blaðið - 28.02.2007, Síða 23
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 31
Öryggi barna á heimilinu
Smábörn eru forvitin að eðlisfari
og mjög gjarnan fjörug og handóð.
Áður en barn kemur inn á heimil-
ið er því afar mikilvægt að þær
fjölmörgu hættur sem leynst geta
í húsinu séu fjarlægðar. Hér eru
nokkur ráð sem nauðsynlegt er að
fara eftir.
• Haldið öllum snúrum og spottum
á öruggum stöðum þar sem börn
geta ekki náð til. Þetta gildir ekki
síst um rafmagnssnúrur.
• Snúið pottum og pönnum á elda-
vélunum á þá leið að skaftið snúi
að veggnum á bak við ofninn en
ekki að opnu rými. Þetta er Hka
mikilvægt þó ekki sé verið að elda
neitt á eldavélinni.
• Setjið öll lyf, vítamín, hreinsiefni
og önnur eiturefni í læsta skápa ef
hægt er. Börn geta verið duglegri
að príla upp á skápa en þau líta út
fyrir.
• Allar plöntur skulu vera á örugg-
um stað þar sem börn ná til. Ekki
eru allar plöntur eitraðar sam-
kvæmt bókunum en það borgar
sig þó ekki að taka neina áhættu.
• Haldið öllum stólum, sófum, borð-
um og öðrum stórum húsgögnum
fjarri gluggum þegar þeir eru opn-
ir. Ef þið eruð með vírnet fyrir
gluggunum, munið þá að það eru
hugsað til að halda skordýrum úti
en ekki börnum inni.
• Passið að öll leikföng í húsinu
henti aldri barnanna.
• Verið viss um að ekkert vatn sé í
baðkarinu. Börn geta drukknað í
mjög grunnu vatni.
• Setjið lítið grindverk sem börn
geta ekki opnað við stiga.
Þessi listi er vitaskuld ekki tæm-
andi og margt sem í honum kemur
fram má teljast til almennrar skyn-
semi.
Þó er
þ a ð
svo að
einföld-
ustuatriðigetaauð-
veldlega gleymst
og hvað börn
varðar er aldr-
ei of varlega
farið.
100 stólar
í Lundúnum
(hönnunarsafninu Design Museum
í Lundúnum stendur þessa dagana
yfir sýning á stólum húsgagnahönn-
uðarins Martinos Gampers. Um
er að ræða afrakstur áskorunar
sem hann fékk um að hanna 100
stóla á 100 dögum, og efniviðurinn
sem hann notaði til að smíða þá
var allur endurunninn úr notuðum
stólum. Stólarnir hundrað eru
sýndir í safninu til 4. mars ásamt
öðrum verkum Gampers, en fyrir
þá sem eiga leið um Lundúnir á
næstu dögum er kjörið að kíkja við
á Design Museum, Shad Thames,
London SE1 2 YD, enda fer hver
að verða síðastur að skoða verk
þessa skemmtilega hönnuðar.
Planta vikunnar
Svokölluð stofulyngrós, eða
Rhododendron simsii, er snotur
stofuplanta sem á uppruna sinn
að rekja til Himalajafjallanna. Hún
getur náð allt að 45 sentimetra
hæð en algengt er að hún sé um
20-30 sentimetrar þegar best lætur.
Blómin eru yfirleitt bleik á litinn en
þó eru til afbrigði af plöntunni þar
sem blómin eru í öðrum litum á
borð við gulan og fjólubláan.
Þar sem plantan er upprunnin í
köldu loftslagi hátt í fjöllum þrífst
hún best í köldu lofti og mikilvægt
er að hafa hana ekki í suðurglugga
þar sem sólin getur skinið beint á
hana. Hún þarf mikið vatn og best
er ef hægt er að vökva hana með
rigningarvatni eða snjó.
Gamlir símar
endurheimtir
Þeir sem eru komnir af barnsaldri
muna flestir eftir gömlum, þungum
heimilissímum með númeraskífum.
Þeim hefur nú í langflestum tilfellum
verið skipt út fyrir nútímalegri, létt-
ari og helst þráðlausa síma með
tökkum. Deila má um hvort skiptin
séu framfaraskref en hitt er Ijóst að
ekki þykir öllum vera meiri prýði að
nútímalegu símunum en þeim gömlu.
Erfitt getur reynst að finna gamal-
dags síma sem virka vel í verslunum,
en á síðunni www.oldphones.com er
hægt að festa kaup á fínustu gamal-
dags símum sem
virka alveg jafn
vel og þeir nýrri.
H ARÐVIÐ ARVAL
Krókhálsi 4 • 110 Reykjavík
Sími 567 1010
Æm,
/a j/
/ ■ / 1 1 1
-1 J
- Þegar þú kaupir gólfefni www.parket.is