blaðið - 28.02.2007, Síða 2

blaðið - 28.02.2007, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 blaðið VEÐRIÐ í DAG Léttskýjaö Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og léttskýjað um nær allt land. Frostlaust að deginum við suður- ströndina en annars allt að 10 stig frost, kaldast í innsveitum. Á FÖRNUM VEGI Hefur þú fundið fyrir svifryksmenguninni? Einar Bragi Einarsson, sölumaður Nei, ég hef ekki fundið fyrir henni. Arnlaug Davíðsdóttir Ég fann einhverja vonda lykt uppi á Höfða í dag, en ég veit samt ekki hvort það hefur verið svifryksmengunin eða eitthvað annað. Halla Jónsdóttir, nemi. Ég hef ekki fundið fyrir henni. Haraldur Marteinsson Nei, það hef ég ekki gert. Ég er frá Siglufirði og þar er andrúms- loftið alltaf gott. Högni Kjartan Porkelsson, sölufulltrúi. Nei, ég hef ekkert fundið fyrir henni. Andrúmsloftið er fínt hér. ÁMORGUN Frost Norðaustlæg átt, 5 til 10 metrar á sekúndu og él, en bjartviðri suðvestan- og vest- anlands. Frost 1 tiMOstig, kaldast í innsveitum. VÍÐA UM HEIM Algarve 17 Glasgow 12 New York Amsterdam 5 Hamborg 6 Orlando Barcelona 15 Helsinki -4 Osló Berlín 4 Kaupmannahöfn 3 Palma Chicago 4 London 12 París Dublin 13 Madrid 18 Stokkhólmur Frankfurt 6 Montreal -9 Þórshöfn 2 21 1 21 9 -1 0 Uppsagnir á skíðasvæðunum Mikill taprekstur hefur verið á skíðasvæðunum og nauðsynlegt að sveitarfélögin sem að þeim koma sameinist um úrbætur. Mynd/Ómar Óskarsson Skipulagsbreytingar á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins: Starfsfolkinu öllu sagt upp störfum ■ Óvissa um framhaldið ■ Ákvörðun má ekki taka langan tíma Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net Öllum heilsársstarfsmönnum skíða- svæða höfuðborgarsvæðisins, Skála- fells og Bláfjalla, hefur verið sagt upp störfum. Starfsmennirnir eru sex talsins og hafa áratuga reynslu og þekkingu á rekstri skíðasvæðanna. „Þetta kom algjörlega flatt upp á okkur starfsmennina og okkur grun- aði ekki neitt fyrr en rekstrarstjórnin boðaði okkur allt í einu á fund. Við stöndum þetta líklega af okkur eins og önnur óveður en ég tel líklegt að á næstu dögum fari menn að líta í kringum sig,“ segir Ómar Skaphéð- insson, rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum, einn þeirra sem sagt hefur verið upp starfi. Gripið til neyðarúrræða Anna Kristinsdóttir, formaður skíðasvæðanna, ítrekar að hér sé um neyðarúrræði að ræða þar sem rekstur skiðasvæðanna hafi verið mjög erfiður síðustu ár. Hún á von á því að skipulagsbreytingarnar verði fullunnar innan tveggja mánaða. „Að segja upp starfsmönnum er aldrei ánægjulegt. í kjölfar ná- kvæmrar rekstrarskoðunar kom í ljós að þessar aðgerðir eru nauðsyn- legar og við þurfum að vera betur á tánum,“ segir Anna. „Á næstunni leitum við til allra sveitarfélaganna sem að skíðasvæðunum standa og við þörfnumst þeirra skilnings á leið- angrinum sem framundan er. Hvað starfsmennina varðar á ég von á því að allavega helmingur þeirra verði endurráðinn en ég skil þá vel að vilja ekki bíða endalaust." Óvissa um framhaldið Steinþór Einarsson, yfirmaður íþróttamála hjá ÍTR, segir brott- reksturinn alfarið á ábyrgð rekstrar- stjórnar skíðasvæðanna þó svo að starfsmennirnir séu starfsmenn iTR. „Þetta eru skipulagsbreytingar í kjöl- far þess hversu lítið hefur verið opið í vetur. Eins og ég skil þetta er ekki útséð með hvort einhverjir eða allir verði ráðnir aftur,“ segir Steinþór. „Þetta er svo nýskeð að við vitum ekki almennilega með framhaldið en það er alveg ljóst að skíðasvæðunum verður ekki lokað.