blaðið - 28.02.2007, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007
blaðið
INNLENT
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Festi fingur í öryggissylgju
Þriggja ára gömul stúlka var flutt af slysadeild yfir
á verkstæöi slökkviliðs í Skógarhlíð á mánudag.
Stúlkan hafði fest fingur í öryggissylgju og átti að
saga sylgjuna í sundur á verkstæðinu. Það tókst hins
vegar að losa fingurinn með lásaolíu.
REYKJAVÍK
Framlengdi reynsluaksturinn
Bíll sem ekki var skilað eftir reynsluakstur frá bílaumboði
á mánudag fannst í fyrrinótt. Húsleit var gerð hjá karlmann-
inum sem reynsluók honum og var lagt hald á fíkniefni og
þýfi tengt öðrum afbrotum. Lögreglan vissi hver maðurinn
var þar sem hann hafði sýnt sölumanni ökuskírteini.
REYKJAVÍK
Klóraði og reif í hár leigubílstjóra
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega
fimmtuga konu til greiðslu skaðabóta uþþ á 100
þúsund krónur auk vaxta fyrir að hafa klórað og
rifið í hár kvenkyns leigubílstjóra í mars á síðasta
ári. Greiði hún ekki 180 þúsund situr hún inni.
Lögreglan:
Varar við
svikurum
Höfuðborgarlögreglunni hafa
borist tilkynningar undanfarið
um að hringt sé í fólk fyrirvara-
laust erlendis frá og því boðin
hagstæð kaup á hlutabréfum í
erlendum fyrirtækjum. Lögregl-
an varar fólk við að taka þátt í
öllum slíkum viðskiptum enda
hafa komið upp tilvik þar sem
tapast hafa milljónir króna.
Tilboð þessi geta verið mjög
sannfærandi með tilheyrandi
tilvísunum á heimasíður við-
komandi fyrirtækja sem mörg
hver eru starfandi. Kaupandi fær
yfirleitt skriflega staðfestingu fyr-
ir kaupunum á hlutabréfunum
sem síðar reynist ekki pappírsins
virði. Afar erfitt getur reynst að
endurheimta nokkuð af þeim
peningum sem menn láta af
hendi í þessum viðskiptum.
Kona dæmd:
Sveik út vörur
64 sinnum
Rúmlega fertug kona hefur
verið dæmd í Héraðsdómi
Reykjavíkur í fimm mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnað og fjársvik. Einnig
var hún dæmd til að greiða
skaðabætur upp á rúmar 700
þúsund krónur auk vaxta og sak-
arkostnað upp á 48.900 krónur.
Konan framdi brotin á tíma-
bihnu 12. maí til 9. júní 2006 en
um mörg brot er að ræða með
heimildarlausum skuldfærslum
á greiðslukortareikning annars
manns með greiðslukorti sem
hún hafði komist yfir. Hún sveik
út vörur og þjónustu í sextíu
og fjögur skipti fyrir samtals
rúmlega eina miiljón króna.
Hækkað lánshæfismat íslenskra banka:
Hörð gagnrýni frá
erlendum bönkum
Hafður að fífli ■ Ekki án áhættu I Skiljanleg viðbrögð
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Erlendir bankar, þar á meðal Royal
Bank of Scotland Group Plc, Dresd-
ner Kleinwort og Société Générale
SA, gagnrýna harðlega nýja aðfer-
ðafræðilánshæfismatsfyrirtækisins
Moody’s en samkvæmt henni fá þrír
stærstu íslensku bankarnir hærri
einkunn en hollenski bankinn ABN
Amro Bank NV.
Hækkun lánshæfismatsins byg-
gist á nýrri aðferðafræði Moody’s
sem tekur tillit til mögulegs
utanaðkomandi stuðnings við
banka, til dæmis stuðnings frá
móðurfélögum, tengdum félögum
og stjórnvöldum. Hækkunin er
mest hjá íslensku bönkunum.
Kom töluvert á óvart
„Markaðurinn verður hafður að
fífli,“ segir Tom Jenkins, sérfræðin-
gur við greiningardeild Royal Bank
of Scotland í London, f viðtali sam-
kvæmt fréttavefnum bloomberg.
com. Haft er eftir sérfræðingnum
að með því að gefa bönkunum al-
mennt hæstu mögulegu einkunn sé
verið að gefa í skyn að áhættulaust
sé að fjárfesta í bréfum þeirra og
að það sé til dæmis áhættu-
laust að kaupa skuldab-
réf Kaupþings. Svo
sé hins vegar
ekki.
—
mm
„Svona víðtæk breyting á lánshæ-
fiseinkunn svona margra banka
hlýtur eðilega að kalla fram sterk
viðbrögð markaðsaðila,“ segir Davíð
Rúdolfsson, sérfræðingur í greinin-
gardeild Kaupþings. „Eg held að það
hafi í sjálfu sér komið aðilum hér
heima töluvert á óvart hversu mikil
hækkunin á lánshæfismati íslensku
bankanna varð. Ég skil alveg þessar
gagnrýnisraddir,“ bætir Davíð við.
Hann tekur það fram að væntan-
lega muni þetta leiða að einhverju
leyti til þess að horfa þurfi á allar
lánshæfiseinkunnir í samhengi,
meðal annars einkunn bankanna
fyrir fjárhagslegan styrkleika.
