blaðið - 22.05.2007, Side 7
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007 7
Karp um erlent vinnuaíl:
Verktaki
sýknaöur
Héraðsdómur Suðurlands
hefur sýknað mann af ákæru um
að hafa haft erlenda verkamenn
í vinnu hjá sér án þess að hafa til
þess tilskilin leyfi. Þá var kæru
þar sem sama manni var gefið að
sök að hafa ráðist á lögregluþjón
með því að kasta í hann síma vís-
að frá. Meint brot mannsins áttu
að hafa átt sér stað á fyrri hluta
ársins 2005. Áæruvaldið, íslenska
ríkið, var auk þess dæmt til þess
að greiða málsvarnarlaun skipaðs
verjanda auk ferðakostnaðar.
Slys i Kópavogslaug:
Pilturinn enn
Þungt haldinn
Pilturinn sem fannst með-
vitundarlaus á botni Kópa-
vogslaugar í síðasta mánuði
er laus úr öndunarvél og
kominn af gjörgæslu. Hann
er þó enn þungt haldinn og
liggur á Barnaspítala Hringsins.
Drengurinn var i skólasundi
Snælandssóla er slysið átti sér
stað, en hann er þar í 10. bekk.
Gervitungl
við eftirlit
Landhelgisgæslan hefur gert
samning við erlenda aðila um
kerfisbundna töku gervitungla-
mynda af hafsvæðinu umhverfis
landið. Verða myndirnar nýttar
til að skipuleggja hefðbundið
eftirlit með varðskipum og loft-
förum og styðja við það. Land-
helgisgæslan hefur undanfarin
ár gert tilraunir með notkun
ratsjárgervitunglamynda við
skipulagningu eftirlitsins.
Gervitunglamyndirnar
munu einnig nýtast á úthafs-
veiðisvæðum og fyrirhugar
Landhelgisgæslan náið samstarf
við Norðaustur-Atlantshafsfisk-
veiðiráðið í sumar við úrvinnslu
gervitunglamyndanna.
Icebank og Arev:
Stofna nýjan einkafjármagnssjóð
Eignarhaldsfélagið Arev og Ice-
bank hafa stofnað nýjan einkafjár-
magnssjóð, Arev Ni. Sjóðurinn mun
hafa allt að þrjá milljarða króna til
umráða til fjárfestinga í íslenskum
neytendavörufyrirtækjum.
„Arev N1 er eini sjóðurinn með
þessu sniði hér á landi sem fjárfest-
ir í neytendavörufyrirtækjum en
þetta fyrirkomulag er þekkt í öðr-
um geirum atvinnulífsins", segir í
fr éttatilkynningu.
Arev verðbréf mun sjá um ráðgjöf
og eignastýringu en þar býr tals-
verð þekking og reynsla á sviði
greiningar og reksturs smásölu-
fyrirtækja. „Við leggjum sérstaka
áherslu á virka þátttöku, stefnu-
mótun og innleiðingu og störfum
náið með stjómendum þeirra
fyrirtækja sem sjóðurinn fjárfestir
í. Avinningur fyrirtækjanna er því
ekki einungis íjármagn heldur líka
aðgangur að sérfræðiþekkingu
og reynslu,“ segir Elín Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Arev verðbréfa.
Elín segir fjárfestingarmöguleika
vera marga í þessum geira en jafn-
an verður um að ræða fyrirtæki
sem hyggja á breytingar eða sjá
fram á mikinn vöxt og þurfa því
aukið fjármagn.
Sá eini sinnar tegundar. Gunnar
Svavarsson, framkvæmdastjóri fyrii
tækjasviös lcebank, og Etín Jónsdó
ir, framkvæmdastjóri Arev verðbrét
Psfát’
GLÆSILEGl
SUNDFÖTL
verj? ** - ^ /
■^óirróffí ,
'tA&eð &&
"fc
-.....J Vildarklúbbur
Það er ótrúlegt hvað þau eru tilbúin
að ganga langt til að fanga athygli ykkar.
Ekki láta þau ganga lengra
KYNNTU ÞÉR KOSTI
VILDARKLÚBBS ICELANDAIR.
Þú safnar Vildarpunktum (viðskiptum við lcelandair, Flugfélag íslands,
hjá lcelandair hótelunum og öðrum samstarfsaðilum Vildarklúbbs lcelandair.
• Þú notar Vildarpunktana þlna til þess að fara út I heim I áætlunarflugi
lcelandair - börn að 16 ára aldri fljúga á helmingspunktum.
• Þú notar Vildarpunktana til greiðslu fyrir gistingu á yfir
100 hótelum víðs vegar um heim og fyrir bllaleigublla.
• Félagar I Vildarklúbbi lcelandair safna að meðaltali á hverju ári
Vildarpunktum sem samsvara greiðslu fyrir flugfari til Evrópu
með lcelandair.
• Þú getur notað Vildarpunktana þína sem greiðslu að hluta
fyrir flugfar og greitt afganginn með peningum.
WWW.ICELANDAIR.IS
ÍSLENSKA SIA.IS ICE 37612 05/07