blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 13
blaöið
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 2007
13
Mynd/Eslherlr
Hafnarfjarðarbrandari?
í hugum útlendinga hefur ísland
verið talið á mörkum hins byggi-
lega heims eða á hjara veraldar eins
og sumir segja. Það hefur því ekki
verið auðvelt fyrir þá sem vildu auka
fjölbreytni í islensku atvinnulífi, að
markaðsetja Island fyrir erlend stór-
fyrirtæki og þar með skjóta fleiri
stoðum undir atvinnulífið. Það
var því stórt skref stigið þegar sam-
komulag náðist um byggingu álvers
á Islandi. Ýmsir staðir á landinu
komu til greina við staðarval, en þrír
meginþættir réðu endanlegri stað-
setningu í Straumsvík. I fyrsta lagi
að mögulegt væri að gera góða höfn
með miklu dýpi fyrir djúprist skip, í
öðru lagi að nægiíegt landrými væri
í kring og í þriðja lagi að nálægð væri
við fjölmenn byggðarlög.
Skin og skúrir í hafnfirsku atvinnulífi
Sú ákvörðun að álverið var byggt
í Straumsvík var happavinningur
fyrir okkur Hafnfirðinga og vítamín-
sprauta á þeim tíma sem litla vinnu
var að fá. Eru Hafnfirðingar nokkuð
búnir að gleyma því ástandi sem var,
þegar síldin hvarf og heilu skipshafn-
irnar gengu um og voru án atvinnu?
Fjöldi Hafnfirðinga flutti burt og leit-
aði til Danmerkur, Svíþjóðar og jafn-
vel Ástralíu. Á þeim tíma sem álverið í
Straumsvíkhefurstarfaðmeðjöfnum
og öruggum rekstri hafa skipst á skin
og skúrir í hafnfirsku atvinnulífi, þar
sem fyrirtæki hafa komið og farið.
Nægir að nefna nokkur fyrirtæki
sem höfðu hundruð manna í vinnu,
en eru ekki lengur starfandi. Fyrst
má þar nefna Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar sem lagðist af þegar kvótinn
var fluttur til Akureyrar, íshús Hafn-
arfjarðar, fiskvinnslu Sjóla, ýmis
verktakafyrirtæki eins og Hagvirki,
Byggðaverk, SH verktaka, Dröfn, Vél-
smiðju Hafnarfjarðar, Vélsmiðjuna
Klett og margt fleira. Auðvitað geta
sveiflur í þjóðfélaginu haft áhrif á
það hvaða fyritæki ná að starfa og
hver verða að hætta rekstri og svo
eru fyrirtæki sem sífellt eru að skipta
um kennitölur. Ég minnist þess sem
formaður skipulagsnefndar Hafnar-
fjarðar að einn nefndarmaður fann
því allt til foráttu þegar hið ágæta fyr-
irtæki Actavis var að óska eftir stækk-
unarmöguleikum. Ég er viss um að
ef nefndarmenn hefðu hlustað á þá
neikvæðu afstöðu sem þar kom fr am,
þá hefði Actavis hugsað sér til hreyf-
ings. Sem betur fer er það fyrirtæki
ennþá starfandi í Hafnarfirði og nú
með hundruð manna í vinnu.
Úr samhengi við raunveruleikann
Núna er gott atvinnuástand í Hafn-
arfirði, en það getur verið fljótt að
breytast. Við höfum nú við þessar
aðstæður ákveðið að koma í veg fyrir
stækkun og hagkvæman rekstur
Alcan. Við höfum nú ákveðið að
reyta fiðrið af einni af bestu varp-
hænum okkar, svo hún veslast smátt
og smátt upp, en þessi varphæna
hefur skaffað þúsundum örugga og
góða vinnu. Við ætlum sem sagt ekki
að leyfa henni að verpa, svo þúsundir
Hafnfirðinga geti notið góðs af. Ég
Núna er gott
atvinnuástand
í Hafnarfirði,
en það getur
verið fljótt að
breytast
Umrœðun
Árni Hjörleifsson
upplifði það fyrir nokkru, að fjórtán
ára stúlka var að tala um leður, en
hún hélt að það væri ræktað á ökrum.
