blaðið - 28.02.2007, Side 21

blaðið - 28.02.2007, Side 21
blaðiö Samkeppni um rafmagn Landsmenn geta samið um rafmagnskaup af þeim sem þeir kjósa hvort heldur er til atvinnurekstrar, heimilisnotkunar eða annarra hluta. Samkeppnin nær þó eingöngu tii framleiðslu og sölu rafmagns en ekki til flutnings þess og dreifingar. MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007 Sparnaður fylgir hreyfilhitara Með því að nota hreyfilhitara geta bíleigendur dregið úr eldsneyti- seyðslu og þar með sparað sér töluverðar fjárhæðir. Um leið draga þeir úr vélarsliti og mengun og geta sest upp í hlýjan bíl á köldum vetrarmorgnum þó að hann hafi staðið utandyra. Greitt oft Er réttlætanlegt að neyt- endur greiði oft fyrir sama afnotaréttinn að tónlist eða mynd? Þessari spurningu veltir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, upp á heimasíðu sinni tn.is. Þar fjallar hann um það vanda- mál þegar hljóm- og mynd- diskar eyðileggjast. Bent er á að neytandinn kaupi ekki aðeins disk- inn sem slíkan heldur sé hann eins sama afnotaréttinn konar fylgihlutur til þess að njóta megi myndarinn- ar eða tónlistarinnar. „Diskurinn er í raun um- búðir og ekki réttmætir hagsmunir fyrirtækja að geta selt nýjan og nýjan disk fyrir þá sem skemm- ast enda væri þá búið að margborga fyrir afnotaréttinn að sama innihaldinu," segir Gísli á síðu sinni. Jafnframt leggur talsmaðurinn til lausn á vandamálinu: „Imynda mætti sér að almennir neytendaskilmálar við kaup á disk- um með höfundarréttarvörðu efni á borð við tónlist og kvikmyndir - fælu í sér rétt til þess að kaupa nýj- an disk gegn skilum á þeim eldri. Rökin eru þau að langstærsti hluti verðsins fyrir slíkan disk er fyrir afnotarétt að hugverkinu og öðrum höfundarrétti á innihaldinu," segir Gísli og bendir á að mjög lítill hluti verðsins sé gjald fyr- ir hinar áþreifan- legu um- búðir, það er diskinn, eða afgreiðslu hans. Bendir hann jafnframt á að ef til vill mætti semja um þetta með heild- arsamningum við samtök höfundar- réttarhafa tónlistar og myndefnis. CE-merkingar fjarskiptatækja Óheimilt er að setja á markað önnur fjarskiptatæki en þau sem bera CE-merkingu með gildistöku nýrrar reglugerðar um þráðlausan búnað og notenda- búnað til fjarskipta. Innflutningurtil eigin nota fellur þar undir um leið og fjarskipta- tæki kemur inn á evrópska efnahags- svæðið. Áður en fólk fjárfestir í fjarskiptatækjum sem nota á hér á landi þarf því að huga að nokkrum atriðum: Öll fjarskiptatæki á íslandi verða að vera CE-merkt og eru tæki sem ekki eru þannig merkt ólögleg hérá landi. CE-merkið skal vera greinilegt á umbúðum og á tækjunum. Að auki skal tækið vera merkt með framleiðslunúmeri. Þetta á við hvort sem tækin eru keypt á íslandi, erlendis eða koma til landsins sem gjöf til dæmis frá ættingjum. Þetta á einnig við ef tækin eru keypt á Netinu. Reglugerðin tók gildi frá og með birtingu hennar 12. febrúar síðastliðinn. Gjaldtaka af nagladekkja Heimilt verður að taka gjald fyrir notkun nagladekkja í frumvarpi til vegalaga ef farið verður að tillögu Leiðar ehf. - félags um framþróun í samgöngumálum á landi. Tillaga Leiðar ehf. kemur fram í bréfi til samgöngunefndar Alþingis en frumvarpið er nú til meðferðar hjá nefndinni. Ekki þykir koma til greina að banna notkun nagladekkja en miðað yrði við að sveitarfé- lögum yrði heimilað að ákveða hverju á sínu svæði hvort gjaldtöku yrði komið á. Útfærsla hennar yrði í samræmi við reglur sem samgönguráðherra setti. I frétt Leiðar ehf. um málið kemur fram að líklega sé vart raunhæft að gera ráð fyrir gjald- töku sem þessari nema á höfuð- borgarsvæðinu og þar í kring. Þessi leið hefur verið farin í Ósló og nokkrum öðrum borgum í Noregi og hefur stuðlað að því að draga úr notkun nagladekkja þar. _ ■s c I 3 $ SUZUKI ...er lífsstiíl! ■ilbuinn fyrir útivistarfólkið! VerðlJ99 þús. Afborgun á mánuði* kr. 19.676 SuiHki Swift 4x4 r

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.