blaðið - 13.01.2007, Síða 16

blaðið - 13.01.2007, Síða 16
blaðið blaði Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Rttstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Ár og dagurehf. SigurðurG.Guðjónsson Trausti Hafliðason Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Elín Albertsdóttir Stelpur í strákaleik „Daginn sem við losnum við samviskubitið þá brennum við jakkafötin,“ sagði Svafa Grönfeldt, nýráðinn rektor Háskólans í Reykjavík, á afar fjöl- mennri námstefnu Virkjum kraft kvenna sem iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytið, Samtök atvinnulífsins og Félag kvenna í atvinnurekstri stóðu fyrir í fyrradag. Það kom fram í máli Svöfu að samviskubit kvenna gagnvart heim- ili sínu og börnum væri dragbítur á frama þeirra á vinnumarkaði. „Á meðan við sigrumst ekki á samviskubitinu gagnvart börnum okkar þá erum við ekki tilbúnar til að taka á okkur ábyrgð,“ sagði hún. Þá vildi Svafa meina að konur ættu við að glíma ótta vegna gagnrýnisradda annarra kvenna. Það er ekkert skrýtið þótt íslenskar konur fjölmenni á námstefnu sem þessa. 1 rúm 30 ár hafa þær barist fyrir jafnrétti undir slagorðinu Ég get, þori og vil, en engu að síður eru þær enn töluvert langt undir körlum í launum og aðeins 10% þeirra sitja í stjórnum stærri fyrirtækja og 5% eru stjórnarfor- menn. f nýlegri könnun kom í ljóst að ungar konur hafa lægri launavænt- ingar en ungir karlar. Hvernig skyldi standa á því? Hrönn Greipsdóttir, hót- elstjóri á Radisson SAS, sagði að konur sæju sig oft ekki sem forystumenn og þær eru of lítillátar gagnvart sjálfum sér. Steinunn Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Glitnis í London, benti á að í Noregi og Bretlandi hafi verið settur kynjakvóti sem litlum árangri hefur skilað. Það kom einmitt mjög sterkt fram á námstefnunni að konur eru á móti kynjakvóta, þær vilja kom- ast áfram á eigin verðleikum en ekki af því að þær eru konur. Áhugi kvenna á námstefnunni er staðfesting á því að konur vilja meiri völd, hærri laun og meiri ábyrgð. Þær eru tilbúnar en komast ekki að í karlasamfélaginu. Aðeins 20 karlmenn voru á námstefnunni þrátt fyrir að hún væri öllum opin. Ekki skal um það dæmt hér hvers vegna svo var en Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims, benti á að strákar hefðu ekki leikið sér með stelpum þegar þeir voru börn og sennilega hefði það fylgt þeim áfram í lífinu. Stelpurnar fá sem sagt ekki að vera með i strákal- eikjunum! Benedikt sagðist þó vera því mjög hlynntur að konur kæmust í áhrifastöður. Margoft hefur það verið sagt að konur afþakki valdamikil ábyrgðarstörf og örugglega er það rétt. Hver kona (og auðvitað karl líka) á að hafa rétt til þess að velja hvort hún kýs frama í starfi eða þægilegan vinnutíma frá níu til fimm. Valdamikil störf verða seint talin þægileg og vinnutíminn er oft mjög langur. Hins vegar verða þær konur sem kjósa frama í starfi að gera sig sýnilegar og láta vita að þær kjósi meiri ábyrgð - þá verður leiðin upp greiðari. Aukum sjálfstraustið, burt með samviskubitið og þiggjum ábyrgð utan heimilis. Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins I BOKINNI ER LEITAST VIÐ AÐ SVARA SPURN- INÚUM SEM SNERTA TILÚANÚ LÍFSINS. HÚN ÚTSKÝRIR Á EINFALDAN HÁTT GRUNDVALLARATRIÐI KRISTINNAR TRÚAR OG ER KJÖRIN TIL AÐ KYNNA SÉR EÐA RIFJA UPP EFNI ALFA- NÁMSKEIÐSINS. www.kassi.is/salt Alpha 16 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 G^H-PU^Vol/E- 3000 MiLLjétí KkífíuK í TLANNSáKMILgTVTK: HflVÞ/l fftf§KJ>L«fluM TUtóSS f,9 STW?L4 RqNríS'oltfVtW n Sr&pv&fu Ruit'íJihlri, n<T>- ~ n i - « Bætt efnahagsstjórnun eða evra? Hvers vegna ætli það sé svona mikið skrafað um evruna þessa dagana? Kannski er það ekki skrýtið þar sem hagstjórn núverandi ríkis- stjórnar virðist hafa leitt þjóðina í all- nokkrar ógöngur. Islenskur almenn- ingur þarf að borga upp undir 25% vexti af sumum lánum í bönkunum og hefði nú einhverjum þótt okur á árum áður. Þá hefur viðskiptahalli við útlönd aukist og verðbólga er 8%. Ljóst er að næstu ríkisstjórnar bíður erfitt verkefni sem er að slá á þensl- una og rétta þjóðarskútuna af. Vinstrihreyfingin - grænt fram- boð hefur varað mjög við stefnu stjórnvalda í efnahagsmálum, sér- staklega stóriðjustefnunni svoköll- uðu, en ljóst er að hún á talsverðan þátt í þeirri þenslu sem hér hefur verið. Stóriðjustopp er nauðsynlegt - ekki einungis af umhverfisástæðum heldur einnig af efnahagsástæðum. Þá er ljóst að stóraukin íbúðalán hafa átt sinn þátt i þenslunni. En er evran hið eina rétta svar við núverandi ástandi? Ljóst er svo telja sumir stjórnmálamenn og má þar nefna forystumenn í Framsókn- arflokki og Samfylkingu. Utanríkis- ráðherra hefur meira að segja sagt að það skipti fólk ekki miklu máli að halda í krónuna þar sem flestir noti plastkort nú á dögum, ekki reiðufé. Þessi orð utanríkisráðherra snúast líklega einkum um tilfinningarökin í málinu en Danir, svo dæmi sé nefnt, ákváðu að halda krónunni sem gjald- miðli en eru þess í stað beintengdir við evruna. Óháð því sem kalla má tilfinninga- rök er það heilmikið mál að skipta um gjaldmiðil. Eins og fjölmargir hagfræðingar hafa bent á er það nokkurra ára ferli að skipta úr krónu yfir í evru og það er því ekkert sem leysir úr núverandi efnahagsástandi. Annað mikilvægt atriði, sem mér hefur þótt nokkuð fara fyrir ofan Katrín Jakobsdóttir garð og neðan, er sú staðreynd að langflestir sérfræðingar telja það óskynsamlegt og jafnvel ógerlegt að taka upp evru án þess að ganga í Evr- ópusambandið. Ef við tækjum upp evru en stæðum áfram utan Evrópu- sambandsins gerðum við það á „eigin ábyrgð“ ef svo má að orði komast. Að- koma okkar að gjaldmiðlinum yrði allt önnur en þjóða innan ESB og því þykir fæstum það vænlegur kostur að taka upp evru fyrir þjóð sem er utan Evrópusambandsins. Talsmaður Evr- ópusambandsins í efnahagsmálum tilkynnti svo á dögunum að evran væri órjúfanlegur hluti ESB og ekki væri hægt að taka hana upp nema ganga í ESB. Að lokum má nefna að það er hreint ekki víst að evran yrði sú lausn á okkar efnahagsmálum sem sumir telja. Nærtækast er að lita til þjóða á borð við Þjóðverja og Frakka sem hafa tekið upp evru en nýjustu kann- anir hjá þessum þjóðum sýna veru- lega óánægju með evruna og eftirsjá eftir gömlum gjaldmiðlum. Burtséð frá þessu er aðalspurn- ingin miklu stærri en spurningin um evruna. Hún snýst um það hvort íslend- ingar viljaganga í Evrópusambandið. Það er stórt skref sem þarf að íhuga