Þegar henni var bent á það að skinn
og leður væri það sama og kæmi af
dýrum varð hún frekar vandræðaleg.
Hún hafði sem sagt eingöngu sett
loðin skinn í samband við dýr. Ég vill
taka það fram að þetta á ekki að vera
brandari, þessi unga stúlka er mjög
skýr og ætíð með einkunnir upp á
níu og tíu. Ég velti því hins vegar
fyrir mér hvort eitthvað væri að upp-
eldi eða skólakerfi okkar, ef börn og
unglingar væru svona slitin úr sam-
íengi við raunveruleikann. Mér varð
)á hugsað til Hamborgar þar sem ég
rafði séð mótmælagöngu fara um
götu eina, þar sem ég var staddur.
Fólkið dró á eftir sér íoðskinn ötuð
rauðri málningu og bar skilti með
slagorðum gegn drápi dýra. Ég
fylgdist með göngunni um stund og
fór þá að taka eftir því að margt af
göngufólkinu var klætt leðurfatnaði,
bæði jökkum, buxum og skóm. Þetta
var að stærstum hluta fullorðið fólk
sem þarna var, en virtist vera svona
gjörsamlega slitið úr samhengi við
raunveruleikann. Það er þá ef til vill
ekkert skrítið, að fermingarstelpa
uppi á íslandi ruglist á leðri og loðnu
skinni ef fullorðið fólk þekkir ekki
samhengið.
Ekki til hagsbóta
Staðreyndin er því miður sú að
fjöldi fólks er gjörsamlega slitinn úr
samhengi við raunveruleikann og
samhengi lífsins. Svo eru það aldr-
aðir athyglissjúkir stjórnmálamenn
sem eru nú komnir aftur á blóma-
tímabil '68-kynslóðarinnar og æða
nú um götur, heimtandi alla hluti og
mótmælandi öllu. Flestir þekkja þær
kröfur sem allur þorri ungs fólks
gerir á öllum sviðum í dag. Það telur
alla hluti nánast sjálfsagða, enda í
mörgum tilfellum alið upp á fimm
stjörnu hóteli heima hjá mömmu og
pabba til tuttugu og fimm til þrjá-
tíu ára aldurs. Þegar það svo fer að
heiman má ekkert vanta, allt innan-
stokks í toppi með flatskjá og öllu til-
heyrandi og eðalvagn fýrir utan. Upp-
eldið hefur eitthvað mistekist, því
þau telja að öll þessi lífsgæði séu svo
sjálfsögð og þola illa allt mótlæti. Það
má reikna með því að einhver niður-
sveifla komi og fólk þurfi að horfast
í augu við skuldir og erfiðleika. Það
gæti orðið nokkuð erfitt fyrir unga
fólkið okkar sem ekki þekkir annað
en velsæld að takast á við samdrátt.
Það eru ekki bara ungmenni sem eru
eitthvað veraldarfirrt, það eru æði
margir af eldri kynslóðinni sem virð-
ist halda að peningar falli af himnum
ofan og horfa svo með lotningu á líf
einhverra auðmanna sem þeir eiga
enga mögurleika á að nálgast. Fólkið
virðist svo halda að kjöt og fiskur
verði til í frystiborðum verslana og
mjólkin verði til í kælunum. Stað-
reyndin er hinsvegar sú að ýmsar
okkar þarfir, svo sem listir og all-
skyns menning, þrífast illa ef undir-
stöðu- og framleiðslugreinar fá ekki
að þróast. Þetta gengur hins vegar
vel hvað með öðru. Bygging tónlist-
arhallar eða endalausra verslana og
verslunarmiðstöðva mun ekki verða
fólki til mikilla hagsbóta.
Höfundur er rafvirki og var baejarfulltrúi
Alþýðuflokksins, form. skipulagsnefndar, skóla-
nefndar Hafnarfjarðar og form. Sambands
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Ginnkeyptasta gæran?
Það hefur verið kostulegt að
fylgjast með fröken Vinstri-grænni
og fröken Samfylkingu alveg frá
alþingiskosningunum. Báðar hafa
svifið um í annarlegri leiðslu með
ástarglóð i augum. Þær höfðu lengi
virst perluvinkonur en um leið og
úrslit lágu ljós fyrir byrjaði ballið.
