingismenn sem börðust gegn
þessum virkjunaráformum voru
orðnir nokkuð móðir eftir slaginn
og fannst í flest skjól fokið eftir
maraþon-umræður og fjölda at-
kvæðagreiðslna þar sem meðal ann-
ars var felld tillaga frá þingflokki
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs um að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um Kárahnjúkafram-
kvæmdina. Enginn þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknarflokks,
Samfylkingar eða Frjálslynda flokks-
ins studdi þessa tillögu. Enginn.
Á flokksþingi VG skömmu síðar
- eftir að framkvæmdirnar voru
hafnar - var ráðið frá því að sam-
þykkja tillögu sem Kristján Hreins-
son, skáld, var helstur talsmaður
fyrir þess efnis að ekki væri of seint
að hætta við. Þótti mörgum sem
þetta væri sem að berja höfðinu við
steininn.
Þegar rifjuð er upp andstaðan
gegn stóriðjuframkvæmdunum á
Austurlandi - eða væri nær að segja
baráttan fyrir náttúruvernd - vilja
stundum gleymast þeir sem voru í
mestri eldlínu. Mögnuð var frásögn
þriggja einstaklinga í Morgunblað-
inu 3. nóv. sl. í prýðilegri umfjöllun
blaðsins, undir fyrirsögninni, Illt
að vera á annarri skoðun. Þetta eru
Karen Erla Erlingsdóttir, Þórhallur
Þorsteinsson og Skarphéðinn G.
Þórisson, allt kunnir náttúruvernd-
arsinnar. I viðtölum við þau kemur
Núþarfað
y&Wf' ö/ása til sóknar-
baráttu gegn
-HllivL stóriðjusinnum.
Umrœðctn
Ögmundur Jónasson
fram hvílíkri framkomu og viðmóti
þau þurftu að sæta - nokkuð sem
vart getur flokkast undir annað en
ofsóknir. Þessir einstaklingar og
ýmsir fleiri hafa sýnt lofsverðan
kjark og úthald.
Síðan líður tíminn. Fram-
kvæmdum er fram haldið og það
rennur upp fyrir sífellt fleirum
hvílíkt óráð stefndi í og hvílík verð-
mæti væru í húfi. Þótti mörgum
þá sem þeir gjarnan hefðu viljað
„Lilju” Kristjáns Hreinssonar, skálds,
kveðið hafa!
En stenst það að ekki hefði orðið
af Kárahnjúkavirkjun miðað við þá
afstöðu sem nú er uppi með þjóð-
inni? Á það er til einn mælikvarði og
hann er hvort stjórnvöld muni kom-
ast upp með að eyðileggja jökulárnar
í Skagafirði. Það er mælikvarðinn.
Nú þarf að blása til sóknarbar-
áttu gegn stóriðjusinnum sem sýnt
hafa með verkum sínum að þeir
eira engu þegar stóriðjan er annars
vegar. Það er gott til þess að vita
að til er fjöldinn allur af skeleggu
baráttufólki sem unnir sér engrar
hvíldar í þessum slag. Eitt aðdáunar-
vert dæmi þar um er vefsíðan gras-
agudda http://www.grasagudda.is
. Þetta er tiltölulega ný vefsíða. Þar
er hvergi gefið eftir. Eg óska jökul-
ánum í Skagafirði til hamingju með
Náttúruverndarsamtökíslands.gras-
aguddu.is, Náttúruvaktina, http://
www.natturuvaktin.com/ , Ómar,
Andra Snæ og alla hina... sem standa
vörð um íslenska náttúru.
Höfundur er þingmaður Vinstri hreyfingarinn-
ar - græns framboðs í Reykjavík.
<vcp^
PÓSTURINN
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006
blaðiö
Wléi
Pantanasími
530 40 20
INNNES EHF.
Fossaleyni 21,112 Reykjavík
App
COu
en nóg að framleiða kindakjöt ofan í
okkur og gesti okkar og ekki skrokk til
viðbótar... nema að hann komi úr beit-
arhólfi. Þá að kúnum. GÁ dásamar
afurðirnar þeirra, sérstaklega litinn á
smjörinu, hann sé svo flottur. Auk þess
miklast hann yfir verði á skyri í fínu
búðinni (sjálfsagt flutningskostnaður,
tollar, aðflutningsgjöld og skattar), í
samanburði við það sem við borgum
hér. Hrædd er ég um, að það háa verð
skili sér nú ekki til bænda hér og sá
góði maður gleymir að við höfum
borgað okkar skyr tvisvar. Fyrst með
beingreiðslum og svo við búðarborðið.
Ekki þekki ég til verksmiðjukúa, GÁ
lætur í veðri vaka að þær éti hvorki
gras né hey, en ég veit að allar aðrar
kýr í heiminum bíta gras eins og þær
íslensku og það mikið, mikið lengur
á ári, vegna hagstæðs veðurs. Og þær
fá að sjálfsögðu hey yfir köldustu vetr-
armánuðina. Líka kornfóður, eins og
íslensku kýrnar. „Útlenskt og eitrað“,
eins og sumir segja. Það að basla enn
við að reyna að selja þessar blessaðar
landbúnaðarvörur til útlanda er ekk-
ert nema kostnaður fyir skattgreið-
endur og ég hef aldrei heyrt að bændur
hafi grætt á þessu. Nei, nú er komið
nóg af óþarfa fjárútlátum í kindur
og kýr. Snúum okkur heldur að því
að nota peningana í afmælisgjöf til
Landgræðslunnar á næsta ári, þegar
hún fagnar 100 ára afmæli. Allir lands-
menn myndu græða á því, ekki hvað
síst bændur.
Höfundur er aðstoðarmaður húsamálara.
Bílstjórar
Margrét Jónsdóttir
Útkeyrsludeild óskar eftir starfsfólki til framtíðarstarfa í útkeyrslu
á höfuðborgarsvæðinu, á minni sendibílum.
Unnið er á tvískiptum vöktum sem skiptast vikulega, aðra
vikuna frá kl. 07.30-16.55 og hina vikuna frá kl.16.30-22.15.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
• Bílpróf í gildi í minnst 2 ár (fullnaðarskírteini)
• Hreint sakavottorð
• Stundvísi, snyrtimennska og góð þjónustulund
Umsóknum skal skilað til:
Islandspóstur hf.
Póstmiðstöð
Stórhöfða 32
110 Reykjavík
Merkt: Bílstjórar
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu íslandspósts:
www.postur.is
Er aldrei nægi-
lega mikið
upp í landbún-
aðinn mælt?
Umrœðan