blaðið - 24.02.2007, Qupperneq 33
blaðið
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 33
Austrænir tónar í Salnum
Kínversku söngkonurnar Xu
Wen og Natalia Chow halda tón-
leika í Salnum á sunnudag ásamt
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
píanóleikara. Á efnisskránni eru
ljóðaflokkar eftir Mahler og Juli-
an Hewlett og íslensk og erlend
sönglöng og aríur.
„Ég hef búið á íslandi í 15 ár, og
Xu Wen aðeins lengur. Þetta er
samt í fyrsta skiptið sem við höld-
um tónleika saman. Við höfum
heilmikið sungið sín í hvoru lagi
en ákváðum loksins að gera það
að veruleika að halda tónleika
saman. Á tónleikunum syngjum
við bæði dúetta og einsöng,“ segir
Fjalakötturinn
fer af stað
Kvikmyndaklúbburinn Fjalakött-
urinn hefur regluiegar sýningar
í Tjarnarbíói nú um helgina
með tveimur rússneskum kvik-
myndum, tveimur af þremur kvik-
mynda James Dean, auk nýrrar
þýskrar myndar sem hefur vakið
athygli að undanförnu. Skráning í
klúbbinn er hafin á heimasíðunni
www.filmfest.is. Félagsgjald er
4000 kr. og veitir aðgang fyrir
einn að öllum sýningum fram í
maí. Stakir miðar kosta 900 kr
og fást í Tjarnarbíói á sýningar-
dögum, sem verða alla sunnu-
daga og mánudaga. Alls verða
tæplega 30 myndir á dagskrá
Fjalakattarins í vor. Félagar fá
auk þess afsláttarkjör á Alþjóð-
lega kvikmyndahátíð í Reykjavík
sem haldin verður í haust. Allar
nánari upplýsingar má finna á
www.filmfest.is.
Gullöld gítarsins
Gítarleikarinn Pierre Laniau
heldur tónleika í Hafnarborg
miðvikudaginn 28. febrúar. Pierre
Laniau er franskur heimskunnur
gítarleikari og hafa verk hans
verið gefin út undir merkjum
stærstu tónlistarútgáfa heims.
Laniau hefur komið fram á helstu
tónlistarhátíðum Frakklands, t.d.
í Montpellier og Lille, og leikið
í frægum tónleikasölum í París,
svo sem Salle Gaveau, Cirque
d'hiver og Carré Sylvia Montfort.
Hann hefur komið fram sem ein-
leikari með hljómsveitum í Frakk-
landi og víðar, á kammertón-
leikum hefur hann leikið dúetta
með söngvurunum Guillemette
Laurens og Claire Geoffroy Dec-
heaume, flautuleikaranum Marc
Beaucoudray og afríska gftarleik-
aranum Oyenga Adjalité. Hann
hefur samið tónverk fyrir afríska
dansarann Elsu Wolliaston og
kvikmyndagerðarkonuna Frango-
ise Etchegaray.
Frumleiki Pierre Laniau birtist
í leit hans að nýjum viðfangs-
efnum. Hann hefur auðgað
bókmenntir gítarsins, annars
vegar með því að leita í fjársjóði
liðinna alda og leika verk sem
samin voru fyrir barokkgítar en
á þennan hátt hefur hann dregið
fram í dagsljósið fjölda verka eftir
barokktónskáld sem ekki höfðu
áður birst á prenti. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.
Natalia. „Ég mun frumflytja ljóða-
flokk eftir manninn minn sem
byggður er á kínverskum ljóðum
sem ég þýddi yfir á ensku og hann
samdi svo tónlist við textana. Tón-
listin er svolítið kínversk, hann
notar fimm tóna skala en ég syng
samt á ensku. “
Söngkonurnar báðar hafa tekið
virkan þátt í íslensku tónlistarlífi.
Xu Wan hefur sungið aríur með
Sinfóníuhljómsveit íslands undir
stjórn Bernharðs Wilkinssonar
og komið fram sem einsöngvari
með ýmsum kórum, meðal ann-
ars í Messíasi eftir Hándel, Jóla-
óratoríunni eftir J.S.Bach, Petite-
messunni eftir Rossini, Elias eftir
Mendelssohn og Die Schöpfung
eftir Haydn. Wen hefur einnig
haldið fjölda einsöngstónleika og
sinnt tónlistarkennslu.
Natalía liefur starfað hér sem
söngkona, söngkennari, organ-
isti og kórstjóri, fyrst á Húsavík
og síðan á höfuðborgarsvæðinu.
Hún hefur stofnað fjóra kóra
Kvennakór Kópavogs, Karlakór
Kópavogs, smábarnakór sem
heitir Englakórinn og Regnboga-
kvennakórinn sem er kór fyrir
konur með erlendan uppruna
sem og íslenskan. Tónleikarn-
ir hefjast í Salnum klukkan 16.
Xu Wen og Natalia
Chow Syngja í Salnum
á sunnudag Mynd/FnW
wmmmumm/: '/ / : ' ,
Jæja Batti minn, ég
er tilbúin, drífum
okkur nú!
1
j Skilum ónýtu rafhlöðunum!
Eru galtómar rafhlöður á þínu heimili? Þær gera ekkert gagn
1 liggjandi ofan í skúffu. Þú getur t.d. farið með þær út á næstu
bensínstöð Olís eða söfnunarstöð eða fengið þér endurvinnslutunnu
■ fyrir flokkað heimilissorp.
ÚRVINNSLUSJÓÐUR
Rafhlöður eiga ekki að fara í ruslið heldur á að skila þeim til úrvinnslu. Það er í
raun sáraeinfalt og nokkrar leiðir í boði: Hægt er að skila inn ónýtum rafhlöðum
m.a. á bensínstöðvum Olís, söfnunarstöðvum sveitarfélaga um allt land og einnig
er hægt að setja þær í endurvinnslutunnur fyrir flokkað heimilissorp. Á vef
Urvinnslusjóðs, www.urvinnslusjodur.is, er að finna upplýsingar um staðsetningu
söfnunarstöðvanna.
Kynntu þér málið á www.urvinnslusjodur.is
olís
@ Efnamóttakan hf
o
GÁMAMÓNUSTANHF.
BÆTT UMHVERFI - BETRI FRAMTlD
■É HRINGRÁS
tNtMMVIMMLA
J
AP almannatengsl / H2 hðnnun