blaðið - 28.02.2007, Page 19

blaðið - 28.02.2007, Page 19
blaðiö menning MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 27 menning@bladid.net Hreinn andi í óhreinum líkama ithöfundurinn Guðrún Eva Mínervudóttir flyt- ur fyrirlestur á vegum Rannsóknaseturs í fötl- unarfræðum föstudag- inn 2. mars. Fyrirlesturinn ber yf- irskriftina Hreinn andi í óhreinum líkama í manngerðum heimi - Ljós Slím Plast en í honum fjallar hún um hvernig líkamsvitundin í nú- tímanum er klofin í ósættanlegar andstæður: Líkamsdýrkun annars vegar og ógeð á líkamanum hins vegar. Líkamlegar fyrirmyndir eru stafrænar eða úr plasti, en raunveru- legir líkamar með blóði og slími sem eldast og slasast eru ekki jafn aðlaðandi. Við reynum að fjarlægja okkur frá hinum líkamlega veru- leika, en um leið finnum við okkur knúin til að skera og pota í hann, grafa í slíminu eftir uppsprettu ljóssins (vitundarinnar) sem við þurfum endalausa staðfestingu á að eigi sér tilvist - þótt vitundin sé einmitt kannski það eina sem er fullkomlega raunverulegt. Guðrún Eva mun nota skáldsögu sína Yosoy sem einskonar poka með dæmisög- um. Fyrirlesturinn er hluti fyrir- lestraraðar sem haldin verður í febrúar, mars og maí 2007 á veg- um Rannsóknaseturs í fötlunar- fræðum og er hluti af menningar- hátíð fatlaðra; List án landamæra. í fyrirlestraröðinni verður meðal annars fjallað um staðalmynd- ir og ímyndir af fötluðu fólki í dægurmenningu, hvernig fötlun hefur verið notuð sem uppistaða ritverka og áhrif samtímans á líkamann. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12 í Norræna húsinu og er öllum opinn. Gítartónar á Múlanum Gítartríó Jóns Páls Bjarnasonar heldurtónleika á Múlanum sem hefur aðsetur sitt á Domo bar í Þingholtsstræti 5 næstkomandi fimmtudagskvöld. Tríóið er sam- starfsverkefni þeirra Jóns Páls, Ásgeirs Ásgeirssonar og Eðvarðs Lárussonar og hefur tríóið verið starfandi í eitt ár. Tríóið hélt vel heppnaða tónleika á Múlanum í fyrravor en nú á að spila eingöngu frumsamið efni eftir þá félaga. Goðsögnin Jón Páll Bjarnason leggur línurnar og brúar kynslóða- bilið ásamt þeim Ásgeiri og Eð- varð. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og er miðaverð 1000 krónur. Guðrún Eva Fjallar um h'kamsvitundina í nútímanum Volvo. For life. Öll erum inð einstök, hvert og eitt okkar. Enginn á sinn líkan. Fyrir okkur ert þú miðja alheimsins. Þegar þú ert annars vegar er takmark okkar bara eitt: að uppfylla óskir þínar og þarfir á þann hátt að þú lítir á Brimborg sem öruggan stað til að vera á Við erum meðþéraUaleiðl Kynntu þér Séipantanaþjónustu Volvo hjá Brimborg. Gerðu hagstaaðari kaup og sérhannaðu þinn eigin Voh/o. Öruggur staður til ad vera é Brimborg Reykjavík: Bíldshöfoa 6, sími 515 7000 Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 www.volvo.is Borges og ísland Málstofa um argentínska rithöf- undinn Jorge Luis Borges verður haldið í Hátíðarsal Háskóla Is- lands fimmtudaginn 1. mars. Mál- stofan er haldin í tilefni af opnun Cervantes-seturs sem hefur það að markmiði að hlúa að spænsku- kennslu hér á landi og stýrir dr. Margrét Jónsdóttir, dósent og vararæðismaður Spánar á íslandi, dagskránni. Ekkja Borgesar, Mar- ía Kodama, fjallar um reynslu eig- inmanns síns af norrænum bók- menntum og íslandi en Borges, sem er einn þekktasti rithöfundur Rómönsku-Ameríku, heimsótti Is- land nokkrum sinnum á áttunda áratugnum. I kjölfar fyrirlesturs frú Kodama mun Sigrún Á. Ei- ríksdóttir fjalla um reynslu sína af þýðingum á verkum skáldsins og Matthías Johannessen segja frá kynnum sínum af skáldinu. Fyrir þá sem hafa áhuga á því að kynna sér verk skáldsins má benda á að smásagnasöfnin Suðrið sem Guðbergur Bergsson þýddi og Blekspegillinn sem Sigfús Bjart- marsson þýddi hafa komið út á Is- landi. Þýðingum á Ijóðum Borges- ar hefur verið safnað sérstaklega fyrir þetta tækifæri. Málþingið hefst klukkan 16:30 og eru allir velkomnir. Jorge Luis Borges Hafði mikinn áhuga á íslenskri menningu. Kynferði, menning og áfengisneysla Hildigunnur Ólafsdóttir afbrota- fræðingurflyturfyrirlesturinnKyn- ferði, menning og áfengisneysla á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum fimmtudaginn 1. mars. I fyrirlestrinum verður greint frá fjölþjóðakönn- un í 14 löndum Evrópu sem gerð var til þess að auka skilning áþví, hvern- ig kyn og menning hafa áhrif á áfengisneyslu og misnotkun. Niðurstöðurnar sýna greinilegt kynjabil áfengisneyslu í öllum löndunum, og að því jafnari sem staða karla og kvenna er í sam- félaginu, þeirn mun minni munur er á áfengisneysluvenjum kynj- anna. I rannsókninni er sýnt fram á að skiptingin í bjór-, vín- og brennivínslönd hefur verið byggð á áfeng- isneysluvenjum karla og að svæðisbundinn munur á áfengisneyslu- munstri á milli Norður-, Mið- og Suður-Evrópu er ekki eins skýr og bú- ist var við. Hildigunnur Ólafsdóttir er sjálfstætt starfandi fræðimaður í ReykjavíkurAkadem- íunni. Hún er dr. philos. í afbrota- fræði frá Háskólanum í Ósló.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.