blaðið - 22.05.2007, Blaðsíða 11

blaðið - 22.05.2007, Blaðsíða 11
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007 11 Verðbréfasala 1 Bretlandi: Landsbankinn næststærstur Landsbankinn hefur gert rúm- lega 7,5 milljarða króna tilboð í allt hlutafé breska verðbréfaíyrir- tækisins og íjárfestingarbankans Bridgewell. 10 prósent kaupverðs verða greidd með reiðufé, en 90 prósent með nýju hlutafé. Starf- semi bankanna verður sameinuð undir nafninu Landsbanki Secu- rities UK og verður bankinn næst- umfangsmesti miðlari verðbréfa á breskum hlutabréfamarkaði. Sól ehf. stækkar: Kaupir Emmessís Undirritað hefur verið samkomulag milli Auðhumlu svf., móðurfélags Mjólkursam- sölunnar, og Sólar ehf. um kaup þess síðarnefnda á Emmessís hf. Samkomulagið er undirritað með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og er kaupverðið trúnaðarmál. Emmessis varð til sem dótturfé- lag Mjólkursamsölunnar árið 1960 og framleiðir nú um 120 vörur, aðallega ís og önnur frosin matvæli. Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sólar, fagnar kaupunum. „Vörurnar eru fram- leiddar úr hreinum, íslenskum landbúnaðarafurðum sem eiga góða samleið með þeirri vöru sem Sól framleiðir í dag,“ segir Snorri, en hingað til hefur Sól ehf. einungis framleitt ávaxtasafa. Reykjanesbraut: Hálka veldur slysum Þrjú umferðarslys urðu á Reyja- nesbraut í fyrrinótt sem rekja má til hálku. Um hálfþrjúleytið rákust saman rúta og fólksbíll á Reykjanesbraut er billinn reyndi að taka fram úr rútunni. Báðar bifreiðarnar lentu utan vegar og slasaðist þrennt, en ekki alvarlega að því er talið er. Níu mínútum seinna var ekið út af Grindavíkurvegi og ökumað- urinn hlaut áverka á höfði. Var hann fluttur á spítala en er ekki talinn alvarlega slasaður. Klukk- an rúmlega fimm valt svo bíll á Reykjanesbraut og hlaut ökumað- urinn minniháttar ákverka. Allir bílarnir skemmdust töluvert. Hótel Akureyri rifiö: Loka fyrir glugga stéttarfélaga Rífa á Hótel Akureyri og byggja stærra húsnæði á lóðinni sem mun leggjast upp að vesturhlið Skipagötu 14 og loka þannig fyrir glugga sem eru á hliðinni. Ekki eru allir sáttir við þessa ákvörðun skipulagsráðs bæjarins. „Framkvæmdaaðilar og bæjaryfir- völd hafa ekki staðið sig í að kynna þetta fyrir okkur og við teljum hug- myndina mjög hæpna. Þau hafa verið að vitna í einhver gömul leyfi sem við könnumst ekki við,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju sem er til húsa að Skipagötu 14 eins og ýmis önnur stéttarfélög. Jón Ingi Cæsarsson, formaður skipulagsnefndar Akureyrarbæjar, segir deiliskipulagið gamalt og að eigendur Skipagötu 14 hafi átt að vita af því. „Menn eru kannski búnir að gleyma því, en það var alltaf gert ráð fyrir að byggt yrði við þessa hlið. Málið er þó enn í auglýs- ingaferli og ekki búið að taka endan- legar ákvarðanir um húsnæðið.“ Hótel Akureyri Rífa á húsið enda gamalt og illa farið. Stærra hús verður byggt sem leggst upp að vesturhlið Skipagötu 14. HÁSKÓLINN Á AKUREYRl B.Sc. í VIÐSKIPTAFRÆÐI í vióskiptafræói við Háskólann á Akureyri er lögð áhersla á aó mennta nemendur til stjórnunarstarfa, m.a. meó þjálfun í faglegum vinnubrögðum viö stefnumótun, ákvaröanatöku og stjórnun. Samhliða eru nemendur þjálfaðir í fræðilegum vinnubrögðum sem nýtast í framhaldsnámi. í grunninn fá allir nemendur sambærilega menntun á sviði viðskiptafræða, en geta að auki valið að leggja áherslu á eitt af eftirtöldum sviðum: FERÐAÞJÓNUSTA MARKAÐSFRÆÐI FJÁRMÁL STJÓRNUN í boði er bæði staðarnám og fjarnám Námskrár, kynningarefni og umsóknareyðublöð eru á www.unak.is Spennandi valkostur • Persónulegt umhverfi - góð tengsl milli nemenda og kennara. • Sveigjanleiki - nemendur geta valið um að stunda staðnám eða fjarnám • Ahugaverð blanda af tengslum við atvinnulíf og fræðilegri umfjöllun „Ég er mjög ánægöur með viðskiptafræðinámið við Háskófann á Akureyri. Ég tel þetta vera gott nám þar sem maður fær góðan grunn fyrir framtíðina, hvað svo sem hún ber í skauti sér. Mér finnst námsálagið passlegt og fögin við hæfi og get mælt með þessu námi." Einar Hafliðason 2. ár í stjórnun UMSÓKNARFRESTUR ERTIL5. JÚNÍ2007 HÁSKÓLINN Á AKUREYRI • v/Norðurslóð • 600 Akureyri • Sími: 460 8000 • www.unak.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.