blaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 26
LAUG mennixt JANUAR 2007 blaöiö Leiðsögn um litinc Harpa Þórsdóttir listfræðingur leiðir gesti um sýninguna Frelsun litarins í Lista- safni íslands sunnudaginn 14. janúar klukkan 14. Sýningin Frelsun litarins færir okkur sérstaka sýn á fauvismann, afdrifaríkan tíma innan málaralistarinnar sem náði hámarki árið 1905 og fól í sér nýjar skilgreiningar í stefnu málverksins. Steinunn á Flórída Steinunn Þórarinsdóttir myndlistarkona sýnir verk sín á alþjóðlegu Palm Beach 3 samtímalistarmessu í Flórída. Steinunn er þar í góðum félagsskap ýmissa heimsfrægra listamanna á borð við Lynn Chadwick sem var einn af merkustu myndhöggvurum Breta á tuttugustu öld. WœkM. „ *. Guðrún sýnir í Artóteki Sýning á verkum Guðrúnar öyahals myndlistarmanns hefur verið opnuð á 1. hæð Grófar- húss, Tryggvagötu 15. Sýningin nefnist Iðnaðarlandslag og er sú ellefta í röð sýninga á verkum listamanna sem eiga listaverk í Artóteki - listhlöðu í Borgarbóka- safni. Guðrún útskrifaðist úr mál- aradeild Myndlista- og handíða- skóla íslands vorið 1997 og lauk námi i kennslufræði við Listahá- skóla Islands 2005. Einnig hefur Guðrún lært tækniteiknun og var einn vetur við nám í Kvikmynda- skóla íslands. Guðrún er félagi í Sambandi íslenskra myndlistar- manna. Þrívíð verk, skúlptúrar og lágmyndir hafa verið mest áberandi í list Guðrúnar undan- farið en innsetningar, myndbönd og málverk hafa einnig verið viðfangsefni hennar. Efnin sem Guðrún notar eru gjarnan úr dag- lega lífinu, t.d. má gjarnan sjá brúðuparta í verkum hennar sem og iðnaðarefni eins og rafmagns- vír, nagla, glerbrot og sand svo eitthvað sé nefnt. Guðrún hefur haldið nokkrar einkasýningar, s.s. í Gallerí Skugga, Lista- salnum Man og Gallerí Fold auk þess sem hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. heilsa ILs /1 -h*/6u þéó gott LIÐ-AKTÍN 6XTRA Glucosaminc & Chondroitin 60 töflur Heldur liöunum liðugum! +0A>l<f K9 JSs -haföu þaö gotl Vel heppnuð uppsetning Leikrit Birgis Sigurðssonar, Dagur vonar, sló rækilega í gegn þegar það var sett upp í Iðnó fyrir tuttugu árum. Það virtist snerta streng í hjarta þjóðarinnar enda tók það á málum sem ekki fengu nægilega umfjöllun í þá daga: Alkóhólisma, misnotkun, bælingu og geðveiki. Hilmir Snær Guðnason, sem leikstýrir uppsetningu Borgarleik- hússins að þessu sinni, styðst að mestu leyti við fyrri uppsetningu. Umgjörðin er raunsæisleg með þeirri undantekningu að einstaka sinnum er hún brotin upp þar sem áhorfendur fá innsýn í hugarheim Öldu, hinnar geðveiku dóttur. Eðlilega vaknar sú spurning hvort sú ákvörðun Hilmis að breyta lítið frá fyrri uppsetningu geti valdið því að verkið glati ein- hverju af sínum upprunalega slag- krafti. Svo virðist ekki vera enda eru áhrif verksins jafn sláandi nú og þau voru fyrir tuttugu árum. Augu Árið 2007 hefst með pomp og prakt á Listasafni Akureyrar í dag með tveimur glæsilegum sýningum. Jón Óskar opnar sýningu á verkum sin- um sem nefnist „Les yeux de l’ombre jaune" (Augu Gula skuggans). Hér er ekki um að ræða hefðbundna yfirlits- sýningu þótt til sýnis séu verk af ýms- um toga, bæði málverk, teikningar