Davíð getur þess jafnframt að ný
aðferðafræði Moody’s komi misvel
við bankana. „Þeir sem voru með
hæstu einkunnina fyrir hækkuðu
náttúrlega minna.“
Matinu algerlega snúið við
Björn R. Guðmundsson, sér-
fræðingur hjá greiningardeild
Landsbankans, kveðst hafa heyrt
tóninn hjá stóru erlendu bönkunum
á símafundi hjá Moody’s í fyrradag.
„Menn nota kannski sterk orð en
það er ekki við öðru að búast en
að þeir séu hissa því að þetta er
svo róttæk breyting. Matinu
á íslensku bönkunum var
algjörlega snúið við.
Þeir voru fluttir upp um fjóra til
fimm flokka og eru nú í flokki með
bönkum sem taldir eru þeir ster-
kustu í heimi. Reyndar ekki hvað
varðar fjárhagslegan styrkleika,
heldur líkurnar á því að þeir verði
ekki gjaldþrota. En það er kannski of
snemmt að koma með stóra dóminn
því að öll umbreytingin er ekki um
garð gengin. Það er líka í farvatninu
að breyta aðferðafræði við þetta sem
þeir kalla fjárhagslegan styrkleika.“
Björn bendir á að hafa verði í huga
að engin fordæmi séu fyrir því að
íslenskir bankar hafi ekki staðið við
skuldbindingar sínar og það sé stór
þáttur í breytingunum. „Moody’s
er að segja að líkurnar á gjaldþroti
séu almennt ofmetnar í þessum
bankaheimi. Hvort það er rétt mat
og raunhæft í tilfelli íslensku bank-
anna er ekki hægt að segja til um af
neinu viti enn þá.“
Jónas G. Friðþjófsson, sérfræðin-
gur hjá greiningardeild Glit-
nis, kveðst skilja viðbrögð
erlendu bankanna. „Með
þessari nýju aðferðafræði
verður erfiðara að sjá mun
milli banka. Lánshæfis-
matið er farið að endurspegla
frekar bakhjarlinn en bank-
ann sjálfan. En að mínu mati
gleyma þeir því að einkunnin
fyrir fjárhagslegan styrkleika,
Ekki við öðru að
búast
Björn R. Guðmundsson,
sérfræðingur hjá
Landsbanka
Endurspegiar
bakjarlinn
Jóhann G. Friðþjófsson,
sérfræðingur hjá Glitni
sem sýnir mat á bankanum án
utanaðkomandi stuðnings, er enn
við lýði.“
Það er skoðun Jónasar að það muni
sjást á næstu dögum eða vikum
hvernig málin þróast. „Markaðsaði-
lar munu gefa sína einkunn og
það endurspeglast í þeim
kjörum sem íslensku
bönkunum munu
bjóðast."
l.t' f' . -n ru Bí h-. jh -
i <
— m mm Is \ jjjg
.. wí .' | m 1 ; ý
Vatnsrúm
Vatnsrúmin eru komin aftur flottari og betri, þetta er það besta á
markaðinum í dag þú átt það skilið að láta þér líða vel í rúminu.
Vaknar út hvild/ur og tekur brosandi á við daginn .
15 ára ábyrgð það gerist ekki betra
¥iir % I áreo i?©p]g[k] á fcÉoixi
Vatnsrúm ehf.
www.4you.is
Kársnesbraut 114 • sími 564 2030-690 2020
Umferðareftirlit höfuðborgarlögreglunnar:
Úr varð þriggja bíla árekstur
Þriggja bíla árekstur varð þar sem
lögreglan var við umferðareftirlit.
Lögreglumaður hafði gengu þar út
á götu og bent ökumanni að aka úti
vegarkant er áreksturinn varð. „Það
geta alltaf orðið svona óhöpp í um-
ferðinni og þetta kemur oft fyrir hjá
okkur. Erfitt er að eiga við svona eft-
irlit þar sem lögreglan þarf að stiga
inn í umferð. Menn eru meðvitaðir
um hættuna og stundum treystum
við okkur ekki til að stíga inn,“ segir
Árni Friðleifsson, yfirmaður um-
ferðardeildar höfuðborgarlögregl-
unnar. Lögreglan var með umferð-
arátak í samstarfi við Vegagerðina
og einn af eftirlitsstöðunum var á
Reykjanesbrautinni í grennd við
Smáralindina.
Einn ökumaður áttaði sig ekki
tímanlega á bendingum lögreglu-
manns og þurfti að snarhemla með
þeim afleiðingum að úr varð þriggja
bíla árekstur. Árni segir of mikinn
hraða ekki hafa verið orsakavald-
inn. „Hraðinn hérna er alltof mikill
en honum er ekki hægt að kenna
um í þessu tilviki. Þetta var bara
misskilningur ökumannsins og
bílar fyrir aftan skullu saman. Þrátt
fyrir hættuna þá er þetta okkar hlut-
verk og hefur mikilvægan tilgang,“
segir Árni.
Arekstur við eftirlit Þegarlög-
reglumaður steig út á götu til að
beina ökumanni I eftirlit varð úr
þriggja bíla árekstur nærri Smára-
lindinni. siaöwiypói