blaðið - 22.05.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 22.05.2007, Blaðsíða 26
blaðið Hönnun til sýnis Orðlaus mælir eindregið með því að kíkja á hönnunarsýninguna Magma/Kvika sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Þar kennir ýmissa grasa og allt það nýj- asta í íslenskri hönnun er til sýnis á safninu. Staðhættir Kjallaraíbúð á Sólvallagötunni. Hátt er til lofts og vítt til veggja I íbúðinni og stór garður í kringum húsið sem íbúarnir nota mikið þegar veðrið er gott. »Vegvísir að heimili mínu Hvenær er hentugast að ferðast Á vorin þegar ferðamannastraumurinn er ekki byrjaður og allt er ferskt. Matur og menning Þegar eldað er þá er það gert stórmannlega og af mikilli ástríðu. Oftast verður fyrir valinu góður fiskur eða gott lamba kjöt og þá er nostrað í eldamennskunni. A tónleikaferðalagi ,Um helgina spilaði ég á nokkrum tónleikum," segir Sólrún Sumar- liðadóttir í hljómsveitinni Amiinu. ,Á föstudaginn spiluðum við í Brighton og á laugardaginn spiluðum við í Brussel. Pað er bara búið að vera frábært hjá okkur, rosalega gaman og góð stemning. Á sunnudaginn vorum við í Hanover og fengum smá frí, fórum út að borða og svoleiðis en svo erum við á leiðinni til Berl- ínar. Annars höfum við ekkert náð að slappa af neitt almenni- lega, allavega ekki um helgina. Það er nóg að gera hjá okkur en við komum heim á miðviku- daginn. Hérna heima tekur svo við plötuútgáfa, en platan okkar kemur út þann 11. júní og við ætlum að haldatónleika þann 14. júní hérna heirna." Dýralíf Engin dýr búa I íbúðinni nema þá kannski heimilisfólkið sjálft. Hulda Helgadóttir er hönnuður og hún býr á Sólvallagötunni í gömlu skipstjórahúsi sem byggt var á þriðja áratug síðustu aldar. Hulda lærði conceptual hönnun í Hollandi og sýnir tvö verk sín á hönnunarsýningunni Magma/Kvika sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. [ verkum sínum leggur Hulda áherslu á hugmyndina og hvernig hún þróast í vinnuferlinu og sem dæmi um verk hennar má nefna borð sem stendur á vélmenna-hestafótum og skartgripir sem tákna eðli kattarins. Heimili Huldu ber þess merki að þar býr skapandi manneskja og hlutina inn á heimilið sitt velur Hulda af kostgæfni. Hiutina finnur hún víða, meðal annars í ieikfangaverslunum, á mörkuðum eða í foreldrahúsum og hver hlutur á sína sögu. Þessa dagana er útvarpið sem Hulda keypti í Tiger í miklu uppáhaldi en það er útvarp í formi eyðieyju þar sem eini ábúandinn er lítill hundur. Saknar Baktusar ,Þetta var reyndar svolítið skrýtin helgi, af því að þetta var fyrsta helgin þar sem ekki var Karíus og Baktus-sýning í langan tíma,“ segir Guðjón Davíð Karlsson leikari. „Ég var mjög annars hugar alla helgina, mér fannst eins og ég væri að skrópa af því að sýn- ingin er búin að vera svo fastur partur af lífinu í vetur. En svo fór ég í afmælisveislu á föstudaginn sem var rosa stuð, fullt af fólki, skemmtilegt frændfólk að hittast og svoleiðis. Á laugardagskvöldið heimsótti ég vini í rólegheitunum og var svo bara að reyna að safna orku fyrir næstu törn sem byrjar á morgun, en ég er að fara að æfa Óvita eftir Guðrúnu Helgadóttur fyrir norðan. Það verður fyrsta frumsýning haustsins, 15 börn að leika og mikið tilstand. En þetta var góð helgi, þó ég hafi nú saknað Baktusar en hann kemur einhvern tímann aftur, en ég er allavega búinn að vera duglegur að bursta tennurnar. Vert að sjá Sófinn í stofunni er mjög fallegur og vert að skoða hann sökum þess hver- su lítill hann er. Sófann fann húsráðandi í húsgagnaverslun sem selur gömul húsgögn en það sem heiliaði við hann var fallega bleika áklæðið með kögrinu og sú staðreynd að hann var nógu lítill til að komast auðveldlega niður þröngar kjallaratröppurnar. Samfélag og menning (íbúðinni búa þrjár manneskjur og menninguna sem ríkir á heimilinu má flokka sem ákveðna jaðar- menningu þar sem mikið er spáð í tísku og nýstárlega hönnun. Hvað þarf að hafa með Exótískir ávextir eru alltaf vinsælir og gestum sem koma með allskon ar girnilega ávexti með sér er vel tekið. Siðir og venjur Eldhússpjall er mjög vin- sælt á heimilinu og á sér stað nánast dag- lega enda er eldhúsið hjarta íbúðarinnar. Hættur Það er mikið af smáhlutum í íbúðinni og þeir sem koma í heimsókn eiga það til að festast í að skoða þá þannig að best er að vera ekki mjög tímabundinn þegar litið er við. Heilsa íbúðin er orðin svolítið hrukkótt enda hefur hún verið máluð aftur og aftur, hrukkurnar á veggjum eru vegna veggfóðurs sem er undir mörgum lögum af máln- ingu. Þrátt fyrir hrukkurnar er íbúðin falleg og með mikinn sjarma. Hvort sem þig vantar vasavél eöa vél í fullri stærð, Þá eigum viö réttu verðlaunavélina handa þér! Sjá nánar á www.ljosmyndavorur.is ; CjÁ rÁ-,rÁ Æ&m'iwkJ wm' ■¥ * *• * IUHCWH9I ** PHOIO * rtflfWS .. -r ttVMDS 7IPA fCHVCAI IMAEÍ PRItt ASSBCIATIQN 2007 fUJIIILM FllllPll lití Meiriháttar vélar, frábært verð. INEPIX KjOL> S3shoke Reducf/on FUJ.FILIVI . vii:i'im|TiTTT^ húyhí Skipholti 31, sími 568-0450 Ij'osmyndavorur.is MYwmm

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.