og grafík. Sýningin er gríðarlega um- fangsmikil og mun þekja tvo stærstu sali safnsins og meira til. I vestursal íeldri kantinum Sigrún Edda Björnsdóttir fer með hlutverk Láru, hinnar sígildu, sívinnandi íslensku móður sem fyr- ir löngu hefur fórnað öllu fyrir aðra en sjálfa sig. Þegar hún á eldri ár- um tekur alkóhólistann og atvinnu- leysingjann Gunnar inn á heimili fjölskyldunnar byrja að myndast sprungur í þagnarmúrinn. Sigrún nær vel að túlka hina bitru konu sem sakir mótlætis í lífinu hefur brynjað sig gagnvart hvers konar tilfinningum. Hún er jarðbundin, raunsæisleg og aðeins fyrir tilstuðlan Gunnars neyðist hún til að horfast í augu við sjálfa sig. Syni hennar tvo, Hörð og Reyni, leika þeir Gunnar Hansson og Rúnar Freyr Gíslason. Rúnar er sannfærandi sem hinn jarðbundni Reynir sem líkt og Lára hefur ýtt tilfinningunum til hliðar. Að minnstakosti á yfirborðinu. Gunn- ar á margar stórgóðar senur í hlut- safnsins er innsetning eftir banda- ríska listamanninn Adam Bateman og ber sú sýning titilinn Tyrfingar. Jón Óskar hannar sýningarskrána sem minnir mjög á tímaritið Séð og heyrt. Jón hefur haft mikil áhrif á umbrot og hönnun bóka hér á landi, enda hefur hann starfað við fagið um árabil. 1 sýningarskránni, sem er einkar óvenjuleg, ægir öllu saman. Þar er að finna myndir af verkum, all kyns textum eftir fræðimenn sem og verki Harðar sem lifir sig inn í hlutverk skáldsins en fyrir vikið fyrirlítur sinn eigin uppruna og forðast raunveruleikann. Það vinnurþó gegn góðri frammi- stöðu Gunnars og Rúnars að þeir eru helst til í eldri kantinum fyrir hlutverk sin. Hófstillt dramatík Ellert A. Ingimundarson er frá- bær í hlutverki Gunnars, illmenn- isins og aumingjans, og hin unga leikkona Birgitta Birgisdóttir gerir vel með túlkun sinni á Öldu. Sam- leikur þeirra tveggja er góður og nær hámarki í afar sláandi senu þar sem Gunnar misnotar Öldu á hrotta- legan hátt. Sviðsmyndin er að mestu leyti raunsæisleg en rimlar látnir um- lykja sviðið svo það minnir helst á fuglabúr. Að því leyti fléttast inni- hald verksins og sviðsmynd vel sam- an. Framvinda verksins á það til að gamla félaga Jóns Óskars sem fjalla um list hans og persónu. Jón Óskar fléttar einnig hugmyndaheim sinn skemmtilega saman við list Adams Batemans. Adam Bateman nam list sína í New York en rekur nú listamiðstöð í Utah. Uppsafnaður fróðleikur bóka er honum hugleikinn og hugmynd- irnar risavaxnar. Sýningarnar verða opnaðar í dag klukkan 15 og lýkur 4. mars. Borgarleikhúsið - Dagur vonar: Leikhús ★★★★ Eftir: Birgi Sigurðsson Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason Leikmynd: Vytautas Narbutas Leikarar: Ellert A. Ingimundar- son, Sigrún Edda Björnsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Gunnar Hansson, Birgitta Birgisdóttir. hægja verulega á sér á köflum sem gerir það oft þungt en á móti hefur Hilmir náð að stilla dramatíkinni í hóf fyrir utan einstaka senur. { heild er því hér um nokkuð vel heppnaða uppsetningu að ræða á verki sem á fullt erindi við leikhús- gesti í dag líkt og fyrir tuttugu ár- um. hoskuldur@bladid.net Gula skuggans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.