blaðið - 13.01.2007, Page 33

blaðið - 13.01.2007, Page 33
blaðið LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 33 ekki virkur þátttakandi í pólitík á þessum tíma en þegar ég fór í lög- fræði í Háskóla Islands gekk ég strax til liðs við Vöku sem var svolítið úr takti við uppeldið sem ég fékk í MH og á mínum æskuárum því foreldrar mínir hafa alltaf verið vinstrisinn- aðir. Ég kynntist því hins vegar í Vöku að pólitíkin er ekkert sérstak- lega áhugaverður eða skemmtilegur heimur og sá litli áhugi sem hafði vaknað á henni dofnaði fljótt. Ég held að það þurfi sterk bein til að þola þann ólgusjó sem pólitíkin er.“ Hroki og virðing Hvernig vaknaði áhugi þinn á lögreglumálum? „Eftir lögfræðinám fór ég til starfa í dómsmálaráðuneytinu og var við störf í sifjamálunum hjá þeim ágæta skrifstofustjóra Drífu Pálsdóttur því áhugi minn var helst á barnarétti og fjölskyldurétti. Síðan var ég fluttur yfir í lögreglumálin hálfu ári seinna, heillaðist algjörlega af þeim mála- flokki og hef verið í honum síðan. Ég tek mjög alvarlega það meginhlut- verk lögreglunnar að tryggja öryggi og gæta að öryggi. Bara það að geta haft áhrif með þeim hætti til góðs í samfélaginu er nokkuð sem mér fannst heillandi og raunverulega áhugavert.“ Lögreglan er stundum sökuð um hroka. Fólk verður að hera virðingu fyrir lögreglunni en þolir ekki frá henni hroka. Hvernig horfir þetta viðjiér? „Eg held að um leið og einhver sýnir af sér hroka þá glati hann virðingunni. Maður byggir upp virðingu með því að bera virðingu fyrir öðrum. Þetta er ákveðið leið- arljós sem ég vil að lögreglan starfi eftir og ég lít svo á að lögreglan hafi starfað þannig. Við lögreglunni blasa öll svið samfélagsins, dökku og björtu hliðarnar. Þeir sem hrópa hæst um hroka og yfirgang lögregl- unnar eru kannski ekki barnanna bestir sjálfir. Það getur verið að þeir séu ekki að sýna lögreglunni þá virðingu og kurteisi sem eðlilegt er að fólk sýni í samskiptum hvert við annað. Þetta er ekki flóknara en það. Þetta er spurning um það hvernig við eigum samskipti, hvort sem við erum að eiga viðskipti úti í búð eða hittumst á götu, alveg óháð þvi í hvaða hlutverki við erum, hvort ég er lögreglumaður og þú borgari.“ Samstarfið við Björn Þú starfaðir með þremur dóms- málaráðherrum í dómsmálaráðu- neytinu. Við hvern þeirra áttirðu bestu persónulegu samskiptin? „Ég starfaði með Þorsteini Páls- syni, Sólveigu Pétursdóttur og Birni Bjarnasyni og átti einstaklega gott samstarf við þau öll. Þau eru ólíkir persónuleikar með mismunandi stíl en öflug hvert á sínu sviði. Ég náði einna bestu persónulegu sambandi við Björn. Það helgast kannski af því að Þorsteinn Pálsson var sjáv- arútvegsráðherra samhliða því að vera dómsmálaráðherra og var með starfsaðstöðu i sjávarútvegs- ráðuneytinu. Hvað Sólveigu varðar var ég tvö ár af hennar tímabili úti í Brussel og vann meðal annars að málefnum sem sneru að Schengen- samstarfinu. Fyrir vikið varð sam- starfið ekki jafn náið þótt það væri mjöggott. Björn er öflugur og skipulagður. Hann hefur markað mjög skýra og að mínu mati góða stefnu fyrir lög- regluna. Björn er núna að uppskera eins og hann sáði árið 2003 þegar hann setti ákveðið ferli í gang. Sú öfl- uga löggæsla sem núna er að verða er afrakstur þeirrar vinnu.“ Björn er umdeildur en maður tekur eftirþví að þeir sem vinna með honum bera honum yfirleitt mjögvel söguna. Þér hefur þóttgott að vinna með honum? „Ég hef ekki heyrt í einum einasta manni sem unnið hefur náið með Birni eða undir hans stjórn sem ber honum illa söguna. Það held ég að segi mjög mikið. Fjölmiðlar, vilj- andi eða óviljandi, draga kannski upp aðra mynd af fólki en þá raun- verulegu. Menn hafa verið duglegir við að ýta undir harða ímynd hjá Birni en hann er býsna mjúkur og skenmtilegur inn við beinið.“ Draumur um skáldsögu Mér er sagt að þú sért í lestrarfé- lagi sem heitir Krummarnir. í hvaða félagsskap ertu þar? „Pétur Blöndal blaðamaður er upphafsmaðurinn að þessum félags- skap, mikill áhugamaður um lestur, og vildi fá vini sína og kunningja úr hinum og þessum áttum til að hittast reglulega og ræða um bók- menntir. Við hittumst einu sinni í mánuði, oftar í desember þegar jólabókaflóðið skellur á. Við erum um það bil fimmtán, þar á meðal Huldar Breiðfjörð, Börkur Gunnars- son, Árni Matthíasson, Karl Blön- dal, Lárus Blöndal, Róbert Spanó UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA rafmagnsrúm dunsœngur & koddar náttborð eldhússtólar eldhúsborð barstólar borðstofa sjónvarpsherbergið svefnsófar sófasett & hornsófar stólar / casper www. toscana.is OPIÐ mán - föst 10 - 18 laug 11 - 16 HÚSGAGNAVERSLUN TOSCANA SMIÐJUVEGI 2, KOP S:58 7 6090 HÚSGÖGNIN FÁST EINNIG I HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.