blaðið - 13.01.2007, Síða 42

blaðið - 13.01.2007, Síða 42
42 LAUGARDAGUR l? blaöiö helgin Garbo og Tolstoj Kvikmynd sem byggð er á hinni frægu skáldsögu Lévs Tolstojs, Önnu Karenínu, með Gretu Garbo í titilhlutverki verður sýnd í MÍR-salnum Hverfisgötu 105 á morgun sunnudag kl. 15. Aðgangur er ókeypis. Skagfirsk sveifla Hinn eini sanni skagfirski sveiflukóngur Geir- mundur Valtýsson kemur í bæinn ásamt hljómsveit sinni um helgina og skemmtir gestum Kringlukrár- innar í kvöld. Skemmtunin hefst kl. 23. helgin@bladid.net UM HELGINA Tónleikar til að vekja athygli á málefnum Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar: Dr. Mister & Mr. Handsome Lokatónleikar Dr. Mister og Mr. Handsome verða haldnir á Broadway í kvöld. Þetta mun vera í allra síðasta skipti sem hljómsveitin umdeilda kemur fram og er aldrei að vita nema frægir leynigestir stígi á svið með strákunum. Sixties í Vélsmiðjunni Hljómsveitin Sixties leikur fyrir dansi í kvöld á skemmti- staðnum Vélsmiðjunni á Akur- eyri. Húsið verður opnað kl. 22 og er frítt inn til miðnættis. Barokk í Bústaðakirkju Kammermúsíkklúbburinn heldur tónleika í Bústaðakirkju sunnudagskvöldið kl. 20. Cam- erarctica leikur barokktónverk og strengjakvartett eftir Sjo- stakovitsj. Nýárstónleikar Tíbrár Hjónin Hanna Dóra Sturludóttir sópransöngkona og Lothar Odinius tenór koma fram ásamt Salonhljómsveit Sigurðar Ingva á árlegum nýárstónleikum Tí- brár sem haldnir verða í Salnum kl. 16 í dag Tríó Artis í Mosfellskirkju Tríó Artis heldur árlega nýárs- tónleika sína í Mosfellskirkju á morgun, sunnudag, kl. 17-18. Á efnisskránni er Ijúf tónlist fyrir flautu, víólu og hörpu. Að- gangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Opnanir í Listafninu á Akureyri Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í dag kl. 15. Annars vegar er um að ræða sýningu á verkum Jóns Óskars sem nefnist Les yeux de l’om- bre jaune (Augu gula skuggans) og hins vegar innsetning banda- ríska listamannsins Adams Bate- mans sem nefnist Tyrfingar. Opnuní Nýlistasafninu Fyrsta stóra einkasýning mynd- listarmannsins Kolbeins Huga Höskuldssonar verður opnuð í Nýlistasafninu í dag kl. 17. Sýningin ber yfirskriftina Still drinking about you og gefur áhorfendum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í íveru lista- mannsins. Synd að loka sjoppunni ITónlistarþróunarmiðstöðinni við Hólmaslóð hefur verið öflug starfsemi á undanförn- um árum og þar hafa nú um 50 hljómsveitir aefingaaðstöðu og vettvang til tónleikahalds. f dag verða haldnir tónleikar í Hafnar- húsinu undir yfirskriftinni Járn í járn þar sem fram koma hljóm- sveitir og tónlistarmenn sem eiga athvarf í Tónlistarþróunarmið- stöðinni. Húsið verður opnað kl. 16 og hefj- ast tónleikarnir klukkustund síðar. Byrjað verður á rólegu nótunum með listamönnum á borð við Ólaf Arnalds, Rökkurró og Lay Low en endað með alvöruharðkjarnarokki að hætti I adapt og Severed Crotch. Af öðrum sem fram koma má nefna Sudden Weather Change, My Summ- er as a Salvation Soldier, Changer og Benny Crespo’s Gang. Skortir skilning og Qármagn Guðmundur Ingi Þorvaldsson, tónlistarmaður og leikari, er einn af skipuleggjendum tónleikanna og segir hann að með þeim vilji þeir vekja athygli á starfseminni enda viti alltof fáir af henni. „Það sem vakir fyrir okkur er að hljóta skilning og fjármagn frá opin- berum aðilum sem tryggir rekstur Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar til frambúðar. Nú er svo komið að við verðum að fara að fá fastan pening inn í þetta frá opinberum aðilum sem við höf- um lengi haft gott vilyrði fyrir að fá. Það verður að fara að gerast því að eins og staðan er í dag erum við að reka þetta með tapi og þurfum að loka sjoppunni bráðlega ef ekkert gerist," segir Guðmundur Ingi og bætir við að það yrði mikil synd. Á síðustu árum