Þá fór hvor kvensa um sig að blikka
herra Ihald sem mest hún mátti
enda var hann kominn úr helbláu
hversdagsfötunum og í annan og
ásjálegri sparigalla: bleikt bindi
og græn jakkaföt. Báðum hafði
ljóslega verið talin trú um það að
hún yrði sætasta stelpan á ballinu.
LiSááÍ
Báðar hafa
svifið um í ann-
arlegri leiðslu
með ástarglóð í
augum.
Umrœðan
Einar Sigmarsson
Sama hafði maddama Framsókn
verið látin halda, fölleit og mögur
eftir tólf ára sambúð. Kvennakapall-
inn var lagður. Nú var herra íhald
kominn á uppskeruhátíðina og
maddama Framsókn hélt í humátt
á eftir, undirdánug mjög, en hafði
varla stigið eitt skref inn þegar
fröken Vinstri-græn, vergjörn
mjög, stjakaði við henni. En þá brá
svo við að hinn bragðvísi kvenna-
gosi virti hvoruga viðlits; hann
hafði fyrir löngu mælt sér mót við
fröken Samfylkingu. Ætlar fröken
Samfylking að selja sálu sína nú
þegar hún hefur öll ráð í hendi sér?
„Hell hath no fury like a woman
scorned", eins og máltækið segir.
Höfundur er Islenskufræðingur
Einstæð og
fjölbreytt
tónlistarupplifun
Ungir einleikarar á Listahátíð
Ýmir, í kvöld, annað kvöld & fimmtudagskvöldið 24. maí kl. 20.00
Listahátíð i Laugarborg, i kvöld kl. 20.00 Miðaverð: 2.300
Fyrstu tónleikarnir, sem eru í kvöld, verða að mestu helgaðir tónlist
Johanns Sebastians Bachs, en þar koma fram verðlaunahafar
Bachkeppninnar í Leipzig frá því í fyrra, þau Elfa Rún Kristinsdóttir
fiðluleikari og Francesco Corti semballeikari.
Á öðrum tónleikunum annað kvöld flytja Ari Þór Vilhjálmsson
fiðluleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari ýmsa
þekkta konfektmola og virtúósóverk tónbókmenntanna, m.a. eftir
Bartok og Strauss.
Á þriðju og síðustu tónleikunum á fimmtudagskvöld mun Tinna
Þorsteinsdóttir píanóleikari frumflytja ný verk eftir íslensk tónskáld,
en Tinna hefur hlotið mikið lof fyrir túlkun sína á nýrri tónlist. Tinna
verður einnig með tónleika í kvöld á Listahátíð í Laugarborg.
Afsláttur fyrir tónleikagesti 25 ára og yngri á tónleikaröðinni
Ungir einleikarar á Listahátíð.
Icelandic Sound Company
Tvö af voldugustu hljóðfærum landsins
Hallgrímskirkja, annað kvöld kl. 20.00 Miðaverð: 2.700
í tilefni tónleika lcelandic Sound Company í Hallgrímskirkju mun
tónlist þeirra bera með sér trúarlegan blæ. Slagverkssafn Gunnars
Kristinssonar er víðfrægt og líklega einstætt á heimsvísu. Þegar
við bætist Klais-orgel Hallgrímskirkju mætast tvö af voldugustu
hljóðfærum íslands. Því má Ijóst vera að hér verður á ferð einstæð
og fjölbreytt tónlistarupplifun. Meðlimir hljómsveitarinnar eru auk
Gunnars, Ríkharður H. Friðriksson gítarleikari, Egill Ólafsson söngvari
og Kirsten Galm orgelleikari.
Miðasala
Miðasalan fer fram á www.listahatid.is og í síma 552 8588, alla virka daga
frá kl. 10 til 16. Miðasala við innganginn hefst klukkustund fyrir viðburð.
10.-26. maí
Listahátfð
í Reykjavík QDOf-
EB
KAUPPiNQ
REYKJAVÍK ARTS FESTIVAL
samsKiP
'fíaái****. D