blaðið - 28.12.2006, Page 5
blaðið FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006
Valtra S280
Óárennilegur,
jafnvel sem
leikfang.
Leikfangasala vinnuvélaumboða:
Selja fleira en
traktora og gröfur
Það eru ekki allir sem gera sér
grein fyrir því að umboð margra
stórvirkra vinnuvéla og dráttarvéla
hafa einnig til sölu leikföng og eft-
irlíkingar af þeim vörum sem um-
boðin selja. Jötunn Vélar á Selfossi
er eitt af þeim umboðum sem hafa
leikfangasölu sem aukabúgrein.
Benedikt Elvar Jónsson hjá Jötunn
Vélum segir að það seljist alltaf eitt-
hvað af þessum leikföngum en þó
mest nú í desember. „Þetta er búið
að vera spútnikdæmið í þessum
mánuði.“
Jötunn Vélar eru umboðsaðilar
fyrir Massey Ferguson og Valtra
dráttarvélar og Pöttinger hey-
vinnsluvélar. Leikfangaúrvalið end-
urspeglast af þessu og eru Jötunn
Vélar því mestmegnis með leikföng
byggð á þessum vélum til sölu. Þó
er einnig hægt að fá ýmsa fylgihluti
eins og heyrúllur, girðingar, búdýr,
vélaskemmur og fleira.
Benedikt segir að Jötunn Vélar
hafi litið sem ekkert auglýst þessa
leikfangasölu sína en þó sé alltaf ríf-
andi gangur í leikfangasölunni. Það
eru ekki bara bændur sem versla
leikföng handa börnum sínum hjá
þeim. „Það er bara rosalega mikið af
fólki sem bara dettur inn og kaupir
fyrir krakkana sem hafa áhuga fyrir
þessum vinnuvélum og búskap. Svo
eru það safnararnir en þeir kaupa
rosalega mikið.“ Meðal þess sem
vekur athygli safnara er eftirlíking
af gömlum Massey Ferguson trak-
tor. „Safnarar hafa mikinn áhuga
fyrir honum og hann bara rauk
út. En það kemur önnur sending í
byrjun árs, í janúar eða febrúar.“
Vélar & tæki
URVAL VINNUVELA OG TÆKJA
Þegar fjárfesta á í vinnuvélum er ómetanlegt að sérfróðir
fagaðilar séu með í ráðum. Við hjá MEST fylgjum viðskipta-
vinum okkar alla leið og veitum honum alhliða fagþjónustu
og tækniráðgjöf varðandi vinnuvélarnar okkar. Hjá MEST fæst
mikið úrval véla og tækja, þar á meðal Bomag, Liebherr og
Yanmar vinnuvélar.
Láttu þaulreynt fagfólk aðstoða þig.
Hafðu samband við söludeild véla & tækja að Bæjarflöt 4 í
Grafarvogi síma 4 400 540 og aflaðu þér upplýsinga.
ni
mesT
- allt til bygginga
Malarhöfða 10, Reykjavík Bæjarflöt 4, Reykjavík Hringhellu 2, Hafnarfirði Hrísmýri 8, Selfossi Leiruvogi 8, Reyðarfirði
Hágæða vörur á góðu verði
uka- og varahlutir fyrir vinnuvélar, tæki og trukk
VARÚÐARLJÓS • LJÓSKASTARAR • DÍÓÐULJÓS • KELSA LJÓSAGRINDUR A FLESTA VÖRUBÍLA
Webasto
Þú hitar bílinn áður en þú ferð út í
kuldan og þarft aldrei að skafa!
SVvörubflademparar
viðhaldsfrfir - mjög sterkir
Ryðfríir kassar
margargerðir
frábærtverð
Parlok vörubílabretti úr polyethylen
sÞarlok
olland dráttarstólar 25 og 36 tonna » Undirvagnsvarnir með Ijósu
Webasto olíumiðstöðvar Parlok vörubílabretti
Varúðarljós, Ijóskastarar, díóðuljós Be-Ge vörubíla
og vinnuvélastólar BAWER ryðfríir kassar fyrir vörubíla
Bíldshöfóa 16 I 567 2330