blaðið


blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 1

blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 1
Skapandi umhverfi Hulda Helgadóttir hönnuður _ býr í gömlu skipstjórahúsi ||lj sem byggt var á þriðja tug Jljll síðustu aldar. Hver hlutur á heimilinu á sína sögu og /~vil þeir koma víða að. iL' ' x I tíu metra hæð Aðalsteinn Guðmundsson vinnur í 10 metra hæð en . hann stjórnar krana og J kann því vel. Hann finnur I ekki fyrir lofthræðslu, en ] óþægindum í miklum vindi. ] Gerðu plötu í Kína a Kvartett Sigurðar Flosasonar og Jóels Pálssonar fagnar útkomu geisladisksins „Shanghai, China“ sem kom út í Kína og er gefinn út í minnst 10.000 eintökum. SÉRBLAл ORÐLAUS» 93. tölublað 3. árgangur þriðjudagur 22. maí 2007 Karlmaður dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot: Braut ítrekað gegn þroskaheftri dóttur ■ Dæmdur fyrir 16 árum en iét ekki segjast ■ Vægur dómur segja lögmenn Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Roskinn karlmaður var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa tvívegis haft samræði við alvarlega þroskahefta dóttur sína. Héraðs- dómur Norðurlands eystra dæmdi manninn einnig til að greiða dóttur sinni 800 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn var árið 1991 dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir kyn- ferðisbrot gegn sömu stúlku. Brotin tvö sem maðurinn er nú sakfelldur fyrir áttu sér stað á heimili stúlkunnar í janúar síð- astliðnum. Upp komst um brot mannsins þegar bróðir stúlkunnar skynjaði að eitthvað furðulegt var á seyði. Stúlkan tjáði þá bróður sínum hvað faðir hennar hafði gert henni. I kjölfarið kallaði hann á þroskaþjálfa sem fór ásamt stúlkunni á neyðarmóttöku Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri þar sem tekin voru sýni úr leggöngum hennar. Tæknideild lögreglustjórans á höfðuborg- arsvæðinu taldi sýnin ásamt klúti sem stúlkan hafði sett í nærbuxur sínar til að ekki læki sæði í þær, nothæf til DNA-greiningar ef á þyrfti að halda í málinu. Ákærði var kallaður til skýrslu- töku daginn eftir þar sem hann neitaði allri sök og kvaðst reiðubúinn til þess að gefa lífsýni til þess að sanna sakleysi sitt. Degi síðar snerist föð- urnum hugur og játaði hann þá brot sín. Árið 1991 var maðurinn dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir að hafa ítrekað, að minnsta kosti 13 sinnum, haft samræði við sömu dóttur sína. Þar sem 16 ár eru liðin frá því að fyrri dómurinn gegn manninum var kveðinn upp hefur hann ekki ít- rekunaráhrif. I dómnum kemur þó fram að litið hafi verið til hans við ákvörðun refsingar. Það er engu að síður álit lögmanna sem Blaðið leitaði til, að dómurinn sé vægur miðað við alvarleika brots- ins. Þeir sem til aðstæðna þekkja segja málið vekja upp ýmsar spurningar. Meðal annars um hversu greiðan aðgang maðurinn hafði að dóttur sinni þrátt fyrir fyrri brot. Gunnar Sólnes hæstaréttarlögmaður, skipaður verjandi mannsins, segir að enn sé allt óákveðið með áfrýjun og að umbjóðandi sinn muni nýta sér lögboðinn frest til þess að ákveða það. Ekki náðist í Sigríði Elsu Kjartansdóttur saksóknara vegna málsins og réttargæslumaður stúlkunnar vildi ekki tjá sig um málið. Klámvæðing elur af sér fleiri brot Alls leituðu 266 einstaklingar hjálpar Stígamóta í fyrra. Níu konur leituðu að- stoðarvegna hópnauðganaog15konur vegna meintrar lyfjanauðgunar. Sífellt fleiri leita aðstoðar vegna mála sem tengjast klámi. FRÉTTIR »10 Ný ríkisstjórn fyrir vikulok Hlé var gert á fundum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks síðdegis í gær en mál- efnasamningur er á lokastigi. Tekist er á um stóra málaflokka en Geir Haarde telur góðar likur á að málið klárist jafn- vel fyrir helgi. Geir staöfestir að farið sé að ræða skiptingu ráðuneyta. FRÉTTIR » 2 Heilsuhraust heima í heila öld Það eru allar líkur á því að á Isafirði sé heimsmet slegið á hverjum degi. Herdís Albertsdóttir hefur búið í sama húsinu í 99 ár. Hún er fædd í húsinu við Sundastræti 33 á Isafirði í nóvember árið 1908 og hefur búið þar síðan. Á dögunum bárust fréttir af manni í Englandi sem búið hefur í sama húsinu í 96 ár og var það jafnvel talið heimsmet en svo er greinilega ekki. Herdís hefur alla tíð verið heilsuhraust. Því til sönnunar hefur hún aðeins einu sinni þurft aö leggjast inn á sjúkrahús en það var síðastliðinn vetur. Þegar hún var útskrifuð þaðan, 98 ára að aldri, var haft á orði að hún væri líklega elsti sjúklingurinn sem hefur verið útskrifaður af sjúkra- húsinu á ísafirði og þótt víðar væri leitað. Það skildi þó aldrei vera að Herdís eigi tvö heimsmet. Þriðjudagstilboi Úr kjötborði Kjötfars 421 kr. kílóið Opið alla daga frá kl. 10.-20 S?T ? Bæjariind 1 - Sími 544 4510 Trúðslæti í dýragarðinum Oft er sagt að skemmtanabran- sinn sé með eindæmum erfiður því áhorfendur eru oft æði kröfuharðir. En þýski trúðurinn Christina Peter á ærið starf fyrir höndum því hún hefur verið ráðin til starfa hjá dýragarði, þar sem hún vinnur við að skemmta öpunum í garðinum. Forsvarsmenn dýragarðsins brugðu á þetta ráð þegar dýralæknar bentu þeim á að aparnir eru árás- argjarnir og oftar veikir þegar þeim leiðist. Christina segist nota ýmsar leiðir til að hafa ofan af fyrir öþunum. Hún fer í leiki og býr til gátur fyrir þá, þar sem hún styðst við hluti eins og fót- bolta, plastpoka og viðarkubba. Hún er mjög ánægð með starfið því með þessu segist hún vera að stuðla að vellíðan dýranna. Kaffihús Krónur Mokka 300 Prikið 330 Súfistinn 350 Amokka 350 Lóuhreiður 350 Mílanó 410 Verö á völdum kaffihúsum Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % Wm USD 63,13 -0,45 ▼ GBP 124,31 -0,65 ▼ 5S DKK 11,40 -0,75 ▼ • JPY 0,52 -0,70 ▼ ■H EUR 84,98 -0,72 ▼ GENGISVÍSITALA 115,08 -0,65 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.055,63 0,8 A VEÐRID Í DAG VEÐUR » 2 QMarcð Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16 Reykjavík simi: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504 Egilsstaðir: sími: 471 2954 Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.