“ Aðspurð segist Anna eiga von á að ýmsar ákvarðanir þurfi að taka á næstunni um rekstur skíðasvæð- anna. „Það er alveg ljóst að ef við fáum ekki öll sveitarfélögin með okkur í þennan leiðangur þá gæti byrðin orðið erfið því tapreksturinn hefur verið mikill. Svo eru líka vanga- veltur um starfið í fjallinu og hvort snjógerðartæki séu næsta skref,“ segir Anna. Hraðar hendur nauðsynlegar Ómar óttast að ekki sé enn búið að ákveða hvað taki við og varar við því að skipulagsvinnan taki of langan tíma. Hann á ekki von á því að upp- sögnunum verði mótmælt sérstak- lega. „Stjórnin þarf að hafa hraðar hendur ef þeir ætla ekki að missa okkur alla i önnur störf því með okkur myndi hverfa áratuga reynsla sem erfitt væri að þjálfa nýliða í,“ segir Ómar. „Okkur hefur verið til- kynnt hjá ÍTR að okkur standi þar allar dyr opnar en ég á von á því að hver taki sina ákvörðun fyrir sig á næstu dögum. Ef stjórnin telur þetta skynsamlegt, þá þurfum við að taka okkar ákvörðun sjálfir líkt og hún tók sína.“ Reykjavík: Viöbúnaðar- stig á flugvelli Viðbúnaðarstigi var komið á á Reykjavíkurflugvelli þegar vél Flugfélags íslands á leið til Isa- fjarðar var snúið við skömmu eff- ir flugtak síðdegis í gær. Vélinni var snúið við þegar í ljós kom að nefhjól vélarinnar var fast niðri. Viðbúnaðarstigi var aflýst um leið og vélin var lent heilu og höldnu á Reykjavíkurflug- velli. 23 farþegar voru um borð í vélinni auk þriggja manna áhafnar. Að sögn talsmanns Flugfélags íslands var aldrei nein sérstök hætta á ferðum. Súdan: Ákært fyrir stríösglæpi Alþjóðastríðsglæpadómstóll- inn i Haag ákærði tvo menn fyrir stríðsglæpi í Darfúr-héraði í Súdan í gær. Ahmed Haroun, fyrrum ráðherra mannúðarmála í Súdan, og skæruliðaforinginn Ali Muhammad al-Rahman eru fyrstu mennirnir sem dómstóll- inn ákærir vegna voðaverkanna í Darfúr-héraði. Þeir eru meðal annars sakaðir um fjöldamorð, nauðganir og pyntingar. Talsmaður súdanskra stjórn- valda sagði hins vegar að ekki stæði til að framselja mennina tvo til dómstólsins. Talið er að um 200 þúsund manns hafi látist og tvær og hálf milljón manna hafi neyðst til að flýja heimili sín frá upphafi átakanna árið 2003. Ódýrasti sjólfskipti dísel jeppinn 09 sá best útbúni Nýr Land Rover Freelander TD4, eyðsla 8#ó í blönduðum akstri, leður og alcantara innrétting, rafdrifnar rúður, álfelgur, bakkskynjari, 6 diska CD, ofl. 4 litir í boði. Sýningarbíll á staðnum. Verð: með topplógu 3.590 þÚS. án lúgu 3.490 þÚS. www.sparibill.is Síbrotamaður dæmdur í sextán mánaða fangelsi: Seldi fíkniefni og stera Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær 27 ára karlmann, Guðmund Frey Magnússon, í 16 mánaða fang- elsi fyrir vörslu, sölu og dreifingu á fíkniefnum, skemmdarverk, hót- anir, umferðarlagabrot, vörslu stera og akstur undir áhrifum fíkinefna. Hann var auk þess sviptur ökurétt- indum ævilangt og gert að greiða allan sakarkostnað en skaðabóta- kröfu vegna skemmdarverkanna var vísað frá dómi. Brotin áttu sér stað á sjö mánaða tímabili í fyrra en Guðmundur á að baki langan afbrotaferil meðal annars fyrir hótanir, nytjastuld, lík- amsárás, þjófnað og fíkniefnabrot. í mars í fyrra bar hann eld að mó- lótovkokteil sem hann hafði komið fyrir undir bifreið á bílastæði á III KAiiShOMI K RKYKJAMKI K mm ’ "" ' " 'mmÉtm Síbrotamaður í fangelsi H Hinn 27 ára Guðmundur Freyr Magnússon fékk sex- tán mánaða fangelsisdóm. Selfossi með þeim afleiðingum að eldur kom upp í bifreiðinni og olli á henni nokkrum skemmdum. Hann hafði auk þess skorið á alla hjólbarða bifreiðarinnar. Sama kvöld hafði hann lesið inn á talhólf í farsíma eiganda bifreiðarinnar hót- anir um ofbeldi og líflát. Guðmundur var jafnframt sak- felldur fyrir vörslu, dreifingu og ætlaða sölu á tæplega 300 grömmum af kannabisefni, tæplega 23 grömmum af amfetamíni, 18 grömmum af kókaíni og nokkrum töflum af alsælu og anabólískum sterum. í niðurstöðu dóms- ins kemur fram að við ákvörðun refsingar væri horft til þess að ákærði játaði brot sín greiðlega fyrir dómi.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.