hafa ýmis stórfyr- irtæki stutt við bakið á menning- arstarfsemi í landinu og segir Guð- mundur að þeir myndu fagna því að fá peninga úr þeirri átt. „Við myndum þiggja peninga frá flestri löglegri starfsemi og erum búin að leita fyrir okkur víða. Fyrst og fremst finnst okkur þó að ríki og borg eigi að sjá sóma sinn í því að viðurkenna þetta sem tómstunda- starf,“ segir hann og bendir á að það hafi verið gert í Svíþjóð með góðum árangri. I adapt í ham Harökjarnahljómsveitin I adapt er meöal þeirra listamanna sem koma fram á tónleikunum. en 18 ára til þess. Það fer ekkert á Airwaves og þessa stærri viðburði. Það má það ekkert þannig að það er ofsalega gaman að sjá hvernig er að byggjast þarna upp skemmtileg sena og fastur hópur sem kemur á tónleika,“ segir Guðmundur Ingi að lokum. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og lýkur kl. 22:30. Að- gangur er ____________ ókeypis og eru A allir velkomnir. Guðmundur Ingi Þorvalds- son Guðmundur vill aö ríki og borg komi meö öflugri hætti að rekstri Tónlistarþróunar- miðstöðvarinnar. Gegnir mikilvægu hlutverki Tónlistarþróunarmiðstöðin er einmitt byggð upp að sænskri fyrir- mynd og segir Guðmundur Ingi að hún sé mikilvæg miðstöð fyrir tón- list ungs fólks og hafi jafnframt mik- ið forvarnargildi. „Það er gríðarlegur stuðningur fyr- ir fólk sem er í rokk- og popptónlist að hafa hvert annað og að hafa hús- næði sem er undir eftirliti og þjófa- varið. Þar sem tónlistin er tekin al- varlega jafnvel þó að hún sé rokk og popp. Menn eru ekki komnir þang- að til að vera fullir og láta eins og fífl heldur til þess að æfa sig,“ segir Guðmundur og bendir jafnframt á að staðurinn sé kjörinn vettvangur fyrir tónleikahald. „Þarna geta menn gengið 20 metra innandyra með hljóðfærin sín og fengið aðstoð við að halda tónleika með lágmarkskostnaði. Það er ofboðslega mikið mál ef þú ert til dæmis ekki með bílpróf að ætla að halda einhvers staðar tónleika. Það er heldur eiginlega enginn vettvangur fyrir fólk yngra * Mikil mildT^] Wá Veldu létt og mundu eftir ostinum! Einleikur í Silfurtunglinu Leikhópurinn Brilljantín frum- sýnir einleikinn Power of Love - Hið fullkomna deit eftir Halldóru Malin Pétursdóttur í Silfurtunglinu á efri hæð Austurbæjar. Verkið sem er samstarfsverkefni leikhópsins og ísMedía í Austurbæ verður aðeins sýnt í viku. Verkið fjallar um konu sem er að undirbúa mikilvægasta kvöld lífs síns. Þetta kvöld ætlar hún að finna ástina og lifa hamingjusöm til ævi- loka. Til þess að ekkert fari úrskeið- is skipuleggur hún allt í þaula. Allt verður að vera fullkomið þegar herr- ann mætir á svæðið og hún verður að vera fullkomin sjálf. Frumsýning verður á morgun og næstu sýningar miðvikudaginn 17. janúar, fimmtudaginn 18. janúar, föstudaginn 19. janúar, laugardag- Upprennandi leikskáld Halldóra Malin Pétursdóttir hefur veriö afkastamikil á leiksviöinu frá því aö hún útskrifaðist frá Listaháskólanum síöastliöiö vor. inn 20 janúar og sunnudaginn 21. janúar. Sýningar hefjast alla dagana kl. 20. Miðasala er í Austurbæ frá kl. 13- 17 og i síma 5514700. Einnig er hægt að nálgast miða á midi.is. Miðaverð er 1500 krónur. Halldóra Malin Pétursdóttir út- skrifaðist frá Listaháskóla Islands vorið 2006 með BFA í leiklist. Frá því að hún útskrifaðist hefur hún meðal annars sett upp einleik á Borgarfirði eystra, stofnað leikfélag- ið Frú Normu á Egilsstöðum sem er eitt af tveimur atvinnuleikhúsum á landsbyggðinni utan Akureyrar. Auk þess vann hún til tvennra verð- launa i dansleikhúskeppni Borgar- leikhússins síðastliðið vor fyrir verk- ið Tommi og Jenni. Nýverið stofnaði Halldóra Malin leikhópinn Brilljan- tín og er Power of Love fyrsta verk- efni hópsins. Leikhópnum hefur verið boðið í leikferð um Króatíu og Slóveníu í febrúar.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.