vandlega. Sem stendur erum við hluti af Evrópska efnahagssvæðinu, tökum þátt í tiltekinni Evrópusam- vinnu á þeim grundvelli og um fimmtungur íslenskra lagasetninga á rætur að rekja til EES. Það yrði því mikil breyting að ganga í ESB og framselja stjórnvaldið að stórum hluta til Brussel. Það er spurningin sem íslenska þjóðin þarf að svara, ekki aðeins hvort henni þyki vænt um krónuna eða hvort hún noti bara kort. Sem stendur er hin meinta lækkun matvælaverðs eina stórvægilega rök- semdin fýrir inngöngu i ESB og það er mörgum spurningum ósvarað, t.d. um íslenskan landbúnað og hvort Islendingar eru reiðubúnir að fórna einhverjum hluta yfirráða yfir auðlindum hafsins. Hins vegar er margt sem kallar á breytta efnahags- stjórnun og því er hægt að breyta, strax í næstu kosningum. Höfundur er varaformaður Vinstri-grænna Leiðrétting I Blaðinu I gær var grein eftir Katrínu Jakobsdóttur, varaformann Vinstri-grænna, eignuð Katrínu Júlíusdóttur alþingismanni. Blaðið hefur beðið hlutaðeigandi afsök- unar. Af þessum sökum er hér endurbirt grein Katrínar Jakobsdóttur. Klippt & skorið Valdimar Leó Friðriksson, sem sagði sig úr Samfylkingunni í kjölfar lakrar útkomu í prófkjöri flokksins í Suðvestur- kjördæmi, erað hugsa um að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn. í viðtali í bæjar- blaðinu Mosfellingi mærir Valdimar Leó, sem nú er alþingismaður utan flokks, stefnu Frjálslyndra. „Ég hef verið að fara yfir stefnu Frjálslynda flokksins og get viðurkennt að hún fervel að mínumáherslum," segir Valdi- mar Leó. Þegar hann er spurður hvort hann sé á leið f flokkinn svarar hann: „Þú ert erfiður. Ég hef áhuga á því." Við nánari skoðun þá virðist Valdimar Leó að mörgu leyti smellpassa inn í Frjálslynda flokkinn. Hann er með próf í fiskeld- isfræði frá Barony College (Skotlandi. Eygló Harðardóttir, sem býður sig fram í 2. sæti á lista Framsóknarflokks- ins í Suðurkjördæmi, gagnrýnir sjálf- stæðismenn og Björn Bjarnason á heima- síðu sinni. Eygló segir þá ábyrga fyrir flutningi verkefna frá Vestmannaeyjum undanfarin misseri. Nefnir hún m. a. flutning verkefna rannsóknarlögreglunnar frá Eyjum á Selfoss, lokun Símans b ú og þá staðreynd að loftskeyta- stöðin hafi verið lögð niður. I „Margir trúðu því að sjálfstæð- v r isráðherrar hættu að leggja niður störf og verkefni í Eyjum ef sjálfstæðis- menn næðu aftur völdum þar. Því miður er það ekki svo," segir Eygló, „Við megum víst þakka fyrir að verkefnin skuli ekki fara beint til Reykja- víkureins Björn myndi eflaust helstvilja .. Steingrímur J. Sigfússon hvatti stjórnarandstöðuna til samstöðu á stjórnmálafundi á Akureyri í fyrrakvöld. Sagði hann að stjórnarand- staðan þyrftl að vera skýr valkostur gegn ríkisstjórninni í komandi kosningum. Þrátt fyrir þetta er greinilegt að það andar köldu milli Stein- gríms og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur eins og rimma þeirra í Kryddsíldinni sýndi. Á fundinum á Akureyri gaf SteingrímurSjálfstæð- isflokknum svolítið undirfótinn. Það þarf ekki að koma neitt sérstaklega á óvart því samstarf flokkanna ( bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur reynst ágætlega. traustih@bladid.net

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.